Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Enduðu á götunni – Guðrún tók eiturlyf með móður sinni: „Ég lokaði loksins á hana fyrir ári síðan“

Guðrún Dís- Skjáskot
Guðrún Dís- Skjáskot

„Við misstum húsnæðið og enduðum á götunni. Við vorum þá að flakka á milli, annað hvort milli hótela, þegar hún fékk lánaðan pening frá vinum eða fjöl­skyldu, eða bjuggum í hjólhýsum í smástund,“ sagði Guðrún Dís Barða­dóttir, í hlaðvarps­þættinum Eigin konur. Guðrún, sem er 19 ára gömul, segir frá erfiðri æsku í þættinum en móðir hennar gjör­breyttist þegar hún byrjaði að drekka. Guðrún var þá orðin tólf ára gömul en fram að því segir hún að móðir sín hafi verið æðisleg.

Hún minnist þess að hafa stundum ekki séð móður sína í nokkra daga í senn eftir að drykkjan byrjaði. Endaði það á því að hún fór í meðferð. Eina nóttina vaknaði Guðrún upp við öskur í móður sinni, komst hún síðar að því að hún hafi reynt að svipta sig lífi.

Þegar þau misstu húsnæðið segir Guðrún að margir hafi vitað til þess.

„Barnaverndanefnd vildi senda okkur í fóstur á meðan mamma myndi finna húsnæði, en við vildum það ekki, heldur að þau myndu hjálpa okkur að finna húsnæði,“ segir hún en í gögnum frá Barna­vernd sem hún fékk afhent, átján ára gömul, kom fram að þeim hafði borist tilkynningar um ástandið á heimilinu mörgum sinnum á hverju ári.
„Ég man ekki eftir að Barna­vernd hafi mætt svona oft“.
Segir hún móðir sína einnig hafa boðið henni að reykja gras snemma á aðfangadags­morgun.  „Viltu fá?,“ segir Guðrún móðir sína hafa spurt sig, þegar hún horfði á jónuna á borðinu.

Guðrún sleit samskiptum við móður sína fyrir um ári síðan.
„Ég lokaði loksins á hana fyrir ári síðan, sagði bara stopp því hún var að biðja mig að lána sér pening, og ég sagði nei því ég hafði ekki efni á því.“ 

Guðrún hefur notað samfélags­miðla til þess að opna á málefnið. Kveikjan að því var viðtal við móður hennar sem birtist fyrir jól.
„Hún fór í viðtal hjá Mannlíf og fór að væla um hvað hún fékk lítið frá Trygginga­stofnun, og var að nota það að það væru að koma jól og hún ætti fjögur börn,’’ segir Guðrún sem birti í kjölfarið myndband á Tik Tok.“
Viðtalið má hlusta á í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá