Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Séra Jóna Hrönn Bolladóttir: „Ég lærði að biðja í Kolaportinu“

„Ég hef alla tíð dáðst að því í fari Bjarna hvað hann er sífellt glaður.“ (Mynd: Kazuma Takigawa.)
„Ég hef alla tíð dáðst að því í fari Bjarna hvað hann er sífellt glaður.“ (Mynd: Kazuma Takigawa.)

„Var Jesús eingetinn? Mér er drullu­sama en mér er alveg ljóst eftir samleið mína með honum í lífinu að hann er svo sannarlega einstakur sonur Guðs því hann hefur breytt mannkyns­sögunni og hefur alla daga áhrif á mína sögu,“ segir séra Jóna Hrönn Bolla­dóttir, sóknar­prestur í Vídalíns­kirkju. „Það eftir­minnilegasta eftir öll þessi ár í starfi er að sjá svo margt fólk rísa á fætur í eigin lífi þrátt fyrir bylmings­högg örlaganna. Ég hef stöðugt og ítrekað orðið vitni að upprisu­kraftinum eins og hann birtist í raun­verulegri reynslu.“

Skír­dagurinn. Föstu­dagurinn langi. Páskarnir. Reis Jesú upp frá dauðum?

„Augljós­lega reis hann upp því annars værum við ekki að ræða þetta tvö þúsund árum síðar. Ef hann væri bara grafinn og gleymdur væru ekki milljónir manna í vitundar­sambandi við hann um allan heim. Það hefur eitthvað stórkostlegt gerst. Ég gæti ekki hafa staðið við líkbörur í yfir þrjátíu ár nema vegna þess að ég á upprisutrú í hjarta mínu. Upprisa Jesú er ekki bókstafleg gagnreynd þekking heldur Guðs­þekking. Hún er reynslan af mætti lífisins í veru­leikanum, hvernig ljós himnanna mætir fólki í erfið­leikum, þjáningu, vonleysi og missi. Þetta blasir við mér í daglegu lífi, ekki síst í gegnum sálgæsluna. Ég ætla að fá að eiga þá trú að Guð leiði okkur í gegnum dánar­heiminn og inn í sitt eilífa ljós. Þannig bið ég fyrir öllum sem ég jarða. Ég trúi á hinn upp risna frelsara Jesú Krist og blygðast mín ekki fyrir það.

Hvaða félags­legu og tilfinninga­legu áhrif má það hafa að Guðs syni skuli hafa verið þröngvað og hann níddur með nákvæmlega sama hætti og líkin sem nú blasa við í Úkraínu? Hvers konar átrúnaður er það? Grátandi, hand­ónýtur Guð sem hrópar í ýtrustu neyð nakinn og upp hengdur til háðungar í allra augsýn: Guð minn, Guð minn, hví hefur þú yfirgefið mig!? Trúin er ekki heimsk. Biblían gefur engar myndir af sjálfri uppris­unni. Engar bókstafs­lýsingar handa trúarþjösnurum að tönglast á eða andtrúar­dólgum að hæðast að.“

„Ef hann væri bara graf­inn og gleymdur væru ekki millj­ónir manna í vit­und­ar­sam­bandi við hann um allan heim.“ (Mynd: Kazuma Takigawa.)

Jesús fæddist ekki í Betlehem

Hver er skoðun sóknar­prestsins varðandi faðerni Jesú? Var Jesús eingetinn sonur Guðs eða góður maður með mikinn boðskap?

„Þetta er mikilvæg spurning í dag en fyrir tvö hundruð árum hefði ekki þurft að spyrja hennar vegna þess að fyrir­bærið bókstafstrú hefur ekki verið vandamál nema þessi síðustu árhundruð. Alveg þar til nútíminn kom til sögunnar skildi fólk eðli helgisagn­anna, að þær eru ekki bókstaflegar heldur fjalla þær um hið ósegjanlega í raun­veru­leikanum. Adam og Eva eru ekki bókstaflegar eða sögulegar persónur. Þau eru tákn­myndir fyrir mannkynið og mannleg kjör. Nói var aldrei í örkinni og Jesús fæddist ekki í Betlehem. Helgisagnir eru miklu stærri en okkar hugmyndir um raun­veruleikann. Þær eru mikil­vægur hluti af lang­tímaminni mannkyns og fjalla um ýmis aðal­atriði sem ekki mega gleymast þótt annað fyrnist. Hversu mikils virði er að Guðs sonur hafi fæðst inn í óstabílt ástar­samband og faðerni hans verið í uppnámi? Hvaða félags­legu afleiðingar hefur átrúnaður þar sem guðinn fæðist í hendur valda­lauss fólks sem býr á merkingar­lausum stað eins og Nasaret var og þegar barnið á að koma í heiminn er það á hrakhólum vegna vald­níðslu yfirvalda og fjöl­skyldan endar sem ólöglegir innflytjendur í Afríku? Aldrei hafa fleiri börn verið á flótta í veröldinni en einmitt þessa páska. Var Jesús eingetinn? Mér er drullu­sama en mér er alveg ljóst eftir samleið mína með honum í lífinu að hann er svo sannarlega einstakur sonur Guðs því hann hefur breytt mannkyns­sögunni og hefur alla daga áhrif á mína sögu.“

„Helgi­sagnir eru miklu stærri en okkar hug­myndir um raun­veru­leik­ann.“ (Mynd: Kazuma Takigawa.)

Andardráttur trúarinnar er bænin

Hvað er Guð í huga Jónu Hrannar?

„Sem trúaðri manneskju er mér hollt að segja: Ef Guð er til þá eru allar mínar hugmyndir um hann rang­hugmyndir. Það skýrist af því að tungu­málið okkar og myndirnar sem við búum til í eigin höfði eru ekkert nema spegil­myndir af okkar eigin skynjun. Hvað sem mér kynni að detta í hug að segja um Guð myndi aldrei námunda sann­leikann. „Mínir vegir eru ofar ykkar vegum og mínar hugsanir ofar ykkar hugsunum“ segir Guð hjá spámanninum Jesaja.  Ég held að við verðum að slaka á með allar hugmyndir og kenningar um Guð. Trúin er ekki það að trúa einhverju upp á Guð. Trúin er reynslan af því að Guð hafi trú á fólki og öllu sem lifir. Trúin er ekki að höndla sann­leikann heldur bæn um það að mega vera höndluð af sann­leikanum. Andar­dráttur trúarinnar er bænin. Mín skynjun af nærveru Guðs er fyrst og fremst í bæna­samfélagi og fyrirbæna­þjónustu. Ég hef tilheyrt bænahópi kvenna í fjórtán ár í Vídalíns­kirkju og við höfum komið saman vikulega. Þótt flest viki til hliðar féllu þessar stundir aldrei niður í COVID. Ég veit í hjarta mér að allar þessar konur sem þarna koma saman hafa verið kallað af Guði til þjónustu. Bænin breytir ekki Guði en hún breytir þeim sem biður. Það að biðja stöðugt fyrir fólki í samfélagi við aðra veitir manni þekkingu á eðli Guðsríkis. Guðs­þekking er hagnýt þekking. Það skiptir mig óendanlega miklu máli að vita að það er beðið fyrir mér. Án fyrir­bænar myndi ég ekki treysta mér til starfa.“

„Mín skynjun af nær­veru Guðs er fyrst og fremst í bæna­sam­fé­lagi og fyr­ir­bæna­þjón­ustu.“ (Mynd: Kazuma Takigawa.)

Kartöflur og helgihald

Jóna Hrönn Bolla­dóttir fæddist í Hrísey 21. júlí árið 1964 og er dóttir hjónanna Bolla Þóris Gústavs­sonar, fyrrum vígslu­biskups að Hólum í Hjaltadal, og Matthildar Jóns­dóttur hárgreiðslu­meistara og húsmóður. Jóna Hrönn er ein af sex systkinum og þegar hún var tveggja ára flutti fjöl­skyldan að Laufási við Eyjafjörð.

„Ég get aldrei full­þakkað að hafa fengið að alast upp á slíkum stað sem ilmaði af fegurð og sögu. Það er magnað að fá að alast upp í íslenskri sveit, vera í tengslum við náttúruna, sinna dýrunum og taka þátt í því að hjálpast að. Uppvöxtur minn mótaðist meðal annars af því að sitja á kartöflu­vélinni á vorin og standa á henni á haustin þegar uppskeran kom því að pabbi ræktaði kartöflur í því skyni að auka tekjurnar því að prests­launin voru lág og börnin mörg. Ég lyfti ekki lóðum á unglings­árum en ég lyfti ótöldum pokum af vörubílspöllum og var alveg nautsterk. Það má segja um heimilis­lífið í Laufási að við vorum öll að vasast í þeim verkefnum sem komu upp. Ég fylgdi meðal annars pabba töluvert í hans starfi, lék á gítar í sunnudaga­skólanum og fór með honum á snjó­þungum vetrum til messu svo hann hefði einhvern til að ýta bílnum ef hann festist í snjó. Þannig snerist æska mín nokkuð jafnt um kartöflur og helgihald.“

Jóna Hrönn rifjar upp hvernig trúin hafi orðið eðlilegur hluti af daglegu lífi. Laufás er kirkju­staður og hún hafði þann starfa að sýna kirkjuna og þrífa hana ásamt móður sinni. Messu­kaffi og erfi­drykkjur voru líka haldnar heima í stofu.

„Hvern messudag í Laufáss­kirkju útbjó mamma veislu fyrir alla sveitina. Þar voru maregns- og marsipan­tertur sem mamma hafði bakað og pabbi hafði skreytt af því hann var svo flinkur í höndunum. Svo bakaði hún alltaf gerbollur og bar fram með bláberja- og rabarbara­sultu sem hún hafði búið til og alltaf voru fyrir hendi í búrinu.

Það var ekki alltaf auðvelt að vera dóttir prestsins af því að hann hafði svo mikla sérstöðu í sveitinni og hlutverk hans var ólíkt mörgum öðrum. Stundum var manni strítt á því að eiga pabba sem ynni ekki neitt en væri alltaf í spari­fötunum.

Í barna­skóla las maður bláu og bleiku bókina í kristinfræði og ég drakk í mig biblíu­sögunar og fékk alltaf hæstu einkunn þar. Það er svo skrýtið að Jesús hefur verið órjúfanlegur hluti af lífi mínu alla tíð og boðskapur hans hefur fylgt mér frá ungaaldri.

Ég á sterka minningu af því að það dó lítill drengur og það hafði mikil áhrif á okkur systkinin og ég man eftir mér fara aftur og aftur til að standa við litla gröf í kirkju­garðinum sem klædd hafði verið svo fallega með greni. Ég man hvað ég fann mikið til. Það hafði mikil áhrif á mig að sjá foreldra mína vera að hjálpa fólkinu í þessum aðstæðum. Pabbi að semja ræðu og tala til fólksins og mamma að undirbúa móttökuna og senda okkur í alls kyns verkefni. Ég veit að svona stundir, sem voru ekki fáar, höfðu djúpstæð áhrif á okkur öll börnin á heimilinu. Svo var maður með í kaffinu eftir athöfn að hjálpa til. Maður skynjaði sorgar­þungann og fann gildi þess að standa saman og hlúa að. Gildi sálgæslunnar tók sér bólstað í manni. Ég held að svona stundir séu ástæðan fyrir því að helmingurinn af þessum systkina­hópi fór í prestskap.“

Kazuma Takigawa

Jeppi á Fjalli

Svo varð prests­dóttirin unglingur. Hún segir að unglings­árin hafi verið góð ekki síst vegna þess að hún ákvað að drekka ekki áfengi á unglings­aldri; segir að hún hafi verið svo mikill brjál­æðingur að það hefði getað farið illa.

„Mér datt ýmislegt í hug og hafði gaman af að vera innan um fólk og skemmta mér. Ég fór í Mennta­skólann á Akureyri og það verður að viðurkennast að ég sinnti náminu ekki vel en ég var þeim mun duglegri í félags­lífinu,“ segir Jóna Hrönn og hlær. „Mitt stóra áhugamál á mennta­skólaárunum var leik­félagið og ég bæði lék og sat í stjórn félagsins. Þetta voru gríðar­skemmtileg verkefni og eftir á sá ég hve mikil menntun var fólgin í því að starfa undir stjórn fólks eins og Ragn­heiðar Steindórs­dóttur leikkonu og Jónasar Jónassonar útvarps­manns en við fengum alltaf menntað leik­húsfólk sem verk­stjóra í leik­félagi MA.

Ég hafði tekið þá ákvörðun sjö ára gömul að ég skyldi verða prestur og ég man eftir því að tilkynna pabba og einhverjum hópi presta þessa fyrirætlun mína en á þeim tíma sem ég sagði þetta var engin kona prestur og ég virði það alltaf við pabba hvað hann tók þessu ljúflega og enginn viðstaddra hafði orð á neinum hindrunum. Þremur árum síðar var fyrsta konan vígð svo ekki þurfti ég að ryðja brautina. Stafið í LMA hafði þau áhrif að hjá mér kviknaði draumur um að kannski gæti ég bara orðið leikkona enda átti ég stórkost­lega fyrirmynd í afasystur minni, Emillíu Jónasdóttur, sem ég dáði mjög líkt og þjóðin öll. Hún var okkar fyrsta Soffía frænka. Leiklistar­áhuginn var svo mikill að eftir stúdent ákvað ég að fara á lýðháskóla í Ósló þar sem boðið var upp á leiklistar­braut. Hápunktur tímans þar var þegar ég var valin til að leika Jeppa á Fjalli þar sem ég bæði röflaði, drakk og söng. Það var mikið hlegið í sýningunni því Jebbi á Fjalli var auðvitað enn kostulegri í flutningi þessarar þybbnu íslensku sveita­stelpu. Ég er alltaf þakklát fyrir þennan tíma. Síðan flutti ég til Reykja­víkur og fór að vinna á Kleppi og sótti kvöldtíma í leiklistar­skóla Helga Skúla­sonar. Það var magnað nám. En niður­staðan varð nú samt sú að ég fór ekki í leiklist heldur í guðfræðinám við HÍ.“

Ástin

Jóna Hrönn segist hafa séð eiginmann sinn, séra Bjarna Karlsson, í fyrsta skipti þar sem hann stóð við syðri stigann í aðal­byggingu Háskólans fyrsta daginn í guðfræði­náminu. „Ég man meðal annars hvernig hann var klæddur: Í brúnar flauels­buxur, rúllukragabol, í sandölum og með íþrótta­peysu bundna um herðarnar og ég hugsaði: Hversu hallæris­legur getur maður verið? En mér fannst hann líka sjarmerandi af því að hann var svo öruggur með sig með fallegt bros og ég vissi strax að við ættum eftir að verða vinir. En ég vissi líka að mig dauð­langaði að stríða honum sem varð raunin því að fyrsta veturinn í guðfræði­deildinni var ég sístríðandi KFUM-drengnum Bjarna. Eftir veturinn unnum við saman í sumar­búðum á Snæfellsnesi og um haustið varð ekki aftur snúið. Ég hef alla tíð dáðst að því í fari Bjarna hvað hann er sífellt glaður. Hann vaknar ekki eins og ég í misjöfnu skapi á morgnana. Nei, hann er alltaf til í næsta dag fullur af áhuga fyrir lífinu og samferða­fólkinu.“

Hvað er ástin í huga sóknar­prestsins?

„Ég tel ástina vera sterkasta og mikil­vægasta aflið í heiminum. Gunnar Hersveinn segir í einni bók sinni að andstæða ástar sé ekki hatur heldur skeytingar­leysi. Ég er svo innilega sammála því. Hugsið ykkur ef Evrópu­búar ákvæðu núna að taka ekki á móti flótta­mönnum frá Úkraínu. Í því ljósi blasir við að skeytingar­leysi er einmitt andstæða ástar. Gunnar segir líka að skeytingar­laust samfélag sé eins og hurðar­laust helvíti. Ég hallast að því. Kristur sendir stöðug skilaboð í boðskap sínum í þá veru að við skulum þjóna hvert öðru. Ástin er að þjóna öðrum. Þannig er það í hjóna­bandinu. Fólk sem vill þjóna hvert öðru, ekki bara taka til sín heldur skiptast á gæðum og vera raun­verulega vitni að lífi hvort annars, finnur hjónasælu. Þar verður ekki bara ást í samskiptum heldur enn fremur trúnaður og virðing sem nærist í nánum tengslum. Hvað er ást? Ást er vinna, gleðirík og grjóthörð vinna.“

Prests­hjónin búa við barnalán. Eiga þrjú börn. „Elstur er Andri sem starfar sem sálfræðingur í Reykjavík. Kona hans er Unnur Bryndís Guðmunds­dóttir sem starfar sem sjúkra­þjálfi. Önnur er Matthildur Bjarna­dóttir sem er prestur og heldur meðal annars utan um verkefnið Örninn sem er starf fyrir börn og unglinga sem hafa orðið fyrir missi. Þar höfum við fjöl­skyldan verið sjálfboða­liðar sem hefur verið dýrmætt fyrir okkur. Maðurinn hennar er Daði Guðjónsson kennari. Yngstur er Bolli Már sem vinnur við auglýsinga- og efnisgerð meðal annars hjá auglýsinga­stofunni Pipar. Maki hans er Berglind Halla Elíasdóttir leikkona. Öll hafa börnin fært okkur barnabörn. Þau eru orðin fimm talsins og eru í raun okkar stóra áhugamál og þakkar­efni.“

„Ég hef alla tíð dáðst að því í fari Bjarna hvað hann er sífellt glaður.“ (Mynd: Kazuma Takigawa.)

Upprisukrafturinn

Ferill sóknar­prestsins er fjöl­breyttur. Jóna Hrönn starfaði sem æskulýðs­fulltrúi við Laugar­neskirkju meðan á guðfræði­náminu stóð. Hún vígðist síðan til prests­þjónustu í Vestmanna­eyjum árið 1991 og svo starfaði hún sem prestur við Dómkirkjuna í Reykjavík í hálfu starfi árið 1998 og í hálfu starfi sem miðborgar­prestur KFUM/K til ársins 2001. Þá var hún var í fullu starfi sem miðborgar­prestur þjóð­kirkjunnar frá 2001 til 2005. Árið 2005 var hún svo ráðin sóknar­prestur Garða­prestakalls í Garðabæ og Álftanesi.“

Hvað er eftir­minnilegast frá ferlinum?

„Eitt það dýrmætasta á starfs­ferli mínum var það að fá að hefja mína prests­þjónustu í Vestmanna­eyjum. Eyjamenn urðu mínir helstu læri­meistarar í sálgæslu­fræðum vegna þess að ungur prestur var óreyndur á sviði mannlegra harm­leikja. Hver Eyja­maðurinn af öðrum leiddi mig í gegnum sársauka­full embættis­verk, viturt fólk sem mótast hafði af því að búa á þessum berskjaldaða stað. Þar varð ég aftur og aftur vitni að því hvernig lifa skuli af.

Það eftir­minnilegasta eftir öll þessi ár í starfi er að sjá svo margt fólk rísa á fætur í eigin lífi þrátt fyrir bylmings­högg örlaganna. Ég hef stöðugt og ítrekað orðið vitni að upprisu­kraftinum eins og hann birtist í raun­verulegri reynslu. Enn frekar undrast ég hvernig fólk fer að því að nýta sársauka sinn og þjáningu til að styrkja aðra þegar það kemur út úr dýpstu þjáningu og hefur borið gæfu til að hlusta eftir anda Guðs og verður síðan farvegur hugmynda að starfi eða verkefnum sem verður til ríkulegrar blessunar fyrir aðra. Af ótal dæmum ætla ég bara nefna hér vinkonu mína Heiðrúnu Jens­dóttur sem fékk mig til liðs við sig að stofna Örninn, starf fyrir börn og unglinga sem hafa misst náinn ástvin. Á stuttum tíma hefur þetta starf borið mikinn ávöxt í samvinnu við hóp af sjálfboða­liðum. Bara í síðasta mánuði kom til mín kona með hugmynd sem ég veit að er frá Guði og við erum farnar á stað að vinna með efnið.“

Jóna Hrönn var Miðborgar­prestur árið 1998-2005. Hvað er eftir­minnilegast frá þeim tíma?

„Ástandið var slæmt í miðbænum um síðustu aldamót. Ég man að það fór um mig hrollur þegar vinnu­veitendur mínir fóru fram á að keypt yrði fyrir mig sérstök slysa­trygging á meðan ég gegndi þessu embætti. Ég varð aldrei fyrir líkams­tjóni í starfinu en margoft var ég ótta­slegin og mér var hótað.

Á þessum árum var mikil unglinga­drykkja í miðborginni og hörð fíkniefni flæddu yfir. Þá voru líka opnaðir nokkrir nektar­dansstaðir og þeim fylgdi mikil þjáning og sorg. Líkt og í Erninum í dag voru magnaðir sjálfboða­liðar sem komu til samstarfs við mig hverja helgi á efri hæðinni í Austur­stræti 20 þar sem Miðborgar­starfið hafði afdrep. Árið 2001 fórum við í það að innrétta neðri hæð hússins sem kaffihús sem fékk nafnið Ömmukaffi. Þetta var kostnaðar­samt verkefni enda var þetta fullbúið kaffihús sem hafði ásýnd heimilis eldri konu. Hugmyndin var að hluta til fengin frá finnsku kirkjunni en einnig frá þeim fjölmörgu unglingum sem höfðu sagt okkur að þeir ættu alltaf afdrep hjá ömmu sinni þegar allt annað þryti. Um helgar komu að meðaltali 50–100 unglingar til okkar í Ömmukaffi. Á daginn var rekið venjulegt kaffihús sem átti marga fasta­gesti því veitingar voru ljúffengar og staðurinn bar með sér yfirbragð manngæsku og trúar.

Í starfi mínu sem miðborgar­prestur horfði ég oft til Kola­portsins og velti því fyrir mér hvort hægt væri að koma til samstarfs við það mikla mannlífs­torg. Ég vandi þangað komur mínar um helgar og fann innra með mér að vissulega ætti kirkjan þar erindi. Svo þegar ég kom að máli við Jónu Ásgríms­dóttur, sem þá rak kaffi­húsið á svæðinu, og bar undir hana þá hugmynd að hafa guðs­þjónustur í kaffi­húsinu hjá henni tók hún mér afar vel. Ég fékk með mér presta, djákna og tónlistar­fólk til að þjóna við athafnirnar. Bjarni minn var ævinlega með mér í þessu helgi­haldi og einnig Þorvaldur Halldórsson tónlistar­maður og Ragn­heiður Sverris­dóttir djákni auk annara. Mér þykir óendanlega vænt um það að Bjarni og Ragn­heiður skuli halda utan um þessar messur núna 22 árum seinna ásamt Guðrúnu Árnýju Karls­dóttur tónlistar­manni. Og eitt verð ég að segja til viðbótar: Ég lærði að biðja í Kola­portinu. Hvergi hefur mér reynst auðveldara að bera þar upp bænarefni. Þar ríkir mikil samstaða og kliðurinn og köllin um kartöflur og hákarl til sölu er eðlileg stað­festing á því að það skiptir máli að taka þátt í lífinu og að veru­leikinn sjálfur er hinn rétti vettvangur bænarinnar. Mitt í hinu lifaða lífi er hjartsláttur trúarinnar heitur og ör í Kolaports­messunum.“

„Þá voru líka opn­aðir nokkrir nekt­ar­dans­staðir og þeim fylgdi mikil þján­ing og sorg.“ (Mynd: Kazuma Takigawa.)

Barna- og unglingastarf

Jóna Hrönn hefur í gegnum árin lagt mikla áherslu á barna- og unglinga­starf.

„Leiðin að hjarta safnaðarins er í gegnum barna- og unglinga­starf. Kirkja sem sinnir ekki þeim þáttum deyr rétt eins og kirkja þar sem ekki er iðkað bænalíf.

Við lifum í samfélagi þar sem sigurvegara­menning ræður ríkjum. Ég óttast þær einhliða áherslur. Það er mikilvægt að vera í íþróttum og hreyfa sig og það að vera hluti af liðsheild er uppbyggileg reynsla. En áherslan á afburðina og það að skara fram úr í saman­burði við aðra verður oft fyrir­ferðamikil. Börn þurfa að geta komið á stað þar sem þau þurfa ekki að keppa eða vera „betri en“ heldur mega hvíla í þeirri reynslu að vera dýrmæt, elskuð og einstök í sjálfu sér.

Kristið æskulýðs­starf leggur áherslu á dýrmæti einstaklingsins og fegurðina í samskiptum. Þar ríkir hvatning til að sýna náunga­kærleika og varðveita heilbrigð og sveigjanleg persónu­mörk. Það hvernig kristin trú hefur verið töluð niður í samfélagi okkar og gerð að vandamáli í opinbera rýminu er mikið menningar­slys byggt á þröngu heimilda­vali og skorti á félags­legu innsæi. Vitaskuld þarf æskulýðs­starf kirkjunnar aðhald og siða­reglur líkt og allt starf með ungu fólki en það þarf víðáttu­mikla vanþekkingu til að sjá ekki hvernig félags­auður vex og hrokinn í samfélaginu minnkar við það að meistarinn frá Nasaret sé sýnilegur á torginu.“

Fæðing. Dauði. Hver er tilgangur lífsins?

„Við erum eina dýra­tegundin sem getur dáið af tilgangs­leysi. Það er erfitt og ógerlegt að finna tilgang lífsins ef frum­þarfir okkar fá ekki að blómstra: Að eiga tengsl við aðra og njóta frelsis til athafna eru hinar félags­legu forsendur alls tilgangs. Eins mun fólk sem ekki ræktar þakklæti í hjarta aldrei geta fundið fullnægjandi tilgang með lífi sínu. Það getur orðið ánægt á köflum en það verður aldrei hamingju­samt. Tilgang lífsins finna þau sem af öllu hjarta spyrja spurningarinnar hver er tilgangur lífsins?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá