Raunveruleikastjarnan Kourtney Kardashian og tónlistarmaðurinn Travis Barker eru sögð hafa farið með hjúskaparheitin í kapellu í Las Vegas aðfararnótt mánudags. Vefmiðillinn TMZ greinir frá þessu.
Samkvæmt heimildum mættu þau í kapelluna One Love Wedding Chapel seint á sunnudagskvöldið, öllu heldur aðfararnótt mánudags, um klukkan hálf tvö, nokkrum klukkustundum eftir að Travis hafði spilað á Grammy-verðlaunahátíðinni sem haldin var í borginni.
Eitthvað er þó á reiki hvort brúðkaupið hafi yfir höfuð verið löglegt. Sagt er frá því á TMZ að parið hafi ekki verið með hjúskaparvottorð þegar þau bundust hvort öðru í kapellunni. Til þess að hjónabandið hafi verið löglegt þyrfti hjúskaparvottorð vitaskuld að vera til staðar. Í annarri frétt er því haldið fram að hjúskaparvottorð hafi verið meðferðis og því allt klappað og klárt þegar parið setti upp hringana.
Þau Kourtney og Travis eru sögð hafa mætt á staðinn með eigin ljósmyndara og teymi lífvarða. Samkvæmt heimildarmönnum þótti þeim afar mikilvægt að Elvis-eftirherma gæfi þau saman. Það var því rokkarinn goðsagnakenndi, eða öllu heldur tvífari hans, sem lýsti þau hjón.
Heimildir herma að veisluhöld og ýmsir viðburðir séu áætlaðir í tilefni af giftingunni. Travis bað Kourtney um að giftast sér í október, í fríi sem parið fór í saman til Montecito.
Kourtney og Scott Disick, barnsfaðir hennar og fyrrum maki, giftu sig aldrei. Þetta er hins vegar þriðja hjónaband Travis.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir