Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Ingunn og brottrekstur grunaðra: „Er sambærilegt að missa starf og að vera dæmdur í fangelsi?“

„Þá sit ég uppi með manneskju í fyrir­tækinu mínu sem hefur að líkindum sýnt af sér gríðar­legan karakter- eða að minnsta kosti dómgreindar­brest. Er það ekki sama dómgreindin og viðkomandi notar við aðra ákvörðunar­töku, meðal annars innan fyrir­tækisins míns? Vil ég treysta á þesa dómgreind? Er þetta líka manneskja sem ég treysti fyrir því að byggja upp heilbrigða menningu innan fyrir­tækisins?“ Þetta skrifar lögfræðingurinn Ingunn Agnes Kro í grein sem birtist í Lögmanna­blaðinu á föstu­daginn.

Hún veltir fyrir sér nokkrum spurningum. Á að byggja ákvarðanir sem teknar eru innan fyrir­tækja á sömu hagsmunum og í refsimálum fyrir dómstólum? Er sambærilegt að missa starf og að vera dæmdur í fangelsi?

Ingunn kom fram í fjöl­miðlum og ræddi þessi mál í kjölfar þess að ásakanir á hendur fimm hátt­settum mönnum í íslensku þjóð­félagi komust í hámæli í byrjun janúar. Þrír þeirra sátu í stjórnum stórra fyrir­tækja en viku frá í kjölfar þess að ásakanirnar, sem Vítalía Lazareva bar á þá, voru umfjöllunar­efni fjölmiðla.

Í ljós kom að stjórn Ísey útflutnings, sem Ari Edwald var framkvæmda­stjóri hjá, var meðvituð um ásakanirnar áður en þær voru til umfjöllunar hjá fjöl­miðlum en tekin hafði verið ákvörðun um það í stjórninni að ekkert yrði aðhafst nema meira kæmi fram um málið.

Ingunn skoðar viðbrögð vinnu­veitenda við ásakanir sem kunna að vera bornar á hendur stjórn­endum þeirra. Hún situr sjálf í fjölda stjórna fyrir­tækja, þar á meðal í stjórnum Sjóvár, HS Orku og Iceland Seafood.

Þolendur segi satt í yfir 90 prósent tilvika

Hún segir að innan lögfræðinnar sjálfrar sé jafn­strangri sönnunar­byrði ekki beitt annars staðar og gert er í refsimálum. Stjórn­endur fyrir­tækja taki ákvarðanir um ráðningar og uppsagnir út frá alls kyns ástæðum.

„Af hverju eiga þeir í erfiðustu málunum, þar sem áhrifin á fyrir­tækið eru hvað mest, að vísa frá sér ábyrgðinni og láta annað kerfi, dóms­kerfið, um ákvarðana­tökuna? Er það ekki hlutverk stjórn­enda að taka erfiðar ákvarðanir? Er brott­rekstur úr starfi ekki viðskiptaleg ákvörðun?“

Hún skrifar að sér líði ekki illa með þessa nálgun vegna þess að rann­sóknir sýni að rangar sakar­giftir séu einungis í 2-10 prósent tilvika: Þolendur segi satt í 90-98 prósentum tilvika.

„Er ég þá orðin hluti af „dómstól götunnar“? Kannski. Ég er hins vegar að gera það sem mér er ætlað; að gæta hagsmuna fyrir­tækisins með ákvörðun sem er byggð á mjög sterkum líkum.“

Ingunn veltir því upp í greininni hvort það sé fyrir­tækjum til góðs að halda inni fólki sem hafi verið sakað um brot gegn annarri manneskju. Hún bendir á að aðeins um 10 prósent brotaþola kæri mál sín til lögreglu og ekki ákært nema í minni­hluta þeirra mála.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá