Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Már Gunnarsson: „Það á í rauninni að hundsa leiðsöguhunda og láta sem þeir séu ekki til“

„Ég upplifi meira sjálf­stæði og öryggi og hlutir sem ég átti mun erfiðara með eru bara ekkert mál í dag,“ segir Már Gunnarson sem fékk í fyrra leiðsögu­hundinn Max. „Það er biðlisti eftir hundum hjá Blindra­félaginu en félagið hefur verið að safna fyrir þessum hundum. Fólk getur stutt þetta með því að fara inn á heimasíðu félagsins og kynnt sér þetta betur.“

Þannig að þetta er klár­lega mikil bót.

Már segist hafa í gegnum tíðina fylgst með einstaklingum með leiðsögu­hunda og að hann hafi oft hugsað með sér hvað það væri nú stórkostlegt að eiga svona góðan vin sem hjálpaði honum í daglegu lífi við að gera hitt og þetta. „Ég beið alltaf mjög spenntur eftir því þangað til ég yrði nógu gamall og á þannig stað að geta verið með leiðsögu­hund. Síðan þegar kom að því að ég sá fyrir mér að þetta gæti gengið þá sótti ég um hjá Þjónustu- og þekkingar­miðstöðinni, sem heitir Sjón­stöðin í dag, að fá svona leiðsögu­hund og þá þurfti maður að fara í gegnum smáferli og umsóknar­ferli. Ég fór á námskeið og síðan beið ég í rúmt ár áður en ég fékk Max. Hann aðstoðar mig í daglegu lífi við að komast örugglega á milli staða, hann þekkir helstu leiðir sem við förum og í óvæntum aðstæðum bregst hann við því og fer fram hjá hindrunum. Hann finnur hluti fyrir mig sem ég bið hann um að finna og að fara inn í hús og út úr húsi sem og að finna tröppur eða lyftur. Ef ég missi eitthvað þá þarf ég ekki að beygja mig niður og setja fingurna út um allt og þreifa til að finna það; hann bara finnur það fyrir mig. Þannig að þetta er klárlega mikil bót. Svo er þetta ofsalega góður og fallegur félags­skapur.“

Til í tuskið

Max er tveggja og hálfs árs labrador­rakki frá Svíþjóð og segir Már að hann hafi verið sérstak­lega ræktaður til að sinna starfi leiðsögu­hunds.

„Fyrsta árið var hann hjá fóstur­fjölskyldu þar sem honum voru kenndir heimilis­siðir og síðan fór hann í eins árs leiðsögu­hunda­skóla þar sem hann lærði að verða bara full­menntaður leiðsögu­hundur. Að vísu verður hann aldrei full­menntaður vegna þess að þetta er ævilöng þjálfun og ég þarf að sinna þjálfun hans á hverjum degi og passa upp á að hann geri allt rétt. Og ef hann gerir eitthvað vitlaust þá leiðrétti ég hann. Ef eitthvað nýtt kemur upp þá kenni ég honum þannig að þetta er ævilöng þjálfun.“

Hann er mik­ill karakter og rosa­lega dríf­andi hundur.

Már segir að Max sé með mikinn drifkraft og að slíkur hundur hafi sérstak­lega verið valinn fyrir sig; hund sem væri til í tuskið og til í að fara með honum út um allt og gera með honum allt það sem hann gerir. „Hann er mikill karakter og rosalega drífandi hundur.“

Skuldbinding og hellings vinna

Enginn má veita Max athygli þegar hann er í vinnu sem leiðsögu­hundur. „Það má ekki klappa honum, beygja sig niður og brosa eða horfa í augun á honum. Það á í rauninni að hundsa leiðsögu­hunda og láta sem þeir séu ekki til. Þetta er gert til að þeir haldi einbeitingu í vinnunni vegna þess að þeir eru bara með lítinn hunda­heila og þeir geta ekki einbeitt sér bæði að mér og síðan öllu áreitinu sem er í kringum okkur.“

Þetta gerir mér lífið létt­ara á margan hátt.

Þegar Már er spurður hvað sé eftir­minnilegast frá því að hann fékk Max segir hann að það sé hve margt sem þeir gera sé ótrúlega „smooth“. „Þú getur rétt ímyndað þér hvernig það er fyrir mig að standa fyrir utan hús sem ég hef kannski aldrei komið inn í og leita að einni hurð inn í þetta hús. Max finnur þetta strax. Þetta gerir mér lífið léttara á margan hátt. En auðvitað er þetta líka skuld­binding og hellings vinna en ég sé ekki eftir því.“

Már segir að þegar Max er ekki í vinnunni þá hlaupi hann út um allt og hoppi og skoppi. „Hann elskar að fá bein til að naga og þá kemur hann og knúsar mig og ég knúsa hann. Honum finnst gaman að fá knús, klapp og hrós og hann elskar að láta greiða sér. Hann dýrkar að fara út í móa og hlaupa sem ég leyfi honum að gera reglulega. Svo syngur hann alltaf með þegar ég spila á píanó.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá