Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Karlmaður á sjötugsaldri ákærður fyrir kynferðisbrot gegn sjö ungum stúlkum

Í byrjun desember á síðasta ári sendi Lögreglan á höfuð­borgar­svæðinu frá sér tilkynningu þar sem fram kom á karlmaður á sjötugsaldri hefði verið úrskurðaður í gæslu­varðhald vegna gruns um fjölda blygðunarsemis-og barna­verndar­lagabrot gegn börnum. Maður­inn er grunaður um að hafa sent börn­um á aldr­in­um 11 til 16 ára skila­boð af kyn­ferðis­leg­um toga. Þetta kemur fram í frétt Freys Gígju Gunnars­sonar, frétta­ritara á RÚV.

Í gæslu­varðhalds­úrskurðinum kom fram að hann væri grunaður í 22 málum þar sem börn kæmu við sögu.

Nú hefur Héraðs­saksóknari gefið út ákæru á hendur karl­manninum fyrir kynferðis­brot gegn sjö ungum stúlkum. Maðurinn hefur setið í gæslu­varðhaldi síðan í byrjun desember og í byrjun mars fram­lengdi Lands­réttur gæslu­varðhald yfir honum í byrjun, þar sem hann var grunaður um brot gegn fleiri stúlkum. Rann­sóknin er á lokastigi og er reiknað með að þau verði fljótlega send saksóknara­embættinu til ákvörðunar um saksókn.

Í samtali við Mannlíf sagði Ævar Pálmi Pálma­son, aðstoðar­yf­ir­lög­reglu­þjónn á kyn­ferðis­brota­deild lög­regl­unn­ar á höfuðborg­ar­svæðinu, að meint­um brota­þolum, þ.e. börn­um sem talið er að maður­inn hafi brotið á, hafi fjölgað um 6-7 frá því áður og nú sé maður­inn grunaður um brot gegn 25-30 börn­um.

Gerði tilraun til að mæla sér mót við þær

Manninum er gefið að sök að hafa viðhaft við þær kynferðislegt tal og sent sumum þeirra kynferðislegar myndir. Í tvö skipti er hann sagður hafa gert tilraun til að mæla sér mót við þær.

Héraðs­saksóknari taldi brýnt að maðurinn sætti áfram gæslu­varðhaldi. Hann væri undir rökstuddum grun um að hafa nálgast börn ítrekað í kynferðis­legum tilgangi í gegnum símtæki sem hann ætti auðvelt með að fá aðgang að væri hann frjáls ferða sinna.  Yrði hann fundinn sekur væri viðbúið að hann fengi ekki skilorðs­bundinn dóm enda væru öll brotin mjög alvarleg.

Héraðs­dómur Reykja­víkur tók undir þetta. Dómurinn sagði að þótt maðurinn hefði braggast og liði betur eftir að hafa verið hnepptur í gæslu­varðhald væri ekki hægt að treysta því að allt færi ekki í sama farið yrði hann látinn laus.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá