Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Uppnám á bílastæði við Costco: Ólafur dæmdur fyrir að sparka í bíl gamalmennis

Ólafur Arnarson vill að gerð verði ítarleg úttekt á verkum fráfarandi ríikisstjórnar.
Ólafur Arnarson vill að gerð verði ítar­leg úttekt á verkum frá­far­andi ríikis­stjórnar.

„Ég hef verið að reyna að ná í Ólaf, en hann skellir bara á mig. Hann ætlar bara ekkert að gera í þessu,“ segir Hafsteinn Hafsteinsson, eldri borgari og fyrr­verandi forstjóri Landhelgis­gæslunnar, í Mogganum um samskipti sín við Ólaf Arnarson, pistla­höfund og fyrr­verandi formann Neytenda­samtakanna.

Þarna er vísað til þess að Ólafur hafi fyrir tæpum þremur árum veist að Hafsteini, sem þá var rúmleg áttræður, vegna deilu um bílastæði við Costco. Hafsteinn skaut bifreið sinni inn í stæðið þegar það losnaði en þá birtist Ólafur, ósáttur og sagði Hafstein hafa tekið bíla­stæðið af honum þegar hann beið átekta með blikkandi stefnu­ljós.

„Ég sagðist ekki hafa séð hann en fékk reiði­lestur frá honum sem ég vil ekkert hafa eftir. Hann nálgaðist mig mjög ógnandi og sparkaði í aftur­hurðina á bíl mínum og dældaði hana. Mér fannst ég lítið geta gert og settist inn í bílinn“.

Ungur maður bankaði á gluggann hjá Hafsteini og sagðist hafa orðið vitni að þessu. Hafsteinn hringdi í lögregluna og gaf skýrslu. Dómur féll í málinu í maí 2020 þar sem Ólafi var gert að greiða ríkis­sjóði 95.000 krónur og allan sakar­kostnað málsins, 350.000 krónur. Kröfu Hafsteins um greiðslu viðgerðar­kostnaðar á bílnum var vísað frá þar sem gögn þóttu vanreifuð, vegna áætlaðs kostnaðar.

„Svo birtir Frétta­blaðið, þar sem Ólafur skrifar pistla, frétt í janúar 2020 þar sem hann segist alsaklaus. En því var ekkert fylgt eftir þegar dómur var felldur. Ég hef rætt þetta við ritstjóra Frétta­blaðsins og sent honum þrjú bréf, en þó að hann hafi fullyrt við mig að hann svaraði öllum bréfum þá heyrist ekki múkk frá honum,“ hefur Mogginn eftir Hafsteini.

Morgun­blaðið hafði samband við Ólaf, sem nú starfar sem blaða­maður á Frétta­blaðinu, en hann vildi hann ekki láta hafa neitt eftir sér í tengslum við málið.

Mannlíf reyndi einnig að heyra í Ólafi en ekki náðist í hann fyrir ritun fréttarinnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá