Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Föst skot vegna mögulegs banns við þungunarrofi: „Heldur að Handmaid’s Tale sé rómantísk gamanmynd“

Stephen Colbert.
Stephen Colbert. Mynd: skjáskot úr The Late Show.

„Jæja… andskotinn,“ sagði bandaríski skemmtiþátta­stjórn­andinn Stephen Colbert í upphafi þáttar síns á þriðjudags­kvöld. „Þið vitið hvað við erum að fara að tala um í kvöld, svo þið skulið spenna beltin.“

Í þætti sínum, The Late Show with Stephen Colbert, tók Stephen Colbert sérstak­lega fyrir þá áætlun Hæstaréttar Banda­ríkjanna að snúa við Roe v Wade. Roe v Wade var tímamóta­ákvörðun sem tekin var af Hæstarétti Banda­ríkjanna árið 1973 um rétt kvenna til fóstur­eyðinga. Rétturinn úrskurðaði að bandaríska stjórnar­skráin verndi rétt þungaðra kvenna til þess að taka sjálfar ákvörðun um að gangast undir þungunarrof án þess að ríkið hefti ákvörðunar­rétt þeirra.

Í þeim skjölum sem lekið var úr Hæstarétti Banda­ríkjanna virðist rétturinn vera að undirbúa viðsnúning á Roe v Wade og að kosning meðal dómaranna hafi þegar farið fram. Úrskurðurinn virðist hafa verið í undir­búningi frá því í febrúar síðastliðnum.

Gangi þetta eftir mun réttur kvenna til fóstur­eyðinga í Banda­ríkjunum vera ótryggður og úrskurðurinn gæti dregið dilk á eftir sér með margt annað, til að mynda lög um getnaðar­varnir.

Hugsanlegur útskurður Hæstaréttar snýst í grunninn um að dæma í hag ríkisins Missis­sippi, þar sem farið er fram á að ríkið geti bannað hér um bil öll þungunarrof um og eftir 15. viku meðgöngu. Til þess að dæma Missis­sippi í hag þyrfti að snúa við Roe v Wade og þannig væru réttindi til allra þungunar­rofa í lausu lofti. Kjörnir fulltrúar gætu þannig ákveðið að banna flest tilfelli þungunar­rofa óháð meðgöngu­tíma og sérfræðingar segja að strax yrði það líkleg niður­staða í all nokkrum ríkjum Banda­ríkjanna.

Í upphafi þáttarins sagðist Stephen Colbert hafa ætlað sér að tala um Met Gala, árlegan viðburð haldinn á Metropolitan lista­safninu í New York. Viðburðurinn er stjörnum prýddur og þar keppast hin frægu við að klæðast eftirtektar­verðum, rándýrum og útpældum fatnaði, sköpuðum af fremstu hönnuðum heims.

„Í staðinn þarf ég að tala um annan hóp fólks klæddan í sturlaðar múnderingar, sem er úr takti við raun­veruleikann og lætur sem árið sé 1895 – Hæstarétt Banda­ríkjanna,“ sagði Colbert og uppskar hlátur úr sal.

„Þegar ég heyrði af þessu í gærkvöldi varð ég fyrst sjokkeraður. Síðan varð ég sjokkeraður á því að ég væri yfir höfuð sjokkeraður,“ sagði Colbert í opnunar­ræðu sinni. Hann benti á að það þyrfti líklega ekki að koma á óvart hvaða hæstaréttar­dómarar styðji ályktunina, sem er leidd af dómaranum Samuel Alido; þau Clarence Thomas, Neil Gorsuch, Brett Kavanaugh og Amy Coney Barrett.

„Til hamingju konur, ákvarðanir um það hvað þið megið gera við ykkar eigin líkama eru núna teknar af fjórum gömlum gaurum og konu sem heldur að þættirnir The Handmaid’s Tale sé rómantísk gamanmynd.“

Hann bendir á að allir þessir dómarar hafi stutt Roe v Wade og sagst ætla að virða úrskurðinn sem Hæstaréttar­dómarar, þegar þau voru opinber­lega metin í dómssal og skipuð í starfið.

Samkvæmt könnunum Gallup er stuðningur Bandaríkja­manna við þungunarrof í flestum eða öllum tilfellum í kringum 80 prósent.

„Þau vissu að ef þau væru hrein­skilin með skoðanir sínar og fyrir­ætlanir myndu þau ekki fá starfið. Þannig að þau lugu eiðsvarin. En hvað veit ég? Ég er ekki Hæstaréttar­dómari. Ég er ekki nógu góður lygari.“

Hér fyrir neðan má horfa á innslagið í heild.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Jólin geta verið svo indæl

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt