Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Ómar botnar ekkert í ríkisstjórn Katrínar: „Ættu að vera hin „heilögu vé“ Íslands“

Ómar Ragnarsson gagnrýnir ríkis­stjórn Katrínar Jakobs­dóttur vegna fyrirætlun þeirra um frekari virkjanir. Talar Ómar um hin „heilögu vé“ Íslands og á þá við fossa og fljót og fleira í náttúru Íslands sem yrði fórnað fyrir megavött.

Ómar Ragnarsson, fyrrum fjölmiðla­maður og skemmtikraftur heldur úti bloggsíðu þar sem hann skrifar færslur við fréttir. Eitt af ástríðum Ómars í gegnum tíðina hefur verið náttúru­vernd og má sjá á nýjustu færslunni að sú ástríða er ekkert að slokkna hjá honum.

Færslu dagsins skrifar Ómar við frétt Morgun­blaðsins um erfiðan vatns­búskap Lands­virkjunar. Hinn aldni skemmtikraftur og fjölmiðla­maður bendir á muninn á Banda­ríkjunum og Noregi og svo Íslandi þegar kemur að náttúru­vernd. Þá bendir hann á að Bandaríkja­menn kaupi raforku af okkur til þess að geta varðveitt sína náttúru, á kostnað okkar. Hér fyrir neðan má sjá færsluna í heild sinni:

„Það er lærdóms­ríkt að sjá muninn á orku­stefnunni, sem nú er boðuð hér á landi eins og trúboð vegna sveiflna í vatns­búskap landins og loftslagsvár og síðan forganga­röðun þjóða á borð við Banda­ríkin og Noreg.

Banda­ríkin eiga lang­stærsta orkubúnt Ameríku í gufuafli og vatnsafli Yellowstoneþjóðgarðsins, og óvirkjuðu vatnsafli Coloradoflljóts. En þeir hafa síðan fyrir hálfri öld forgangs­raðað sínum málum eftir gagngerar rökræður, að Yellowstone og Miklagljúfur / Marmara­gljúfur séu „heilög vé, sem aldrei verði snert.“

2002 lauk miklum deilum um vatnsafl í Noregi með þeirri yfir­lýsingu Kjell Magne Bondevik forsætis­ráðherra, að „tími stórra vatnsafls­virkjana í Noregi væri liðinn.“ Þar munar mest um tröll­auknar fyrir­ætlanir þeirra um að virkja allt hið gífurlega vatnsafl norska hálendisins á svipaðaðn hátt og hér var gert með Kára­hnjúka­virkjun.

Í gær mátti heyra bæði forsætis­ráðherra og umhverfis­ráðherra Íslands hampa fyrirætlunuum um að setja virkjanir upp á meira 3000 megavött í forgang fram yfir það sem ættu að vera hin „heilögu vé“ Íslands, náttúru­verðmæti, sem eiga sér engan sinn líka í víðri veröld vegna samspils elds og íss.

Bandaríkja­menn kaupa raforku af okkur til þess að geta varðveitt sín heilögu vé, þannig að við erum að hjálpa þeim til þeirrar varð­veislu með því að fórna mun meiri náttúru­verðmætum á Íslandi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá