Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Sveinn Óskar harðorður um Borgarlínu: „En fjárfestarnir, þeir hesthúsa sínar únsur gulls án áhættu“

Sveinn Óskar Sigurðsson, bæjarfulltrúi í Mosfellsbæ.
Sveinn Óskar Sig­urðs­son, bæj­ar­full­trúi í Mos­fellsbæ.

„Gullæði fjár­festanna virðist ráða. Þeir virðast hafa offjárfest í lóðum um alla borg, húsum á lóðum sem þarf að rífa með tilsvar­andi kostnaði. Áform um Þungu Borgar­línuna getur sett bæði almenna borgara út af sporinu og fjár­festana sjálfa. Ef Þunga Borgar­línan tefst, sökum þess flækju­stigs sem Reykjavík hefur komið henni í, gætu þessir fjár­festar valdið tjóni,“ skrifar Sveinn Óskar Sigurðsson, bæjar­fulltrúi Miðflokksins, í grein á Mannlífi um væntanlega Borgar­línu og það brask sem á sér stað með fasteignir og lóðir við svæðin sem Borgar­línan liggur um.

Sveinn Óskar telur einnig að framkvæmdin eigi eftir að taka gríðar­legan tíma með tilheyrandi kostnaði. Hann tekur sem dæmi að byggingu stokks undir Miklubraut  „Miklubrautar­stokkur mun í smíðum valda gífur­legum töfum svo aðeins eitt dæmi sé nefnt. Slíkt tjón lendir að mestu á almenningi sem verður fyrir töfum og fari verkefnið úr böndunum fjárhags­lega er heimild fyrir Betri samgöngur ohf að setja á skatt sem nú er oft nefndur sem flýti- og tafagjöld, sbr. ákvæði 4. gr. Samgöngu­sáttmálans. Fari allt úrskeiðis verður almenningur látinn borga með nýjum skatti. Ef skatturinn dekkar ekki tjónið, nú þá hækkar hann þar til að jafnvægi í ársreikningi Betri samgangna ohf er náð. En fjár­festarnir, þeir hesthúsa sínar únsur gulls án áhættu“.

En hvar er árlega tjónið sem Þunga Borgar­línan muni valda umfram þetta sem dekka má með hærri sköttum nýju skatt­stofunnar sem ber nú heitið Betri samgöngu ohf? Það eru tafirnar sem Betri samgöngur ohf eru að láta framkalla með því m.a. að miðju­setja og taka frá akreinar, þétta byggð og þrengja að umferð sem hönnun og skipulag Þungu Borgar­línunnar gengur út frá. Þar fara saman ókræsilegir hagsmunir sveitar­félaga sem fá hækkandi fasteigna­gjöld með hækkun á húsnæðis­verði á markaðnum.

„Svo eru það fjár­festarnir sem eru að fara að rífa byggingar og byggja ný háhýsi á hámarks­verði. Það er Reykja­víkurborg sem hefur með umboðs­vanda skipulagsins heimtað allt að 5 prósenta byggingar­magns á þróunar­reitum fyrir húsnæði á undir­verði sem sett verður á endur­matsverði inn í Félags­bústaði. Svo Betri samgöngur ohf, sem rétt eins og Ríkis­útvarpið verður e.k. ríki í ríkinu, reyndar með eigin skatt­stofn sem þeir þar stýra sjálfir. Og úr þessu verður til ein heljarinnar elíta, allt á kostnað almennings.

Grein Sveins Óskars er að finna í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá