Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Hin íslensku Bonnie og Clyde – Rændu 100 milljónum og skyldu eftir ógreidda hótelreikninga

Parið Sigurjón Pétursson og Sigríður Hákonar­dóttir Waage vöktu mikla athygli sumarið 1995 en þau fengu viðurnefnið „Hin íslensku Bonnie og Clyde“

Sigurjón og Sigríður voru handtekin fyrir að stela um 70 milljónum frá verslunar­félaginu Íslensk-ameríska þan 28 júní árið 1995. Fengurinn var þó að mestu í víxlum og ýmsum viðskipta­skjölum sem erfitt hefur verið að koma í verð, fyrir­tækið tapaði þó miklum fjármunum á því að láta ógilda alla þessa pappíra.

Parið átti sér langan sakaferil fyrir innbrotið og voru bæði í alvarlegri fíkniefna­neyslu. Eftir innbrotið héldu þau á Austur­land þar sem þau brutust inn í fjögur fyrirtæki. Skrif­stofurnar hjá Kaupfélagi Vopna­fjarðar, Bókhalds- og viðskiptaþjónustu Kristjáns Magnússonar, verslunina Kauptún og flugstöðina á Vopna­firði.

„Þaðan tóku þau nokkur ávísanahefti og samtals 75 þúsund krónur í peningum. Einnig tóku þau ýmsan varning, talsvert af geisla­diskum, matvæli auk mikils magns af áfengi og bjór sem þau komist yfir í flugstöðinni. Þetta gerðist fimmtudaginn 6. Júlí,“ segir í ítarlegri grein Helgar­póstsins á sínum tíma.

Eins og áður sagði voru þau bæði langt leiddir fíklar en þau sprautuðu efnum í æð, það þótti mikill skandall árið 1995 enda sú neysla ekki nærrum því eins algengt og hún er í dag.

Sunnu­daginn 9.júlí sama ár braust parið inn í heilsu­gæslu­stöðina á Kirkjubæjar­klaustri þar sem þau lögðu hald á mikið magn lyfja, einkum morfín­lyfja sem ætla mátti að þau notuðu í neyslu.

Eftir þessa löngu ferð um landið náði lögreglan þeim loks í Grímsnesi. Í bílnum þeirra var mest allt þýfið. Lögreglan fann svo lyfin við veg á Grímsnesi þar sem parið hafði skilið þau eftir.

Áður en Sigurjón og Sigríður brutust inn í Íslensk-ameríska höfðu þau skilið eftir sig langa slóð af ógreiddum hótel­reikningum á Norður­landi, á milli staða óku þau á stolnum bíl sem þau fundu á Akureyri.

„Sigurjón og Sigríður eru vel þekkt innan lögreglunnar enda eiga þau langan afbrota- og fíkniefnaferil að baki, einkum Sigurjón. Hann er 31 árs gamall en hún 24 ára. Fyrir utan fíkniefnaneyslu er hann einkum þekktur fyrir mikla afkasta­getu í innbrotum,“ sagði í Helgar­póstinum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá