Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Kona dæmd í fangelsi fyrir mansal: Setti stjúpbörn sín í nauðungarvinnu og stal launum þeirra

Héraðs­dómur Reykjaness hefur dæmt konu í fjögurra ára fangelsi fyrir mansal, brot í nánu sambandi og peninga­þvætti. Konan neyddi þrjú stjúpbörn sín til nauðungar­vinnu samkvæmt dómnum og ber að greiða hverju þeirra bætur. Konan var einnig ákærð fyrir brot gegn fjórða stjúpbarninu en var kröfum þess barns vísað frá dómi. Vísir greinir fyrst frá málinu.

Samkvæmt dómnum voru brotin framin yfir um tveggja og hálfs árs tímabil, frá apríl 2018 til nóvember 2020.

Konan útvegaði stjúpbörnum sínum, sem eru erlendir ríkis­borgarar, dvalar­leyfi hér á landi og flutti þau til landsins. Hún útvegaði þeim síðan störf hjá fyrirtæki þar sem hún starfaði bæði sem verk­stjóri og stýrði daglegum rekstri.

Konan lét þrjú stjúpbarna sinna vinna hjá fyrir­tækinu í allt að þrettán klukku­stundir á dag, sex til sjö daga vikunnar. Fjórða barnið lét hún vinna í allt að tvær klukku­stundir á dag, þrjá daga vikunnar.

Þau laun sem börnin fengu greidd fyrir störf sín stal konan síðan af þeim. Það gerði hún ýmist með því að millifæra peninginn af reikningum þeirra yfir á sína eigin reikninga og greiðslu­kort, eða með því að láta börnin taka peninga út úr hrað­bönkum. Um er að ræða rúmlega 16 milljónir króna.

Konan var einnig sakfelld fyrir brot í nánu sambandi og brot á barna­verndar­lögum vegna framkomu sinnar við stjúpbörnin. Hún er sögð hafa ítrekað gert lítið úr börnunum á sérlega sársauka­fullan og meiðandi hátt með því að kalla þau aumingja, öskra á þau bæði á vinnu­staðnum og á heimilinu, banna þeim að stunda tómstundir og eyða tíma með vinum sínum. Konan er jafnframt sögð hafa meinað tveimur barnanna að fara í framhalds­skóla að grunn­skólanámi þeirra loknu. Hún hafi einnig hótað því að senda börnin til heima­landsins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá