Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Segja frá ofbeldi innan sértrúarsafnaða: „Þjónaðu leiðtogunum eins og þeir séu Guð’’

skjáskot – Sigríður Lund
skjá­skot – Sigríður Lund

„Unglinga­leiðtoginn í kirkjunni tók mig í gólfið, knésetti mig og stóð ofan á maganum á mér til að reka út djöflana sem áttu að gera mig samkyn­hneigða,’’ segir Steinunn Anna Radha í viðtali við Kompás en fjallað var um málið á Vísi.

Kompás hefur kafað ofan í hugtakið trúar­ofbeldi og skyggnst inn í líf þeirra sem hafa verið í sértrúar­söfnuðum. Þeir sem hætta í sértrúar­söfnuðum upplifa kvíða, áfalla­streitu, depurð og mörg hver hafa orðið fyrir alvarlegu ofbeldi innan söfnuðsins.

Steinunn er ein þeirra en segist hún hafa mætt allt að sex sinnum í viku í kirkju en var hún í unglinga­starfinu í Smára­kirkju en þar var hún ítrekað beitt ofbeldi. Unglingatarfs­leiðtoginn bauð henni heim til sín þar sem hann braut á henni en þetta gerðist oft yfir heilt ár. Steinunn kærði leið­togann og vann málið.

Sigríður Lund Hermanns­dóttir segir frá reynslu sinni í sértrúar­söfnuðum Frelsinu. Foreldrar Sigríðar voru ung þegar þau eignuðust hana og faðir hennar í rokk­hljómsveit sem fylgdi mikið djamm. Þau gengu svo í sértrúar­söfnuð og breytti það lífi Sigríðar. Frelsið var stofnað árið 1995 og leið­togarnir voru hjónin Linda Björk Magnúsdóttir og Hilmir Kristinsson. Sigríður lýsir atburðum sem áttu sér stað meðan hún var í söfnuðinum en áttu meðlimir að borga einn tíunda af launum sínum til safnaðarins.
„Það voru samkomur oft í viku og endalaus vinna,” segir Sigríður. „Oft vorum við sótt heim til að vinna ef við vorum veik. Það var skráð í kladda hverjir komu hvenær. Og með tíundina, það var skráð hverjir borguðu. Ef þú borgaðir ekki, var hringt í þig.“
„Ég man alltaf setninguna sem var hömruð í okkur: Serve your leaders as on to God. Þjónaðu leið­togunum eins og þeir séu Guð. Og þú settir bara samasemmerki þarna á milli.“
Sigríður hefur nú sagt skilið við trúar­ofstæki og er þakklát fyrir þann stað sem hún er á í dag. Viðtalið má lesa í heild sinni á Vísi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá