Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Árni Þór Sigurðsson: „Þetta verður áþreifanlegt þegar rússneskar fjölskyldur fá sendar kistur heim“

Árni Þór Sigurðsson
Árni Þór Sig­urðs­son

„Það er óhætt að segja að andrúms­loftið í Moskvu sé lævi blandið. Á yfir­borðinu verður maður í sjálfu sér ekki mikið var við hernaðar­átökin sem eiga sér stað í Úkraínu en ef vel er að gáð þá er hægt að fullyrða að áhrifa stríðsins gæti í daglegu lífi Moskvubúa,“ segir Árni Þór Sigurðsson, sendi­herra Íslands í Rússlandi.

„Þá á ég ekki síst við að löggæsla hefur verið hert og við sjáum ekki bara hefð­bundna götu­lögreglu heldur líka óeirða­lögreglu og jafnvel hermenn á götum úti. Eins og komið hefur fram í fréttum þá hafa margar vestrænar verslunar­keðjur ákveðið að yfirgefa Rússland og það fer ekki fram hjá okkur að þær verslanir eru lokaðar. Síðan sér maður auðvitað umfjöllun um „hina sérstöku hernaðar­aðgerð“ eins og stjórn­völd hér kjósa að kalla herleiðangurinn í Úkraínu í fjöl­miðlum; sumir fjöl­miðlar eru með fletti­skilti svo vissulega er almenningur sér meðvitaður um hvað er í gangi, jafnvel þótt það sé matreitt eins og stjórn­völd vilja.“

Árni Þór segir að Moskva hafi löngum verið talin mjög örugg borg að búa og starfa í. „Ég hef aldrei fundið fyrir ótta í Moskvu, hvorki fyrr á tíð né núna. Það hefur ekki breyst með síðustu vendingum. Í sjálfu sér finnur maður ekki beint fyrir stríðs­rekstrinum í Úkraínu úti á götu í Moskvu. Það er meira í gegnum lestur á fjöl­miðlum, samtölum við fólk og svo auðvitað í gegnum efnahags­áhrifin sem maður upplifir stríðið.“ Þess má geta að samfélags­miðlar eins og Twitter, Instagram, Facebook auk YouYube eru lokaðir. Þá hefur verið lokað fyrir sumar erlendar frétta­veitur eins og BBC og CNN.

Myndin sem dregin er upp í Rúss­landi er frekar ein­hæf.

„Rússneskir fjöl­miðlar eru flestir hverjir undir beinni stjórn stjórn­valda eða að minnsta kosti mjög hlið­hollir stjórn­völdum. Umfjöllun þeirra um átökin í Úkraínu eru þar af leiðandi mjög á einn veg, það er að segja í samræmi við þá línu sem stjórn­völd leggja. Þetta á bæði við um beinan frétta­flutning og eins í umræðu­þáttum. Þó hefur engu að síður borið á því að í spjall­þætti komi fólk með gagnrýn sjónarmið en það er í miklum minni­hluta. Almenningur í Rússlandi fylgist ágætlega með fjöl­miðlum, ekki síst sjónvarps­stöðvunum, en les ekki mikið erlendar frétta­síður og því verður myndin sem stjórn­völd draga upp býsna alls­ráðandi.

Myndin sem dregin er upp í Rússlandi er frekar einhæf. Það litar að sjálfsögðu viðhorf almennings hér. Það þarf líka að hafa í huga að stjórn­völd hafa um nokkuð langt skeið alið á tortryggni í garð Úkraínu með fjandsamlegri orðræðu um illa meðferð á íbúum af rússnesku bergi, einkum í austustu héruðum Úkraínu, um nasista og fasista sem fari með völdin í landinu og fleira í þeim dúr. Þótt því fari víðs fjarri að allir leggi trúnað á þessa útgáfu þá sýnist mér samt að þessi lýsing rússneskra stjórn­valda á stöðu mála í Úkraínu eigi tals­verðan hljóm­grunn meðal Rússa, einkum þeirra sem hafa ekki aðgang að fréttum annars staðar frá. Fólk veit auðvitað af þessum átökum og þótt frétta­flutningurinn geti verið bjagaður þá gerir fólk sér grein fyrir að svona átök kosta mannslíf. Þetta verður áþreifanlegt þegar rússneskar fjöl­skyldur fá sendar kistur heim með föllnum ættingjum.“

Víða sést bæði almenn lög­regla sem og óeirða­lög­regla.

Hvað með mótmæli í Rússlandi?

„Mótmælendur hafa komið saman í Moskvu, Péturs­borg og fleiri borgum aðallega um helgar til að mótmæla stríðs­rekstrinum. Löggæsla hefur verið aukin og víða sést bæði almenn lögregla sem og óeirða­lögregla og mótmælendur hafa verið hand­teknir þúsundum saman. En í marg­milljóna­borg eins og Moskvu þarf meira til en nokkur þúsund mótmælendur til að eftir því verði sérstak­lega tekið. Engu að síður eru mótmælin til marks um að skoðanir eru skiptar og þar að auki eru margir sem kjósa að taka ekki þátt í mótmælum enda búið að herða viðurlög við hvers kyns andófi gegn stríðs­rekstrinum í Úkraínu.“

Árni Þór og for­seti Kirgistan.

Mikið högg fyrir Rússland

Orkan hefur löngum verið eitt af tækjum alþjóða­stjórn­málanna og þá hjá stórum olíu- og gasframleiðslu­ríkjum. Rússland er eitt af olíu- og gasstór­veldunum og getur nýtt stöðu sína á þeim vettvangi í pólitískum tilgangi í samskiptum á alþjóða­sviðinu.

„Nú er staðan sú að um 30-40% af olíu og gasi innan ESB kemur frá Rússlandi svo Evrópa er mjög háð þessum viðskiptum við Rússland. Að sama skapi er Rússland háð tekjum af olíu- og gassölu til Evrópu svo líklega munu báðir aðilar reyna að halda þessum orku­viðskiptum eins og hægt er gangandi og á grund­velli gildandi samninga. Ákvörðun Þýska­lands um að stöðva NordStream 2-leiðsluna er hins vegar mikið högg fyrir Rússland og spurning er hvort það er varanleg ákvörðun eða hvort hún yrði tekin upp á síðari stigum.“

Refsi­að­gerðir Vest­ur­landa eru hins vegar umfangs­miklar.

Það hefur komið skýrt fram hjá tals­mönnum NATO og einstakra aðildar­ríkja að ekki komi til greina að Atlantshafs­bandalagið blandi sér með beinum hætti í átökin, enda mætti þá búast við að um allsherjar­stríð yrði að ræða og það vill fólk skiljanlega forðast.

„Refsiaðgerðir Vestur­landa eru hins vegar umfangs­miklar, reyndar miklu víðtækari en við höfum áður séð, og það sem mestu varðar er að Vestur­löndin eru einhuga í aðgerðum sínum. Það er sífellt verið að bæta í aðgerðir til að auka þrýsting á rússnesk stjórn­völd en enn sem komið er hafa slíkar refsiaðgerðir ekki haft áhrif á stefnu stjórn­valda hvað stríðs­stefnuna áhrærir.“

Ákvörðunin um að víkja rússneskum bönkum úr SWIFT-kerfinu hefur vitaskuld mikil áhrif, enda stöðvast að mestu fjármagns­flutningar milli Rússlands og Vestur­landa í báðar áttir. Rússnesk stjórn­völd hafa brugðist við þessu til dæmis með því að heimila rússneskum aðilum að greiða skuldir sínar, fyrir vöru og þjónustu, í rússneskum rúblum í staðinn fyrir gjaldeyri.

Það er talið að um 5% af vinnu­afli í Rúss­landi starfi eða hafi starfað fyrir vest­ræn fyr­ir­tæki.

„Refsiaðgerðir Vestur­landa eru þegar farnar að segja til sín í rússnesku efnahags­lífi. Við getum nefnt hrun rússnesku rúblunnar, sem hefur fallið um fimmtíu prósent frá því í febrúar, og rússneskur hlutabréfa­markaður hefur líka fallið og er nú í hálfgerðu frosti. Þetta hefur áhrif á verð­bólguna sem hefur líka tekið stökk; í upphafi ársins gerði rússneski Seðla­bankinn ráð fyrir að verð­bólgan 2022 yrði um 4% en nú þegar er sú spá komin í 8,5%. Þá hafa stýri­vextir Seðla­bankans verði hækkaðir úr um 9% í yfir 20% svo það þarf ekki fleiri vitnanna við til að sjá að áhrifin á rússneskan efnahag eru mikil. Þessu til viðbótar hafa fjölmörg vestræn fyrirtæki ákveðið að hætta starfsemi eða loka tíma­bundið og við sjáum margar slíkar verslanir lokaðar. Það er talið að um 5% af vinnuafli í Rússlandi starfi eða hafi starfað fyrir vestræn fyrirtæki svo lokun þeirra hefur mikil áhrif á atvinnu­leysi í landinu. Fólk hefur eðlilega áhyggjur af þessari stöðu og er meðal annars óöruggt um vinnuna sína og ævisparnaðinn sinn. Vissulega munu stjórn­völd reyna að flytja marg­víslega starfsemi inn í landið, líkt og gert var eftir að refsiaðgerðir vegna innlimunar Krímskaga voru lagðar á árið 2014, en aðgerðirnar nú eru svo umfangs­miklar að það verður erfitt fyrir stjórn­völd að mæta þeim öllum með sama hætti og áður. Við þetta bætist síðan að verulegur hluti af gjaldeyris­forða rússneska Seðla­bankans hefur verið frystur á Vestur­löndum svo bankinn hefur ekki aðgang að honum sem veldur miklum vandræðum við að standa í skilum með afborganir og aðrar skuld­bindingar. Það er hætt við að þetta ástand verði lang­dregið, jafnvel þótt hernaðinum í Úkraínu lyki.“

Árni Þór á fundi með Slutsky.

Einangrast á alþjóðavettvangi

Árni Þór er spurður hvernig hann haldi að tekið verði á móti rússneskum almenningi erlendis og hvaða áhrif stríðið muni hafa á hinn almenna borgara heima fyrir og erlendis.

það er í sjálfu sér ekki góð þróun fyrir hinn almenna borg­ara.

„Þetta er ein hlið málsins sem lítið er talað um á Vestur­löndum. Því miður er það of algengt að það er sett samasemmerki milli rússnesks almennings og stjórn­valda. Og við höfum heyrt fréttir af Rússum sem hafa orðið fyrir aðkasti á Vestur­löndum þótt þeir hafi ekkert með stefnu Pútíns að gera. Til viðbótar þá ná refsiaðgerðir Vestur­landa einnig til margs konar samstarfs á sviði til dæmis mennta- og menningar­mála og íþrótta. Þetta kemur meðal annars niður á náms­mönnum, fræði­mönnum og lista­fólki sem ber enga ábyrgð á stríðs­rekstrinum en því miður eru fórnar­lömbin í átökum af þessum toga iðulega þau sem enga ábyrgð bera. Áhrifin af því að útiloka samstarf við alla Rússa, á hvaða sviðum sem er, geta hins vegar hæglega orðið þau að reka fólk í fangið á stjórn­völdum í Kreml og á þann hátt geta áhrifin farið gegn tilganginum. Við þessu er samt sennilega lítið að gera en er engu að síður umhugsunar­efni. Heildar­áhrifin verða þau sýnist manni að Rússar munu einangrast á alþjóða­vettvangi, sennilega um langa hríð, og það er í sjálfu sér ekki góð þróun fyrir hinn almenna borgara.“

Fylgi Pútíns hafði dalað

Árni Þór kom til starfa í Moskvu um mitt ár 2020 þegar Covid-faraldurinn var kominn á skrið svo afhending trúnaðar­bréfs fór fram við sérstakar aðstæður. „Í stað þess að afhenda forsetanum trúnaðar­bréfið persónu­lega og eiga svo stutt samtal við hann um samskipti ríkjanna var trúnaðar­bréfið afhent prótókoll­stjóra forseta­embættisins og síðan kom Pútín inn í salinn þar sem athöfnin fór fram, í tals­verðri fjarlægð, og ávarpaði mig og aðra sendi­herra sem afhentu trúnaðar­bréf á sama tíma úr ræðustól án þess síðan að heilsa hverjum og einum eða eiga samtöl við okkur sendi­herrana. Ég hef þess vegna ekki hitt hann nema bara í mýflugu­mynd. Það sama var uppi á teningnum fyrir nokkrum árum þegar ég var í Rússlandi með forseta Íslands vegna starfa minna sem sendi­herra norðurslóða. Þannig að ég hef í sjálfu sér ekki mikið um hann að segja sem persónu.

Skoðana­kannanir hafa bent til þess að fylgi við hann hafi dalað en það er líka þekkt úr heims­sögunni að þjóðar­leiðtogar leggi í stríð þegar svo árar í því augnamiði að þjappa þjóðinni að baki sér. Við sáum til dæmis flokk Pútíns, Sameinað Rússland, tapa fylgi í þing­kosningum í haust enda þótt hann hafi enn meirihluta þingsæta í rússnesku dúmunni. Almennt hefur verið talað að það megi rekja til óánægju innanlands til dæmis með stöðu efnahags­mála, skerðingar á lífeyri og hækkun eftirlauna­aldurs, enda lofaði Pútín marg­háttuðum umbótum í félags­málum í aðdrag­anda þing­kosninganna, ugglaust til að rétta stöðu flokksins af að einhverju leyti.“

Árni Þór með Maia Sandu, for­seta Moldóvu.

Tilbúinn að ganga mjög langt

Árni Þór segir að það hafi komið sér á óvart að Pútín skyldi ákveða að ráðast inn í Úkraínu og freista þess að taka yfir landið allt. „Maður var búinn undir það að Rússland myndi hugsanlega fara inn í austustu héruðin, Donbas, en hafði talið það mjög ósennilegt að um allsherjar­innrás yrði að ræða. Það kemur síðan einnig á óvart að svo virðist sem herleiðangurinn sé ekki að ganga eins og Rússar hafa væntanlega reiknað með, að mótspyrna Úkraínu sé meiri en þeir gerðu ráð fyrir. Ef til vill spilar inn í að tilgangur leiðangursins er kannski ekki svo augljós fyrir hermönnunum og baráttu­viljinn gegn bræðra­þjóðinni eitthvað takmarkaður. Um þetta er ekki gott að segja en maður veltir því óneitanlega fyrir sér því hernaðar­legir yfir­burðir Rússlands ættu að vera mjög miklir.“

Bar­áttu­vilji Úkra­ínu­manna er aug­ljós­lega mik­ill.

Er hrikalegasta sviðs­myndin að raun­gerast?

„Sú staðreynd að rússneski herinn er að reyna að ná stjórn á öllu landinu – og líklega hefur Pútín haft í hyggju að koma á lepp­stjórn í Kænugarði – bendir til þess að Rúss­lands­forseti sé tilbúinn að ganga mjög langt. Hann getur kannski náð Úkraínu undir sína stjórn en það er afar ósennilegt að hann geti haldið Úkraínu til lengri tíma. Baráttu­vilji Úkraínu­manna er augljós­lega mikill og stuðningur Vestur­landa skiptir þar líka máli. Svo hefur Pútín tekist að sameina úkraínsku þjóðina gegn sér fyrir utan að sameina Vestur­lönd í víðtækum refsiaðgerðum. Orrustan vinnst kannski en stríðið tapast.“

Árni Þór sagði í viðtali á RÚV 24. febrúar að hernaðar­íhlutunin sem slík hafi verið yfir­vofandi allt frá því Rúss­lands­forseti lýsti yfir sjálf­stæði Lúgansk og Donetsk í Donbas-héraði í Úkraínu.“ Hann er nú spurður hvernig fólk hafi fundið eða skynjað að þetta væri yfir­vofandi frá þessum tíma og hvað benti til þess.

„Hér er ég fyrst og fremst að vísa til umræðunnar í Rússlandi; orðræða stjórn­valda og stjórn­málamanna var býsna mikið öll á einn veg. Þar hefur áherslan verið á að úkraínsk stjórn­völd hafi farið illa með rússnesku­mælandi minni­hlutann, bannað honum að nota tungumál sitt og þrengt að honum á ýmsa lund. Jafnvel hafa rússnesk stjórn­völd talað um þjóðar­morð á Rússum í Úkraínu þótt engar sannanir hafi verið reiddar fram til stuðnings svo alvarlegum ásökunum. En umræðan hafði undið upp á sig og svo komu forsvars­menn sjálf­stjórnar­héraðanna Lugansk og Donetsk og lýstu yfir sjálf­stæði og óskuðu eftir aðstoð Rússlands. Þannig má segja að íhlutun Rússlands í Donbas-héraðið hafi verið undir­byggð um nokkurt skeið.

Hver er staðan í dag? Hvað er fram undan?

„Eins og er þá má segja að við sem búum og störfum í Rússlandi séum í nokkurs konar biðstöðu, við vitum ekki hvernig mál munu þróast á næstu dögum og vikum og það er mjög erfitt að spá um fram­tíðina. En auðvitað vonar maður í lengstu lög að þessu hernaðar­ástandi ljúki sem fyrst og að viðræður aðilanna leiði til vopnahlés og helst friðar­samkomulags. En jafnvel þótt það tækist þá er hætt við að það taki langan tíma að byggja upp að nýju traust milli austurs og vesturs og að samskipti komist aftur í þokkalega eðlilegt horf. Því miður má reikna með að þessi vanhugsaði stríðs­rekstur hafi lang­varandi áhrif fyrir rússneskt samfélag og verði Rússlandi dýrkeypt á svo mörgum sviðum. Fyrir utan þær hörmulegu afleiðingar sem stríðið hefur fyrir Úkraínu og úkraínskt samfélag; svo sem mannfall, eyði­leggingu og fólk á flótta. Sá veldur miklu sem upphafinu veldur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá