Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Hafið gleypti Hólmaborgina með öllu: „Ég tel að þar hafi verið valinn maður í hverju rúmi“

Hólmaborg SU-555
Hólma­borg SU-555 Mynd: Lubbi

Þann 30. janúar árið 1956 lagði Hólma­borgin SU-555 af stað með fjögurra manna áhöfn, frá Neskaups­stað á leið sinni til Skotlands þar sem setja átti nýja vél í skipið. Þann 2. febrúar barst neyðarboð frá skipinu til loftskeyta­stöðina í Þórshöfn í Færeyjum. Og síðan spurðist aldrei aftur til hennar.

Hólma­borg SU-555

Þann 1. apríl sama ár skrifaði Friðrik Steinsson pistil um slysið í Sjómanna­blaðinu Víkingur en fór hann meðal annars yfir mannkosti allra í áhöfn Hólma­borgarinnar:

Hinn 30. janúar síðastliðinn lagði m.b. Hólmaborg, Eskifirði, af stað frá Neskaupstað og var
ferðinni heitið til Peterhead á Skotlandi, en þar átti að setja nýja vél í skipið. 2. febrúar heyrði togarinn Austfirðingur í talstöð Hólma­borgar, sem þá var að kalla í loftskeyta­stöðina í Þórshöfn í Færeyjum. Þetta er  það síðasta, sem til Hólma­borgar hefur spurzt.

Eftir því, sem síðar fréttist hafði loftskeyta­stöðin í Þórshöfn ekki heyrt í skipinu. 8. febrúar var leit hafin. Tóku þátt í leitinni: togararnir Austfirðingur og Goðanes, tvö skip frá landhelgisgæzlunni, og tvö veðurathugunaskip. Flugvélar frá landhelgisgæzlunni, Kefla­víkur­flugvelli og brezkar flugvélar tóku mikinn og góðan þátt í þessari leit. Þá lögðu íslenzkar farþega­flugvélar, er fóru á milli landa, lykkju á leið sína til að huga að skipinu. Skipulögð leit stóð í átta daga, en þó var talsvert leitað eftir það. Mun leitin að Hólmaborg vera einhver sú víðtækasta, sem gerð hefur verið til að leita að íslenzku skipi. Leitin bar ekki árangur, þrátt fyrir að góð leitar­skilyrði voru flesta dagana, sem leitað var. Aðstand­endur þeirra, sem á Hólmaborg voru, hafa beðið að koma á framfæri þökk til Slysavarna­félags Islands fyrir ágæta forgöngu um leitina og til allra þeirra, er þátt tóku í henni.

Hólmaborg var smíðuð í Svíþjóð árið 1946 og var 92 smálestir að stærð. Eigandi var
Hólmaborg h.f., Eskifirði. Fyrir skömmu varð breyting á hlutaeign í félaginu þannig, að nú
var skip­stjórinn, Jens Jensen, aðal­eigandi og útgerðar­stjóri. Jens hafði verið skip­stjóri á
Hólmaborg allan tímann frá því skipið kom til landsins.

Jens skip­stjóri

Á Hólmaborg voru fjórir menn. M.b. Hólmaborg. Skip­stjórinn hét fullu nafni Jens Pétur Thorberg. Hann var fæddur í Reykjar­firði 23. sept. 1908, sonur Þórunnar Markúsdóttur og Vilhelms Péturs Jensen, er þá rak verzlun á Reykjar­firði. Skömmu eftir að Jens fæddist, fluttust foreldrar hans til Eski­fjarðar, en þar rak faðir hans verzlun og útgerð um árabil. Þórunn er látin fyrir nokkrum árum, en Vilhelm Jensen rekur heildsölu í Reykjavík. Árið 1934 kvæntist Jens eftir­lifandi konu sinni Önnu Finnboga­dóttur skip­stjóra Jónssonar á Fáskrúðs­firði. Þeim varð sex barna auðið, tvö börn misstu þau ung, en þrjú eru á lífi, fjórtán, níu og fjögra ára. Jens Jensen, eins og hann var oftast nefndur, gerðist snemma formaður, tók þá smáskipa­próf, en síðar, árið 1946, tók hann fiskiskipa­próf við Stýrimanna­skólann. — Jens var hversdags­lega hlédrægur og dulur í skapi, en hafði þó næmt auga og eyra fyrir því, sem broslegt var. Hann var gæddur ríkri list­hneigð. Á bernsku- og unglings­árum fékkst hann talsvert við að mála, en hætti því, er hann varð fulltíða maður. Hann hafði óvenju fallega söngrödd, en beitti henni ekki hversdags­lega. List­hneigðin gat verið kynfylgja úr báðum ættum. Hann var þéttur á velli og þéttur í lund. Herbert Þórðarson, er var stýri­maður á Hólmaborg þessa ferð, var fæddur í Norðfirði (síðar Neskaupstað) 8. sept. árið 1913. Sonur Stefaníu Ármanns­dóttur og Þórðar Björns­sonar skip­stjóra þar. Stefanía er látin fyrir nokkrum árum, en Þórðar er búsettur í Neskaupstað. Herbert kvæntist árið 1938 Sigríði Sigurðar­dóttur skip­stjóra Jónssonar í Neskaupstað. Lætur eftir sig konu og eitt kjörbarn, 13 ára dreng. Hann lauk fiskimanna­prófi úr Stýrimanna­skólanum árið 1938. Hertbert hefur starfað í Neskaupstað eða á bátum þaðan mestallan sinn starfsdag. Hann flutti ísvarinn fisk til Englands öll stríðs­árin. Sigldu þeir oftast á sama skipi, hann og Þórður faðir hans. Það var því engin nýjung fyrir Herbert að koma til Englands, enda ætlaði hann heim aftur með fyrstu flugferð. Herbert fékkst meðal annars talsvert við kennslu í siglinga­fræði. Veitti forstöðu nokkur undan­farin ár námskeiði í siglinga­fræði á vegum Stýrimanna­skólans. Herbert var mesta ljúfmenni í umgengni, glaðlyndur og góður félagi. Efalaust finna margir sveit­ungar hans og reyndar fleiri, að þeir eiga nú á bak að sjá traustum manni og góðum vini. Vilhelm Pétur Jensen, vélstjóri, var fæddur á Eskifirði 7. sept. árið 1935, sonur skip­stjórans og önnu konu hans. Hann var kvæntur Margréti Gunnars­dóttur vélstjóra Hallgríms­sonar á Eskifirði. — Vilhelm þekkti ég minnst þeirra manna, er voru á Hólmaborg, en mér er tjáð, að hann hafi verið mesti efnis­maður. Hann lætur eftir sig unga konu og tvö kornung börn. Sigurður Jónsson var fjórði maðurinn á Hólmaborg. Hann var fæddur á Eskifirði 28. sept. 1909, sonur Margrétar Páls­dóttur og Jónasar Jónssonar, er lengi var rafstöðvar­stjóri á Eskifirði og er nýlega látinn. — Sigurður er fimmta barnið uppkomið, sem Margrét sér á bak, en nú hefur hún misst sjö börn sín af ellefu, en mér er sagt, að enn hafi hún reynzt sama hetjan og áður undir svipuðum kringum­stæðum. Þá má geta þess, að Margrét, ekkja Vilhelms vélstjóra, er dóttur­dóttir hennar og uppeldis­dóttir og býr hjá ömmu sinni með bæði ungu börnin sín. Árið 1933 kvæntist Sigurður Ingigerði Benedikts­dóttur, ættaðri úr Húna­vatnssýslu. Lifir hún mann sinn, ásamt sex börnum þeirra, þar af tvö innan 10 ára aldurs. Sigurður var hættur sjómennsku fyrir 9 árum. Ætlaði aðeins að bregða sér til Skotlands þessa ferð og hafði pantað far heim aftur með fyrstu flugferð. Á síðustu árum vann hann við vegagerð ríkisins, stjórnaði jarðýtu. Þegar ég var á ferð á Austur­landi á síðasta sumri og fór um nýlagða vegi, heyrði ég borið á hann mikið lof fyrir dugnað og hagsýni í starfi. Þau hrósyrði komu mér engan veginn á óvart eftir þau kynni, er ég hafði haft af Sigurði fyrr á árum. Þeir Jens og Sigurður voru báðir með mér á sjó, er þeir voru ungir. Reyndust þeir röskir menn og vandaðir og ágætir drengir. Þegar skip hverfa með svipuðum hætti og Hólmaborg nú, koma venjulega fram ýmsar ágizkanir um hvað slysinu hafi valdið. Oftast eru menn jafnær eftir slíkar bolla­leggingar. Ég vil þó láta það persónu­lega álit mitt í ljós, að það, hve fáir skip­verjar voru, hafi ekki átt þátt í þessu slysi. Ég tel að þar hafi verið valinn maður í hverju rúmi. Eftir­lifandi vanda­mönnum sendi ég fyllstu samúðar­kveðjur.

Blessuð sé minn­ing áhafn­ar­innar á Hólma­borg­inni SU-555

Góðar minningar um þá förnu er bezta huggunin, sé vel að gáð.
Friðrik Steinsson. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá