Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Gunnar var skotinn í hnakkann af hermanni: „Nóg komið af óhappaverkum „verndara“ okkar“

Pósthúsið á Camp Hálogaland
Póst­húsið á Camp Háloga­land

Laugar­daginn 14. mars árið 1942 gerðist sá hroðalegi atburður að amerískur hermaður skaut Gunnar Einarsson í hnakkann í gegnum bílrúðu í bifreið sem Gunnar var farþegi í. Gunnar lést af sárum sínum.

Dagblaðið Verka­maðurinn skrifaði harðorða frétt, viku seinna, þann 21. mars enda vakti málið óhug og reiði Íslendinga um allt land.

„Hroða­legur glæpur.

Amerískur hermaður myrðir íslenzkan mann.

S.l. laugardags­kvöld gerðist sá atburður í Sogamýri við Reykjavík, að amerískur varðmaður skaut Gunnar Einarsson, starfs­mann hjá Kol & Salt h.f., til bana, þar sem hann var á ferð, í bíl, með kunningja sínum, Magnúsi Einars­syni, framkvæmda­stjóra Dósa­verksmiðjunnar.
Fara hér á eftir helstu atriðin úr skýrslu, sem Magnús Einarsson hefir gefið saka­dómara um þetta mál.

Gunnar Einarsson var staddur hjá Magnúsi, á laugardags­kvöldið, en hann býr að Soga­mýrarbletti 54. Kl. 10.15 ætlaði Magnús að aka Gunnari heim í bifreiðinni R 1183, en hún er með hægri handar stýri. Ók Magnús bifreiðinni, en Gunnar sat við hlið hans. Þeir ætluðu að koma við í Laufskálum á leiðinni, en þeir liggja við Engjaveg, en að honum liggur
tröðningur frá Suður­lands­brautinni. Liggur troðningurinn rétt vestan við herbúðirnar „Háloga­land Camp“, en þar dvelja amerískir hermenn. Rétt fyrir norðan þann stað, þar
sem beygt er út af Suður­lands­brautinni voru þeir stöðvaðir af amerískum varðmanni. Kom hann hægra megin að bílnum — þeim megin er Magnús sat — og inti þá eftir hvert förinni væri heitið. Svöruðu báðir samtímis, en Magnús segir, að hann skilji ekki vel ensku og tók hann því ekki vel eftir, hvað þeim Gunnari og varð­manninum fór á milli, en því lauk á þann veg, að varð­maðurinn sagði „all right“ og leyfði þeim að halda áfram. En þegar þeir höfðu ekið um fjórar bifreiða­lengdir stöðvaði annar varðmaður þá og kom hann vinstra megin að bílnum — Gunnars megin — og talaði við hann. Sögðu þeir þrjár til fjórar setningar hvor, og fór varð­maðurinn síðan frá bílnum, svo ekki var hægt að skilja þetta öðru vísi, en að þeir mættu halda leiðar sinnar með samþykki hans. Ók Magnús þá af stað, en þegar hann hafði ekið um 3—4 bíla­lengdir kvað við skot. Áleit hann að það væri þeim óviðkomandi, en
stöðvaði þó bifreiðina til vonar og vara. Tók hann þá eftir því að framrúða bílsins var mölbrotin og í sama mund hné höfuð Gunnars á vinstri öxl hans. Leit hann þá framan í Gunnar og sá, að blóð streymdi úr vitum hans, og þegar hann þreifaði á höfði hans fann
hann skotsár á hnakkanum. Fór Magnús strax úr bílnum, en í því bili kom hópur Bandaríkja­hermanna þarna að og tóku þeir Gunnar út úr bílnum. Virtist Magnúsi hann þá látinn, en hann mun ekki hafa andast fyr en um klukkan 3 um nóttina.

Þessi atburður hefir vakið hrylling og viðbjóð um allt land. Ameríski herinn hefir áður framið hér óhæfuverk, en nú er gengið feti framar og virtist mönnum þó áður nóg komið af óhappa­verkum „verndara“ okkar. Enginn íslend­ingur fær skilið, að ameríska hernum sé nauðsynlegt að myrða íslenska menn til þess að vernda öryggi ameríska hersins. Vér fáum ekki séð, að öryggi ameríska hersins sé stefnt í hættu, þó látið sé vera að beita skot­vopnum gegn vopn­lausum Islendingum. Reynsla bretska setu­liðsins hér á landi bendir ekki til þess að nauðsynlegt sé að beita glæpamanna­aðferðum í umgengni við þá menn, sem eru undir „vernd“ ensku og amerísku setu­liðanna. Það væri betur, að ameríski herinn sýndi meiri dugnað, í barátt­unni gegn Japönum, en að skjóta vopnlausa íslendinga aftan
frá. Slíkur atburður, sem þessi má ekki endurtaka sig. íslenska þjóðin krefst þess, að gerðar verði tafar­laust ráðstafanir til að tryggja að slíkt endurtaki sig ekki. Ríkis­stjórnin verður að halda fast og skörulega á rétti íslendinga í þessu máli, og ekki láta þann málflutning niður falla fyr en trygt er að amerísku hermennirnir komi fram í viðskiftum sínum við íslendinga,
sem fulltrúar siðmenningar­þjóðar en ekki sem fyrir­litlegir glæpamenn. Á þann eina hátt verður best borgið öryggi íslendinga og öryggi og sæmd ameríska hersins.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá