Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Háskólanemi hvarf sporlaust: „Hingað fara þeir allir sem fyrirfara sér“

Þann 26. mars árið 1972 hvarf háskóla­neminn Sverrir Kristinsson sporlaust, ekkert hefur spurst til hans síðan.

Sverir var 22 ára og stundaði nám raunvísinda­deild Háskóla Íslands. Hann bjó í Nýja Garði í Reykjavík en þar var heimavist fyrir háskóla­nema. Auk námsins var hann gítar­leikari og spilaði meðal annars með hljómsveitunum Yoga og Blóm Afþökkuð.

Það var um páska sem Sverrir sást síðast en þá hugðist hann verja fyrri­hluta páska­frísins í að læra undir próf, síðar ætlaði hann á Reykjanesið til fjöl­skyldu sinnar og njóta frísins þar.

Að kvöldi Pálma­sunnudags, þann 26 mars 1972, fór hann með kunningjum sínum að skemmta sér á stað sem hét þá Klúbburinn og var við Borgartún í Reykjavík. Sverrir var töluvert ölvaður þegar hann kvaddi vini sína og fór heim með leigubíl. Leigubíls­stjórinn sagði Sverri hafa verið í vandræðum með að skrifa ávísun sökum ölvunar og gerðu þeir þá samkomulag sín á milli um að hann kæmi á leigu­bílastöðina daginn eftir og greiddi fyrir farið.

Þegar á heima­vistina var komið hitti hann kunningja­konu sína en hún sagðist ekki hafa séð á Sverri að hann væri ölvaður, því var mikið misræmi í frásögnum konunnar og leigubíls­stjórans. Konan heyrði síðar um kvöldið í mönnum fyrir utan herbergi Sverris, hann fer með mönnunum út af vistinni og var þetta í síðasta sinn sem vitað var um ferðir hans.

Þegar Sverir skilaði sér ekki á Reykjanesið á tilteknum tíma var fjöl­skylda hans farin að hafa áhyggjur og leituðu til lögreglu, stuttu síðar var hafin umfangs­mikil leit en aldrei skilaði hún neinu.

Þegar bróðir Sverris hafði samband við lögreglu til að athuga með rann­sóknina tilkynnti lögreglu­maður honum að hann vissi vel hvar Sverrir væri og sagðist ætla að sýna honum það. Ók hann þá með hann að rusla­haugunum í Gufunesi og sagði honum að þarna gæti hann fundið bróður sinn: „Hingað fara þeir allir sem fyrirfara sér.“

Engin ummerki voru þó á haugunum og sagði lögreglu­maðurinn að þeir gætu þá ekkert gert.

Fjöl­skylda Sverris fór fram á að fingraför yrðu tekin af vínglösum sem fundust í herbergi Sverris en það var aldrei gert.

Lögreglan leitaði Sverris í Norræna húsinu en eftir að forstöðu­maður hússins svipti sig lífi þremur vikum eftir hvarfið fór af stað orðrómur um að hún hafi ekið á Sverri og falið lík hans undir kjallara hússins, ekkert fannst þó þar.

Fjöl­skylda Sverris gagnrýndi störf lögreglu við málið og fannst rann­sóknin fara fram með óskipulögðum hætti, aldrei var komist að því hverjir mennirnir sem Sverrir hitti kvöldið sem hann hvarf, auk þess fundust engar vísbendingar sem gætu útskýrt hvarf hans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá