InnlentHemmi Gunn varð oft fyrir barðinu á kjaftasögum: „Feginn að komast í vinnuna eftir veikindin“17. janúar 2023 Hermann Gunnarsson var þjóðargersemi okkar Íslendinga. Alltaf kallaður Hemmi Gunn. Hann heillaði fólk með útgeislun sinni á marga vegu; í íþróttunum, sjónvarps- og útvarpsþáttunum og á sviðinu að skemmta, og á margan annan hátt – enda var maðurinn án hliðstæðu. Ævisaga Hemma Gunn kom út árið 2013, stuttu eftir að Hemmi lést, þetta sama ár. Margt brallaði Hemmi í gegnum...
InnlentMinkur kom upp úr klósettinu og réðist á Kolbein: „Hann gargaði á móti mér og stökk á mig“13. janúar 2023 Minkurinn er með slægari kvikindum þessa lands og ekki margir sem væru til í að mæta slíku rándýri á förnum vegi. Fimm ára sonur Kolbeins Sigurðssonar bónda á Hvítárholti var algjörlega grunlaus einn morguninn árið 1985 er hann hugðist nývaknaður ætla að pissa í klósettið. Upp úr klósettinu spratt það sem pilturinn taldi vera rottu. Hljóp hann til föður síns...
InnlentGrimmilegustu, ófyrirleitnustu og síðustu fjöldamorð Íslandssögunnar – Brytjuðu Baskana niður10. janúar 2023 Það var árið 1615 sem Íslendingar myrtu 31 baskneskan hvalveiðimann á Vestfjörðum, og hefur atburðurinn lengst af hefur verið kallaður Spánverjavígin, en í seinni tíð Baskavígin. Fjöldamorðin virðist ekki vera á meðal þekktustu atburða Íslands. Ekki frekar en sagan af Axlar-Birni, alræmdasta fjöldamorðingja Íslandssögunnar. Svo virðist sem Íslendingar vilji ekki fjalla mikið um atburði er gætu varpað skugga á sögu...
InnlentTveir fundust látnir í bíl við Slippinn6. janúar 2023 Þann 1. mars árið 1985 fundust félagarnir Einar Agnarsson og Sturla Lambert Steinsson látnir í bifreið í Daníelsslipp í Reykjavík. Hafði segldúkur verið breiddur yfir bifreiðina en niðurstaða rannsóknarinnar var sú að þeir hefðu svipt sig lífi með því að tengja slöngu við púströr bifreiðarinnar og sett hana inn í bílinn í gegnum hliðarrúðu. Þeir hafi sem sagt látist af...
InnlentLögreglumaður myrti konu sína í sturlunarástandi: Gekk á móti lögreglunni kviknakinn og blóðugur2. janúar 2023 Theodóra Kolbrún Ásgeirsdóttir fannst látin á tröppunum fyrir framan heimili sitt á Seyðisfirði, þann 24. mars 1971. Tvö börn hennar komu að henni. Maður hennar, lögreglumaðurinn Valgarður Frímann Jóhannsson, reyndist banamaður hennar en hún hafði verið stungin með hnífi. Kolbrún eins og hún var kölluð, var aðeins 37 ára er hún féll frá. Þau Valgarður höfðu flutt á Seyðisfjörð frá...
InnlentHlaut þriggja ára dóm fyrir að misnota blaðburðardreng: „Eruð þið ekki hræddir um líf ykkar?“30. desember 2022 Einn hataðasti maður Íslandssögunnar, Steingrímur Njálsson var alræmdur barnaníðingur sem hlaut sjö dóma fyrir barnaníð en talið er að fórnarlömb hans hafi verið að minnsta kosti 16 talsins. Þá hlaut hann tugi dóma vegna líkamsárása, fjársvika, þjófnað og fleira. Upp úr 2004 átti hann ekki í nein hús að vernda og bárust reglulega fregnir af því að hann væri sestur...
InnlentTveir lögreglumenn í Reykjavík gerðust ítrekað brotlegir í starfi: Dæmdir í skilorðsbundið fangelsi29. desember 2022 Ekki er óþekkt að lögreglumenn jafnt sem aðrir gerist brotlegir í starfi. Mál af þeim toga rata ekki alltaf í dómsal. Tveir lögreglumenn sátu þó undir kæru fyrir fimm brot í starfi, með því að hafa meðal annars notast við táragas að óþarfa og síðan logið til um aðstæður í skýrslu til að réttlæta brot sín. „Tveir lögreglumenn í Reykjavík...
InnlentHarmleikurinn á Suðurgötu: Sigurður myrti eiginkonu sína og börnin þrjú með eitri28. desember 2022 Þann 26 febrúar árið 1953 gerðist sá hryllilegi atburður í Reykjavík, að lyfjafræðingurinn Sigurður Magnússon, myrti konu sína og börn þeirra þrjú og tók svo sitt eigið líf með eitri. Tengdamóðir hans sem kom að þeim öllum látnum. Alþýðublaðið fjallaði um málið á sínum tíma en hafði eftirfarandi lýsingu eftir þáverandi sakadómara eins og það hét þá; „Í Suðurgötu 2...
Innlent„Stúlkur sem hafa samfarir við útlendinga gera sér ekki grein fyrir í hvaða hættu þær eru“27. desember 2022 Sumarið 1985 var ríkjandi ótti hér á landi um að stærstur hluti Íslendinga gæti smitast af alnæmi. DV fjallaði um málið á sínum tíma og ræddi meðal annars við yfirlækni á Landspítalanum; sá taldi mikla ógn steðja að: „Mér þykir í sannleika sagt of lítið gert úr þeirri hættu er stafað gæti af alnæmi hér á landi. Menn verða að...
InnlentÞorláksmessuslagurinn 1968 – Er ungkommar slógust við lögregluna23. desember 2022 Það var á Þorláksmessu árið 1968 að mótmælaganga var haldin í Reykjavík gegn Víetnam stríðinu sem þá stóð yfir. Lögreglan var ósátt við þá leið sem ganga átti með tilheyrandi truflunum í jólaösinni og sló í brýnu á milli mótmælendanna og lögreglunnar. Um 12 einstaklingar voru handteknir en nokkir einstaklingar úr báðum fylkingum hlutu minniháttar meiðsli. Hefur þetta kvöld verið...
InnlentFimm menn komu að hræðilegu flugslysi: „Ég held að þetta sé það versta sem við höfum lent í“22. desember 2022 Fimm manna hópur úr björgunarsveitum Kópavogs var fyrstur á vettvang hræðilegs flugslyss. Um borð í flugvélinni voru þrír þýskir feðgar en vélin brotlenti í klettabelti í 500 metra hæð í Eystra-Horni, þar kviknaði í henni, allir farþegarnir létust. Harmleikurinn átti sér stað í ágúst árið 1998. „Ég held að þetta sé það versta sem við höfum lent í. Annars er...
InnlentBörnin sem fæddust í sjúkrabílunum – „Þetta gerðist svo hratt – svo var þetta bara búið“22. desember 2022 Þau eru fjölmörg íslensku börnin sem hafa legið svo á að komast í heiminn að þau fæddust í sjúkrabílnum á leiðinni á spítalann. Fyrsta barn þessa árs fæddist til að mynda í sjúkrabíl á leið frá Dalvík til Akureyrar klukkan 00:23 á nýársnótt og var það stúlkubarn sem vó 14 merkur. Foreldrar ungu stúlkunnar, þau Elfa Sif Kristjánsdóttir og Ásgeir...