Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Inga er með Lipedema: „Dæmum aldrei því við vitum aldrei að fullu hvað fólk er að ganga í gegnum“

Inga R. Guðmundsdóttir
Inga R. Guð­munds­dóttir Mynd: Aðsend

Inga R. Guðmunds­dóttir skrifaði færslu á Facebook þar sem hún sagði lesendum sínum frá sjúkdómi sem hún var að greinast með. Sjúk­dómurinn mun fylgja henni út lífið en er ekki bannvænn. Hún gaf Mannlíf góðfúslegt leyfi til að birta færsluna í heild sinni í von um að hún geti opnað augu fólks svo það dæmi ekki fólk með sama sjúkdóm. Hér er færslan í heild sinni:

Í síðasta mánuði greindist ég með ólæknandi sjúkdóm sem ég þarf að lifa með alla ævi sem mun hafa mikil áhrif á lífsgæði mín en er samt ekki bannvænn. Trúi varla því að ég þori að pósta þessu en finnst það mikilvægt til þess að opna augun fyrir fólki og að dæma ekki og er ég að fara mjög út fyrir þægindarammann að deila þessu.Þessi sjúkdómur heitir Lipedema eða fitu­bjúgur og er frekar nýlega orðin viðurkenndur af Alþjóða­heilbrigðis­mála­stofnuninni. Ég greindist á stigi 2 á nokkrum stöðum á líkamanum í sónar en stigin eru 4. Er oft með með verki í kálfunum sökum bjúgsins og þá sérstak­lega snemma á morgnana og seint á kvöldin. Á erfitt með á passa í marga skó sem komast smá upp. Hef alltaf verið mjög náttúru­lega sterk og hélt oft að þetta væri bara að það væri ástæðan fyrir þessu því hafði aldei heyrt um sjúk­dóminn fyrren í síðasta mánuði.

Læknar á Íslandi eru ekki að framkvæma aðgeðir á sjúk­dóminum þar sem þeir hafa ekki þekkingu á honum og vita takmarkað um hann. Læknirinn sem greindi mig sagði að ekki væri en vitað hvað veldur verkjum sjúk­dómsins og sagði við mig að þessi bjúgur fer ekki nema með sérstöku fitusogi sem sérfræði læknar í sjúk­dóminum geti bara framkvæmt. Þarf núna alla tíð að ganga í þröngum bjúg­sokkabuxum en það er eina sem Sjúkatryggingar Íslands niður­greiða 70 prósent af heildar­verði þeirra en stk kostar 109.890 kr og fæ eg 3 á hverju ári. Síðan er ekki nóg að fara í eina aðgerð úti heldur þarf ég að fara allavega í 3-4. Hver aðgerð kostar um 6000 evrur sem ég þarf að greiða og inní því er ekki hótel í 10 nætur og flug. Finnst þetta fáránlega mikið og að Sjúkra­tryggingar hjálpa ekkert við þetta.

Ég fæddist inní þennan heim glaðlynd stelpa en frá því ég fór á kynþroska­skeið þá hef ég verið stans­laust að rífa sjálfan mig niður og með ömurlegt sjálfs­traust. Á þessum tíma fór ég út að hlaupa 2-3 á dag. Stelpan sem skyldi ekkert af hverju fæturnir hennar fóru að stækka óvenju­lega mikið. Síðan þá fór hún að hata líkams­parta á sjálfum sér og reynir að gera allt til þess að fela þá ennþá í dag. Fólk segir alltaf þú ert svo falleg þú átt að vera sátt með þig. Sagði aldrei að ég væri ljót en ég hef verið oft mjög dugleg í ræktinni og í mataræði en alltaf eitthvað sem ég næ ekki af mér sama hvað ég legg á mig. Það er ekki allt svart og hvítt eins og þú ert það sem þú borðar því hef oft lifað hollara líferni en margir og ekki náð árangrinum sem ég hefði átt að ná og tónast eins og þeir sem æfa minna en ég. Hef oft fengið að heyra það þegar ég er dugleg þú þarft bara að leggja ennþá meira á þig sem er mjög erfitt þegar maður leggur sitt besta í hlutina. Fólk furðar sig oft á því af hverju ég er svona picky á myndir og afhverju ég vill sjálf ekki vera á hópmyndum auk þess af hverju ég cropa hendurnar mínar af myndum þá er þetta ein af ástæðunum.

Sjúk­dómurinn hendir bara konur við kynþroska. Hef alltaf þurft að passa mig endalaust með það að bæta ekki á mig því þessi sjúkdómur fjölda­framleiðir fitu­frumur umfram eðlilegt mark. Þótt ég fari í aðgerðirnar þá mun ég alltaf þurfa berjast gegn þessu sama hvað ég er gömul. Þetta verður samt ekki eins slæmt og í byrjun og get ég ekki beðið eftir að komast í aðgerðir en biðin getur verið stundum 2 ár hjá sérfræðingi. Vill bara að fólk dæmi ekki ef eitthver er stór eitthverstaðar að hann sé ekki duglegur að sjá um sig því það er margt sem getur verið bak við annað en leti eins margir halda þegar þeir sjá fitu. Dæmum aldrei því við vitum aldrei að fullu hvað fólk er að ganga í gegnum. Er ég mjög stolt af mér að opna mig því nánast enginn kona þorir að segja frá þessu nema á lokuðum síðum á fb þannig enginn furða að flestir vita ekkert um sjúk­dóminn. Þurfti bara koma þessu frá mer því er búið að liða mjög illa með þetta og vera lítil í mér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá