Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Reyndi sjálfsvíg eftir ásakanir um kynferðisbrot: „Ég notaði fólk til að láta mér líða betur“

Armie Hammer
Armie Hammer

Leikarinn Armie Hammer tjáir sig nú í fyrsta skipti í næstum tvö ár, um ásakanir um kynferðis­brot og misferli á hendur honum.

E Online! segir frá því að í nýju viðtali við Air Mail tímaritið að ásakanirnar hafi næstum því valdið því að hann tæki sitt eigið líf. Þá sagði hann einnig að hann hefði sjálfur orðið fyrir „kynferðis­legu áfalli“ þegar æskulýðs­prestur misnotaði hann er hann var 13 ára. Í kjölfarið hafi áhugi hans á BDSM-kynlífi kviknað.

Fjöldi ásakana

„Ég var kynntur fyrir kynlíf á afar ógnvekjandi hátt, þar sem ég hafði enga stjórn,“ sagði Hammer í viðtalinu. „Áhugi minn varð eftir­farandi: Ég vil hafa stjórnina í kynferðis­legum aðstæðum.“ Segir leikarinn að hann hafi verið 13 ára þegar hann var misnotaður af prestinum. Nú, er hann er 36 ára og hefur ekki leikið í kvikmynd síðan fjöldi kvenna ásakaði hann um kynferðis­brot snemma árs 2021.

Ein þeirra kvenna, Effie, sagði á blaðamanna­fundi í mars árið 2021, að Hammer hafi nauðgað sér eftir að þau hófu samband árið 2016, eftir að hafa kynnst á Facebook. Lögreglan í Los Angeles hóf rannsókn á ásökunum sem enn stendur yfir.

Leikarinn, sem hefur áður sagt ásakanir Effie vera „svívirðilegar“, sagði í hinu nýja viðtali að  „hin meinta nauðgun var atriði sem var hennar hugmynd,“ sem þau hefðu planað saman fyrirfram á Messenger. „Við myndum taka þátt í kynferðis­athöfn sem kallað er „samþykkta nauðgun (e. consensual non-consent scene),“ og átti þá við svokallaða nauðgunar­fantasíu. Bætti hann við: „Ég hef aldrei neytt þetta óvænt upp á nokkurn. Aldrei.“

Aðrir fyrrum elskhugar leikarans hafa einnig sakað hann um kynferðis­brot en í heimildar­myndinni House of Hammer sem kom út árið 2022, hélt Courtney Vucekovich  því fram að hún hafi tekið þátt í kynferðis­athöfnum með leik­aranum sem meðal annars snéru að bindingum og biti og að eitt ákveðið atvik hafi verið „mjög niður­lægjandi og mjög lítil­lækkandi.“

Enn ein af fyrr­verandi kærustum Hammers, Paige Lorenze, sem ekki kom fram í téðri heimildar­mynd, sagði E! News árið 2021 að leikarinn hafi „smá saman ýtt henni inn í BDSM kynferðis­athafnir,“ en hún bætti því við að þær hafi verið með hennar samþykki.

Hammer viðurkenndi í viðtalinu, þrátt fyrir að neita glæp­samlegum brotum, að hann áttaði sig á að hann hafi „milljón prósent“ beitt andlegu ofbeldi gegn þeim sem ásaka hann um kynferðis­brot og að hann átti sig á að það hafi verið valda­ójafnvægi til staðar, gagnvart Vucekovich og Lorenze, þar sem þær voru tíu árum yngri en hann og að hann hafi verið „farsæll leikari á þeim tíma“ sem þau áttu í sambandi.

Reyndi sjálfsvíg

Ásakanirnar um kynferðis­brotin, sem komu aðeins nokkrum mánuðum eftir að þáverandi eiginkona hans, Elisabeth Chambers skyldi við hann, fóru mjög illa í Hammer. Sagði hann í viðtalinu að í febrúar 2021, mánuði eftir að fyrsta ásökunin kom fram, hafi hann reynt að fremja sjálfsvíg á meðan hann var í einangrun vegna Covid á Cayman-eyjum.

„Ég gekk bara í sjóinn og synti eins langt og ég mögulega gat og vonaði að ég myndi drukkna, verða fyrir báti eða vera étinn af hákarli,“ sagði hann. „En þá áttaði ég mig á að börnin mín voru enn á ströndinni og að ég gæti ekki gert þeim þetta.“ Leikarinn á dótturina Harper, átta ára og soninn Ford, sex ára með fyrrum eiginkonu sinni.

Hammer segir að á meðan að leik­listaferill hans standi enn í stað, sé hann að einblína á að hjálpa öðrum en hann fór í meðferð vegna „fíkniefna-, áfengis- og kynlífs­vandamála“ eftir að ásakanirnar komu fram og að hann plani nú að vera edrú félags­skapur og flytja inn með öðrum fíkli í bata.

Ennfremur segir Hammer í viðtalinu að hann vilji „taka ábyrgð á því að ég var hálviti, að ég hafi verið eigin­gjarn, að ég notaði fólk til að láta mér líða betur og þegar ég var búinn hélt ég áfram.“ Bætti hann við: „Nú er ég mun heilbrigðari, hamingju­samari og í meira jafnvægi. Ég get nú verið til staðar fyrir börnin mín á þann hátt sem ég gat aldrei áður.“

Ef ein­stak­ling­ar glíma við sjálfs­vígs­hugs­an­ir er bent er á Hjálp­arsíma Rauða kross­ins 1717 og netspjall Rauða krossins 1717.is. Opið allan sólar­hringinn. Einnig má hafa sam­band viðPíeta-sam­tök­in sem veita ókeyp­is ráðgjöf í síma 552-2218, allan sólar­hringinn. Netspjall Heilsu­veru þar sem svarar hjúkrunar­fræðingur er líka opið frá kl.8-22 alla daga. Fyrir þau sem misst hafa ástvin í sjálfs­vígi má fá stuðning í sorg hjá Sorgar­miðstöð og hjá Pieta samtökunum. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Heimur

Prestur kom konu til bjargar á flótta undan kalkúnum

Taryn Laprade og presturinn urðu vör við atvikið þegar þau beygðu inn á rangan veg á heimleið eftir blakleik.

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs