Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Anita Briem, leikkona: „Ég vildi alls, alls ekki fara til baka“

Aníta Briem.
Aníta Briem. Mynd: Skjáskot

Anita Briem, leikkona segir að það sé best að búa á Íslandi og segist ekki vera á leiðinni út til Hollywood aftur í bráð. Það er þó nóg að gera hjá leik­konunni sem var að klára tökur á Íslenskri kvikmynd sem verður frumsýnd í lok mars. Myndin heitir Skjálfti, en svo er hún einnig að skrifa nýja sjónvarps­seríu.

Anita ræddi um það hvers vegna hún flutti frá Hollywood og aftur heim til Íslands eftir 13 ára dvöl vestanhafs í spjalli við Ísland vaknar í morgun sem Rósa Margrét Tryggva­dóttir tók saman. Sagði hún að það hafi tekið á og verið áhugavert að búa úti en að langbest væri að búa heima á Íslandi. Býst hún ekki við að flytja aftur út. Hún leikur aðal­hlutverk í væntanlegri kvikmynd sem heitir Skjálfti og verður frumsýnd 31. mars. Sjálf er Anita að skrifa sjónvarps­seríu í samstarfi við framleiðslu­fyrirtækið Glass River en hún ræddi um þetta allt á K100.

„Það er bara langbest að vera hér,“ sagði Anita sem segir ótrúlega mikilvægt fyrir 8 ára dóttur hennar að geta alist upp með ömmu sinni og afa og stór­fjöl­skyldunni.

Ég átti heilt líf þar

„Ég kom hingað í byrjun 2020 með tvær ferða­töskur til að taka upp þessa mynd, Skjálfta, sem er verið að fara frumsýna eftir tvær vikur. Við tókum upp myndina og svo átti ég að fara heim aftur. Þegar við vorum á setti, þegar við vorum að taka upp fyrir tveimur árum síðan. Þá man ég að ég sat í stólnum hjá Kristínu Júllu í sminki og þá sagði hún: Anita, það er komið fyrsta tilfellið af Covid á Íslandi. Þannig að ég fór aldrei til baka. Og alltaf þegar það átti að nálgast það að fara heim til mín aftur. Ég átti heilt líf þar og maðurinn minn var þar. Þá fann ég alltaf meira og meira að ég vildi alls, alls, alls ekki fara til baka. Ég fann bara svo sterkt að hér átti ég að vera,“ lýsti Anita einlæg í viðtalinu

Þó að fólk sé frægt þá gerir það ekkert að betri manneskjum

„Því eldri sem þú verður verður auðveldara að forgangs­raða og virkilega vita hvað þér finnst mikilvægt,“ sagði Anita.

„Dóttir mín var svona fimm ára þegar ég fór virkilega að hugsa hvað ég vildi vera. Mun dóttir mín líta á sig sem Ameríkana eða Íslending? Það er mikill munur að alast upp í þessum heimum,“ sagði hún.

Aðspurð um fræga fólkið í Hollywood benti hún réttilega á að þetta væri allt saman fólk.

„Þetta er allt saman fólk. Þó að fólk sé frægt þá gerir það ekkert að betri manneskjum eða áhuga­verðari manneskjum,“ sagði Anita.

Búin að vera ótrúlega lánsöm

Hún staðfesti að það sé nóg að verkefnum í gangi hjá henni um þessar mundir.

„Ég er búin að vera ótrúlega lánsöm og ég er svo þakklát á hverjum einasta degi að ég er búin að fá að vinna með svo dásamlegu kvik­myndagerðar­fólki á Íslandi,“ sagði Anita og nefndi meðal annars Tinu Hrafns­dóttur leik­stjóra Skjálfta. Hún ræddi um myndina og frábærar viðtökur hennar á erlendum kvikmynda­hátíðum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá