Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Skátahöfðinginn Harpa Ósk Valgeirsdóttir: „Er alltaf með fæðingatöskuna í skottinu“

Harpa Ósk Valgeirsdóttir
Harpa Ósk Val­geirs­dóttir

„Það eru mörg verkefni sem mig langar til að koma til leiðar og sem skáta­höfðingi er ég formaður stjórnar Bandalags íslenskra skáta og hef þá betra tækifæri til þess að ýta á eftir þessum verkefnum,“ segir Harpa Ósk Valgeirs­dóttir sem var kjörin nýr skáta­höfðingi Íslands fyrr í þessum mánuði. „Ég tel mig líka hafa yfirgrips­mikla þekkingu á starfi okkar og hvar megi bæta stöðuna og er tilbúin að leggja mig fram til að gera skáta­starfið að kröftugu æskulýðs­starfi sem sé í boði fyrir alla krakka sem hafa áhuga.“

Skáta­æv­in­týrið er með því skemmti­legra sem hægt er að taka þátt í.

Hverju vill hún koma til leiðar varðandi skátana?

„Skáta­hreyfingin veitir börnum og ungu fólki einstakt tækifæri til að efla sig á sviði leiðtoga­þjálfunar, verkefna­stjórnunar, lýðræðis­vitundar og í nytsamlegri færni á ýmsum sviðum. Þessi þjálfun fer fram í gegnum athafnanám úti í nátt­úrunni í góðra vina hópi með stuðningi full­orðinna eftir því sem við á. Allir eru velkomnir til starfa sama hvaða aldur, kyn, kynþáttur eða uppruni. Það er enginn varamanna­bekkur, allir geta fundið verkefni við hæfi og skáta­ævintýrið er með því skemmtilegra sem hægt er að taka þátt í; þetta er áhugamál sem endist út ævina. Skáta­hreyfingin er alþjóðleg hreyfing og það eru miklir mögu­leikar í boði fyrir ungt fólk á alþjóða­vettvangi skáta eins og þátttaka á alheims­mótum, í alþjóð­legum skáta­miðstöðvum og í ýmiss konar hjálpar­starfi.“

Nýr skáta­höfðingi Íslands er spurður út í áherslur hans.

„Í stuttu máli vil ég skerpa sérstöðu skáta­hreyfingarinnar, efla ungt fólk til ábyrgðar, framkvæmda og lýðræðislegrar hugsunar og vera til staðar fyrir þá skáta og foringja sem þurfa stuðning eða hvatningu í sínu starfi. Ég vil að skáta­hreyfingin sé aðgengileg börnum og ungmennum um allt land óháð búsetu, getu eða uppruna.“

Harpa Ósk segir að skáta­starfið gefi henni mjög mikið. „Ég nýt þess að starfa í hópi með ungu fólki og læri stöðugt af því. Skáta­starfið gefur mér líka tækifæri til að eiga sameiginlegt áhugamál með allri fjöl­skyldunni; mömmu, systrum mínum, manninum mínum og krökkunum mínum.“

Hvað eru skátarnir í huga nýs skáta­höfðingja?

„Mín önnur fjöl­skylda og lífs­stíllinn minn.“

Ólík færni

Harpa Ósk segir að móðir sín hafi upphaf­lega kynnt sig fyrir skátunum þar sem hún var starfandi sveitar­foringi á Akranesi þegar Harpa Ósk var lítil. „Ég byrjaði á því að fara fjögur sumur í röð í sumar­búðir skáta á Úlfljóts­vatni og fékk þar góða kynningu á skáta­starfinu og öllum ævintýra­heiminum í kringum skátana. Ég byrjaði svo sjálf að taka þátt í vikulegu starfi í Ægisbúum, í Vesturbæ Reykja­víkur, þegar ég var 12 ára árið 1993.“

Það er reynsla og kunn­átta sem fylgir manni alla ævi.

Hvað er eftir­minnilegast frá fyrstu árunum? Hvað lærði Harpa Ósk og hvernig breytti skáta­starfið henni?

„Fyrstu árin fannst mér spennandi að kynnast allri þessari ólíku færni sem var verið að kenna, stjörnu­merkin, skyndi­hjálp, að læra að útbúa sig fyrir útilegur og þekkja veðrið og læra að gera hnúta til að búa til stórar byggingar án hamars og nagla. Svo held ég að það hafi verið sjálf­stæðið sem kom með allri þessari þekkingu sem fékk mig til að halda áfram. Ég varð foringi 13 ára eins og flestir gerðu á þeim tíma og þá fékk maður ákveðna ábyrgð í hendur og lærði verk­efnastjórn og að hafa yfirsýn yfir verkefnin. Það er reynsla og kunnátta sem fylgir manni alla ævi.“

Verkefnin hafa verið mörg.

„Ég hef verið bæði í æskulýðs­starfinu sem sveitar­foringi og var svo félags­foringi Ægisbúa; að vinna með krökkum og fara í útilegur. Svo fór ég að kenna á leiðtoga­námskeiðum og stjórnaði vinsælum unglinga- og ungmenna­námskeiðum um árabil. Síðustu ár hef ég verið að horfa á umgjörð skáta­starfsins og fara á dýptina í inni­haldið í starfinu okkar. Ég kláraði nýlega með góðum hópi að vinna starfs­grunninn okkar í aðgengilegt form og það stuðnings­efni fá félögin svo fyrir haustið. Ég býst við að það muni auka kraftinn í skáta­starfinu til muna.“

Harpa Ósk er gift Óskari Þóri Þráins­syni og eiga þau þrjú börn. Svo á fjöl­skyldan hundinn Pílu sem er af tegundinni Smooth Collie.

„Skáta­starfið og útivist er fjölskyldu­áhugamálið okkar en sjálf sit ég og smíða víravirki þegar ég þarf að taka mér pásu frá ysi og þys hvers­dagsins.“

Rúmlega 300 börn

Skáta­höfðingi Íslands starfar sem ljósmóðir.

„Ég lærði í gegnum skáta­starfið að vera ávallt viðbúin að hjálpa öðrum. Þegar ég fór að velta fyrir mér háskóla­námi komst ég að þeirri niður­stöðu að mig langaði að vera til staðar fyrir fólk þegar það þyrfti helst á stuðningi að halda og akkúrat þar starfa ljósmæður; í hjarta mikil­vægustu reynslu fólks á ævinni. Mér finnst eftir­minnilegast í hjúkrunar­náminu hvað það nám er yfirgrips­mikið og fjöl­breytt og sem ljósmæðra­nemi lærði ég hvað samskipti skipta miklu máli, hvert orð og snerting hefur áhrif og það er svo mikilvægt að vanda sig þar.“

Harpa Ósk vinnur hjá Björkinni sem veitir samfellda ljósmæðra­þjónustu á Fæðingar­stofunni Síðumúla og í heima­fæðingum auk þess að veita heima­þjónustu í sængur­legu og bjóða upp á námskeið og ráðgjöf fyrir verðandi foreldra.

Það mynd­ast miklu dýpri tengsl.

„Ljósmæðra­bekkurinn minn útskrifaðist rétt eftir banka­hrunið og það var ráðningar­bann á Land­spítalanum. Við stofnuðum þá Björkina sem okkar starfs­vettvang. Ég fór svo að vinna úti á landi, svo á vöku­deildinni og í Hreiðrinu og kom aftur í Björkina þegar við hófum undir­búninginn við að opna fæðingar­heimilið okkar í Síðumúla. Það er nú búið að vera starfandi í fimm ár og þar hafa nú fæðst yfir 300 börn og sumar fjöl­skyldur eru að koma til okkar í annað og þriðja sinn. Við erum einnig að sinna fjöl­skyldum í heima­fæðingum og samtals eru þetta yfir 1.000 fjöl­skyldur sem hafa verið hjá okkur í þjónustu á meðgöngu, í fæðingu og í heima­þjónustu eftir fæðingu síðan við opnuðum fæðingar­heimilið 2017. Það er einstakt tækifæri að fá að vinna í þessari samfelldu þjónustu, að fá að kynnast fólki á meðgöngunni og kynnast bara nokkuð vel, vera svo til staðar fyrir þau í fæðingunni og fylgja þeim fyrsta spölinn með litla barnið. Það myndast miklu dýpri tengsl og mér finnst ég geta gefið meira af mér í þess konar þjónustu­formi.“

Hverjir eru helstu kostir og svo ókostir heima­fæðinga?

„Helstu kostirnir eru að fjöl­skyldan er á heima­velli, konan sem er að fæða er umkringd sínu eigin dóti með fólki sem hún þekkir og treystir og þannig virka fæðingar­hormónin svo vel.  Helstu ókostirnir eru að þetta hentar ekki öllum, við mælum með að konur séu hraustar í grunninn, í eðlilegri meðgöngu og engir áhættu­þættir til staðar.“

Ljósmóður­starfið gefur skáta­höfðingjanum mikið.

„Það eru auðvitað bara mikil forréttindi að fá að upplifa fæðingu barns og að sjá foreldra verða til þegar þau taka á móti barninu sínu. Þetta er einstök stund og alltaf svo sérstök upplifun þó maður sé að fara í aðra eða þriðju fæðinguna þann daginn  Þetta hefur líka svo mikinn samhljóm með skáta­starfinu; að vera ávallt viðbúin því ég er alltaf með fæðinga­töskuna í skottinu, tilbúin í næsta útkall.“

Þá sé mik­il­vægt að halda ró og ganga örugg­lega til verks.

Stundum koma upp krefjandi aðstæður og segir Harpa Ósk að þá sé mikilvægt að halda ró og ganga örugglega til verks. „Með góðri þjálfun, þekkingu og góðum samstarfs­aðilum er alltaf hægt að ljúka þeim verkefnum.“

Umræðan um mistök við fæðingar hefur verið áberandi að undan­förnu og segir Harpa Ósk að það sé auðvitað erfitt þegar slíkar umræður fara af stað. „Á sama tíma er mikilvægt að allir fái rými til að tjá sig um erfiða upplifun og stuðning til að vinna úr því. Og ég held að allar ljósmæður sem ég þekki séu tilbúnar til að hlusta.“

Hvaða lífs­reynsla hefur mótað skáta­höfðingjann og ljós­móðurina mest?

„Að vera ljósmóðir sem starfar utan hátækni hef ég lært mjög mikið af bæði samstarfs­konum mínum og fjöl­skyldunum sem ég hef sinnt og svo að vera til staðar þegar fólk er að ganga í gegnum krefjandi lífs­reynslu og að læra að vera til staðar fyrir konu bæði andlega og líkamlega þegar hún er að fæða barnið sitt. Það sem ég hef lært í þessu starfi hefur áhrif á samskipti mín við alla í kringum mig, að læra að fólk á alls konar sögu og hefur upplifað ýmislegt um ævina og það er mikilvægt að mæta öllum þar sem þeir eru.“

Hverjir eru framtíðar­draumarnir?

„Stór og öflug skáta­hreyfing sem hefur áhrif á samfélagið sitt til góða og stuðlar að betri heimi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá