Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Blaða- og fréttamenn stefna að sameiningu: „Hart sótt að blaða- og fréttamennsku á Íslandi“

Stjórn Blaðamanna­félags Íslands samþykkti nýlega að ganga til óformlegra viðræðna við Félag frétta­manna, með það að markmiði að sameina félögin undir eina sæng.

Stjórn BÍ samþykkti nýlega að ganga til óformlegra viðræðna við Félag frétta­manna á ríkis­útvarpinu eftir að beiðni hafði borist þess efnis í lok síðasta mánaðar. Einhugur er í stjórn BÍ um að sameining félaganna verði til þess að efna enn frekar samstöðu innan stéttarinnar og faglegt starf félagsins. Í frétt BÍ um málið segir að Félag frétta­manna sé á sama máli og BÍ en í bréfi FF til stjórnar BÍ segir m.a.:

Undan­farið hefur verið hart sótt að blaða- og frétta­mennsku á Íslandi. Hefur sú aðför beinst að grunn­stoðum blaða­mennskunnar; tjáningar­frelsinu og heimildar­manna­verndinni. Ljóst er að sameinað félag allra blaða- og frétta­manna yrði öflugri málsvari blaða­mennskunnar en félögin hvort í sínu lagi, í barátt­unni fyrir vernd þessara grunn­gilda. Einnig má telja að sameinað félag geti verið sterkari málsvari félags­manna í baráttu fyrir bættum kjörum og réttindum.

Tekur Blaðamanna­félag Íslands undir þessi orð og bindur vonir við að samningar náist um sameiningu. Meðlimir í FF eru um 60 talsins og eiga allir rétt á að ganga í BÍ líkt og þeir tæplega 30 frétta og tökumenn á Rúv sem nú þegar eru í BÍ. Þar sem félagar FF eiga óhindraðan rétt á að ganga í Bí, og stjórnin fagnar hugmyndum um sameinuð félög og fjölgun frétta­manna í BÍ, líkt og segir í frétt BÍ, munu viðræðurnar við FF fyrst og fremst snúa að því hvernig staðið verður að sameiningunni, verði hún að veruleika.

Meðal þess sem til umræðu er hvort FF kjósi að hafa sérstakan samnings­rétt, þar sem félagið er nú þegar með sérstakan kjara­samning sem er að þó nokkrum megin­atriðum öðruvísi en kjara­samningar BÍ. Þá kemur til skoðunar að FF verði undir­deild í BÍ, eins og Félag blaða­ljósmyndara er nú. Einnig verður skoðað hvort FF komi með einhverja sjóði inn í sameinað félag og þá hvenær nýir félags­menn öðlist full réttindi, hvort það gerist strax við inngöngu eða að hálfu ári liðnu.

Stefnan er tekin á að viðræðum verði lokið fyrir aðalfund BÍ sem haldinn verður 28. apríl og niður­stöðu kynntar fyrir þann tíma. Verður félags­fundur um stöðu viðræðanna haldinn rafrænt, föstu­daginn 22. apríl kl. 12:30. Formaður FF, Sigríður Hagalín Björns­dóttir, verður aukreitis til svara á téðum fundi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá