Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Börnin sem fæddust í sjúkrabílunum – „Þetta gerðist svo hratt – svo var þetta bara búið“

Börnin sem fæddust í sjúkrabílunum – „Þetta gerðist svo hratt – svo var þetta bara búið“

Þau eru fjöl­mörg íslensku börnin sem hafa legið svo á að kom­ast í heim­inn að þau fædd­ust í sjúkra­bílnum á leið­inni á spít­al­ann. Fyrsta barn þessa árs fædd­ist til að mynda í sjúkra­bíl á leið frá Dal­vík til Ak­ur­eyr­ar klukk­an 00:23 á nýársnótt og var það stúlku­barn sem vó 14 merkur.

For­eldrar ungu stúlkunnar, þau Elfa Sif Krist­jáns­dóttir og Ásgeir Frí­mann­son, búsett á Ólafs­firði, voru í sjö­tugs­af­mæli á Siglu­firði þegar móð­irin missti legvatnið. Hringt var á sjúkra­bíl og barnið fædd­ist í bílnum á miðri leið, í sveit­inni milli Dalvíkur og Akur­eyrar.

Elfa Sif Krist­jáns­dóttir og stúlkan hennar í sjúkra­bílnum á nýársnótt síð­ast­liðna.

Þau Elfa Sif og Ásgeir ræddu fæð­ing­una við RÚV í upp­hafi árs­ins. „Þetta var alls ekki skipu­lagt svona. Alls ekki. Það var bara þarna um tíu­leytið sem að ég missti vatnið og bara nokkrum mín­útum seinna voru sjúkra­flutn­inga­menn­irnir mættir og við náðum í ljós­móð­ur­ina á Dalvík keyrðum aðeins áfram en þurftum svo að stoppa og hún fædd­ist þarna 23 mín­útur yfir tólf á afleggjar­anum hjá Kálfs­skinni. Þetta var svona óvenju­legt gamlárs­kvöld fyrir manni,“ sögðu for­eldr­arnir ungu.

Í brekkunni á Sauðárkróki – Desember 2017

Það var þann 4. des­em­ber á árið 2017 sem lítil dama skaust bók­staf­lega í heim­inn í Hverf­is­brekkunni á Sauð­ár­króki.

Klukkan var 6:54 þegar útkallið kom, fyrsti for­gangur, barn á leið­inni.

Það voru sjúkra­flutn­inga­menn­irnir Yngvi Yngvason og Sig­ur­björn Björns­son sem mættu á heim­ili þeirra Ólafar Aspar Sverr­is­dóttur og Snorra Geirs Snorra­sonar, sem áttu von á sínu þriðja stúlku­barni.

Ólöf vakn­aði um klukkan fimm um morg­un­inn með mikla verki og ákvað að fara í sturtu í von um að það myndi slaka á verkj­unum, án árang­urs. Sagðist hún þó hrein­lega ekki hafa verið viss um að hún væri komin svo langt því henni fannst verkirnir ekki vera nógu reglu­legir. „Þegar for­eldrar mínir komu til að taka eldri stelp­urnar fór ég að gera mér grein fyrir því að ég þyrfti að fara remb­ast svo ég sagð­ist ekki vera fara á Akureyri.“

– Aug­lýs­ing –

Engin ljós­móðir var á vakt á Sauð­ár­króki og því náð­ist ekki í hana, sem Ólöf sagði hafa flækt stöð­una, auk þess að valda stressi og óvissu. Á end­anum bað Ólöf móður sína að keyra heim til ljós­móð­ur­innar og ná í hana.

Ólöf heldur á döm­unni sem lá svo mikið á að kom­ast í heim­inn, Snorri heldur á Emblu Nótt og á milli þeirra er elsta systirin í hópnum, Emilía Rós.

Ákveðið var að fara á Heil­brigð­is­stofnun Sauð­ár­króks (HSN) og taka stöð­una þar, í stað þess að bruna beint til Akur­eyrar á fæð­ing­ar­deild­ina, þar sem legvatnið var ekki farið.

„Ekki vorum við komnir langt þegar vatnið fór og Sibbi kallar: „Það er að koma!“, sagði Yngvi í við­tali við Feyki, hér­aðs­frétta­blað Norð­ur­lands vestra skömmu eftir þessa eft­ir­minni­legu vakt. Og það var mikið rétt. Barnið var svo sann­ar­lega að koma og fædd­ist það í sjúkra­bílnum í Hverf­is­brekkunni.

– Aug­lýs­ing –

Yngvi sagði hrærður frá því að þau öll hefðu verið í hálf­gerðu sjokki yfir hve hröð atburða­rásin var. „Við fórum að ann­ast barnið sem fór stuttu seinna að gráta, því­líkur léttir! Í þann mund mæta ljós­móðir og læknir og var ynd­is­leg stúlka fædd 21 mín­útu eftir að útkallið barst.“

Að sögn Ólafar var dóttir hennar ansi slöpp þegar hún mætti í heim­inn „en sjúkra­flutn­inga­menn, læknir og ljós­móðir stóðu sig frá­bær­lega að koma döm­unni almenni­lega í gang eftir allan hama­gang­inn.“ Hún sagði að þarna hafi alls ekki verið um drauma­stöðu að ræða og henni hafi þótt erfitt að vera ekki með fag­mann­eskju sér til aðstoðar.

Í dag er stúlkan litla sem var að flýta sér svo í heim­inn, hún Erika Mist, orðin fimm ára og er að sögn föður síns hraust og flott stelpa. „Henni virð­ist ekki hafa verið meint af þó hún hafi komið með hraði í heim­inn,“ sagði Snorri léttur í bragði í sam­tali við Mannlíf. Snorri er afar þakk­látur sjúkra­flutn­inga­mönn­unum og ljós­móð­ur­inni sem hann segir að hafi staðið sig frá­bær­lega þennan örlaga­ríka morgun.

Erika Mist er nú orðin stóra systir, en lít­ill bróðir kom í heim­inn í mars í fyrra. Honum lá ekki jafn mikið á og systur sinni, en fædd­ist samt á Sauð­ár­króki þó engin fæð­inga­deild sé þar. „Við vorum lögð af stað til Akur­eyrar en þá var ófært svo við þurftum að snúa við og hann fædd­ist hér á HSN,“ segir Snorri og bætir við „það tók þó pínu lengri tíma heldur en með systur hans.“

Í bílasalnum á slökkvistöðinni – September 2020

Slökkvi­lið höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins fékk heldur óvænta heim­sókn að kvöldi í sept­em­ber­mán­uði árið 2022 þegar boð barst frá ljós­móður á Land­spít­ala um að von væri á barns­haf­andi konu sem væri í þann mund að eign­ast barn.

For­eldr­arnir voru á leið á fæð­ing­ar­deild Land­spít­al­ans en sáu ekki fram á að kom­ast á leið­ar­enda í tæka tíð þar til barnið kæmi í heim­inn. Því beindi ljós­móðir, sem þau voru í síma­sam­bandi við, for­eldr­unum að slökkvi­stöð Slökkvi­liðs höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins í Skóg­ar­hlíð, og gerði slökkvi­liðs­mönnum við­vart um komu þeirra. Þeir tóku á móti for­eldr­unum í bíla­sal slökkvi­stöðv­ar­innar og fluttu kon­una úr heim­il­is­bílnum yfir á sjúkra­börur og áleiðis inn í sjúkra­bíl.

Litla stúlkan kom í heim­inn á slökkvi­stöð­inni í Skóga­hlíð. Mynd / Slökkvlið höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins.

Þegar í sjúkra­bíl­inn var komið dró heldur en ekki til tíð­inda því réttum tveimur mín­útum eftir kom­una þangað fædd­ist mynd­ar­stúlka á slag­inu 20:00. Sjúkra­bíll­inn stóð þá ennþá inni í bíla­salnum.

Á Laugarásvegki og í Grindavík – September 2016/Apríl 2002

Næt­ur­vakt slökkvi­liðs­ins á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hafði í nægu að snú­ast eina dimma nótt í sept­em­ber 2016 en sjúkra­flutn­inga­menn tóku á móti tveimur börnum seint um kvöldið og um nótt. Samkvæmt varð­stjóra hjá slökkvi­lið­inu var tekið á móti barni við Laug­ar­ás­veg um nótt­ina. For­eldr­arnir voru ekki komnir inn í sjúkra­bíl­inn þegar barnið ákvað að nú væri tíma­bært að koma í heim­inn.

Lítill drengur fædd­ist í apríl 2002 í sjúkra­bíl á leið­inni frá Grinda­vík til Heil­brigð­is­stofn­unar Suð­ur­nesja. Tveir sjúkra­flutn­inga­menn og læknir voru í bílnum og aðstoð­uðu móður við fæð­ing­una.

„Barnið fædd­ist svo ein­hver­staðar á leið­inni,“ sagði tals­maður sjúkra­flutn­ings­mann­anna í sam­tali við Vík­ur­fréttir. Bif­reiðin var ekki stöðvuð, heldur haldið áfram á Heil­brigð­is­stofnun þar sem fjöl­mennt lið tók á móti móður og nýfæddu barni.

Þetta var ekki í fyrsta skipti sem barn fæð­ist í sjúkra­bíl frá Grinda­vík en 12-13 árum áður fædd­ist barn í Grinda­vík­ur­bílnum við álverið í Straums­vík.

Náðu ekki á Selfoss – Ágúst 2021

„Ég vissi að þetta gæti alveg gerst hratt, þar sem fæð­ingin hjá elsta barn­inu mínu gekk líka mjög hratt, en ég átti ekki alveg von á því að þetta myndi ger­ast svona hratt.“

Þetta sagði Karen Ósk­ars­dóttir sem fæddi barn í sjúkra­bíl á Skeiða­vegi í ágúst 2021. Karen og eig­in­maður hennar, Jón Marteinn Finn­boga­son, búa í Skeiða- og Gnúp­verja­hreppi og það tekur þau sirka fjöru­tíu mín­útur að keyra á Selfoss. Þangað náðu þau ekki því litla stúlkan kom í heim­inn í sjúkra­bílnum á leið­inni, 13 merkur.

„Systir mín hringdi í mig rétt fyrir tíu um kvöldið og spurði hvort hún geti sofið rólega um nótt­ina. Ég var búin að vera með ein­hverja sam­drætti yfir dag­inn en ég bjóst ekk­ert við að vera fara af stað. Ég sagði henni að það væri ekk­ert að ger­ast og skellti á hana,“ segir Karen.

Jón Marteinn og Karen með litlu stúlk­una. Mynd / Aðsend

„Tuttugu mín­útum síðar hringdi ég í hana og sagði henni að verkirnir væru að versna og að við ætl­uðum að leggja af stað á Selfoss. Þegar við erum að leggja af stað, um klukkan hálf ell­efu, finn ég að verkirnir eru harðna og það verður alltaf styttra á milli,“ segir Karen.

Ákveðið var að klára fæð­ing­una í sjúkra­bílnum við Skál­holtsaf­leggjar­ann þar sem barnið var við það að fæð­ast. „Sex mín­útur fyrir mið­nætti var hún fædd. Allt gekk vel og allt fór vel. Ég var í góðum höndum með tvær ljós­mæður við hlið mér og þrjá sjúkra­flutn­inga­menn. Mér leið ekk­ert illa, leið bara eins og ég væri á spít­al­anum,“ sagði Karen og bætti við:

„En þetta gekk allt svo hratt yfir að maður gat ekki mikið verið að spá í því að fara í aðra stell­ingu. Þetta gerð­ist svo hratt – svo var þetta bara búið.“

Snjóruðningstæki á undan sjúkrabílnum – Mars 2013

„Þetta mun lík­lega seint gleym­ast“ sagði Guðberg­ur Rafn Ægisson í mars­mán­uði 2013 er Guðrún Sigríður Geirs­dóttir eign­að­ist son þeirra í sjúkra­bílnum á leið­inni á Sjúkra­húsið á Akureyri. Þau eru íbúar á Húsavík og var mikil ófærð á Vík­ur­skarði þessa nótt.

Þar að auki sátu tvær stór­ar bif­reiðar fast­ar á veg­in­um og því var ekki hægt að ryðja hann. Gripið var til þess ráðs að senda snjó­ruðn­ings­tæki á und­an sjúkra­bíln­um til að ryðja gömlu leið­ina yfir Dals­mynni í Fnjóska­dal.

Guðrún og Guð­bergur með litla dreng­inn í mars 2013.

Í sam­tali við Morg­un­blaði sagði Guðberg­ur að hon­um hafi vissu­lega ekki staðið á sama í þess­um óþægi­legu aðstæðum. „Við sáum ekk­ert hvar við vor­um vegna blind­hríðar. Við þurft­um oft að stoppa bíl­inn vegna þess að við sáum ekki á milli stika. Við vor­um bara ein­hvers­staðar í Dals­mynn­inu þegar barnið fædd­ist. Maður sá að þetta gekk vel og þá hugs­aði maður ekk­ert mikið um að maður væri stadd­ur út í óbyggðum.“

Fjölgaði um einn í sjúkra­bílnum – 16. ágúst 2019 og 2. jan­úar 2020

Farþegum fjölg­aði um einn í sjúkra­bíl Bruna­varna Suð­ur­nesja á ell­efta tím­anum að kvöldi 16. ágúst 2019. Sjúkra­flutn­inga­menn óku þá með þung­aða konu frá fæð­ing­ar­deild Heil­brigð­is­stofn­unar Suð­ur­nesja áleiðis til fæð­ing­ar­deildar Land­spít­al­ans.

Eitthvað lá barn­inu á að kom­ast í heim­inn og fæddi móð­irin það inni í sjúkra­bílnum á Reykja­nes­braut­inni. Ljós­móðir var með í för, og sagði varð­stjóri Bruna­varna Suð­ur­nesja að móður og barni hafi heils­ast vel eftir bíl­ferð­ina.

Sjúkra­flutn­inga­menn tóku á móti dreng inni í sjúkra­bíl fyrir utan Land­spít­al­ann í Reykja­vík um þrjúleytið að degi til, 4. jan­úar 2020. Um klukkan hálf­þrjú hafi slökkvi­liði borist til­kynn­ing um konu sem komin væri í hríðir og að stutt væri á milli þeirra.

Tekin hafi verið ákvörðun um að senda kon­una á Land­spít­al­ann með sjúkra­bíl en ekki hafi verið kom­ist lengra en svo að dreng­ur­inn hafi fæðst inni í bílnum, á bíla­stæði fæð­ing­ar­deild­ar­innar, þar sem sjúkra­flutn­inga­menn tóku á móti honum.

Fæddist í bílskýli sjúkrabílanna – Október 2011

Í októ­ber 2011 fædd­ist barn í sjúkra­bíl frá Grund­ar­firði. Sjúkra­flutn­inga­menn voru kall­aðir út um hádeg­is­bil til að flytja konu á fæð­inga­deild HVE á Akranesi.

Anna með litlu stúlk­una sína.

Barninu lá hins vegar svo á að kom­ast í heim­inn að það gat ekki beðið þar til sjúkra­bíll­inn komst alla leið á Akranes. Þegar nálg­ast var Borg­ar­nes var konan, Anna Gorzelska, komin að fæð­ingu og brugðu sjúkra­flutn­inga­menn og ljós­móðir sem var með í för á það ráð að renna að heilsu­gæslu­stöð­inni í Borg­ar­nesi. Farið var í bíl­skýli sjúkra­bíla, þar sem Anna fæddi 14,5 marka stúlku.

„Við sáum það strax þegar við lögðum af stað frá Grund­ar­firði að við myndum jafn­vel ekki ná alla leið. Fæðingin gekk mjög hratt fyrir sig en þetta er annað barn þeirra hjóna. Þegar við vorum síðan komin að Langá á Mýrum ákváðum við að gera barnið að Borg­nes­ingi og stopp­uðum þar. Aðal­at­riðið er að allt gekk ljóm­andi vel og þetta var ynd­is­legur dagur,” sagði Hildur Sæmunds­dóttir ljós­móðir í sam­tali við Skessu­horn.

Ein í einangrun – Febrúar 2022

Aðfara­nótt þriðju­dags í febr­úar á þessu ári tók Berglind Anna Bjarna­dóttir sjálf á móti fjórða barni sínu og fyrstu dótt­ur­inni. Hún var þá í Covid-19 ein­angrun heima fyrir með þremur ungum sonum sínum.

Þetta var síð­asta dagur ein­angr­un­ar­innar og var eig­in­mað­ur­inn, Róbert Bjarni Bjarna­son flug­stjóri, utan heim­il­is­ins til að forð­ast smit. Enn voru áætl­aðar þrjár vikur í komu­dag dótt­ur­innar og fram að þessu hafði Berglind ávallt gengið fulla með­göngu.

„Ég vakn­aði að ganga fimm um morg­un­inn og hélt ég væri að pissa á mig.,“ sagði Berglind í sam­tali við Frétta­blaðið, en hún varð aldrei ótta­slegin í hama­gangnum heima fyrir.

Fjöl­skyldan heim­komin með tvö yngstu börnin; Henrik og Ólavíu Rós, í fang­inu og stoltir stóru bræð­urnir Matthías og Bjarni.

„Ég veit það ekki, þetta eru svo margar til­finn­ingar. En þegar þetta ger­ist svona hratt eins og í mínu til­felli þá hrist­ist hrein­lega allur lík­am­inn. Þetta er nátt­úr­lega rosa „power“ á stuttum tíma. Ég átti alveg von á að hafa neyð­ar­lín­una í beinni á meðan á þessu stæði en svo var ekki.“

Drengirnir þrír sváfu í sínum her­bergjum um nótt­ina en Bjarni, sá elsti, vakn­aði rétt áður en litla systir kom í heim­inn og varð vitni að hinum stóra við­burði.

„Ég næ nú kannski ekki að vera alveg hljóð­lát í þessum miklu verkjum og á meðan ég er að hringja um allt, svo hann vaknar við lætin. Ég var í miðri hríð þegar ég var að reyna að koma heim­il­is­fang­inu til skila og reyndi að segja það eins skýrt og ég gat. Næst þegar ég leit á sím­ann var bara búið að skella á svo ég vissi ekk­ert hvort það hefði tek­ist. Mér varð þá litið í spegil við hlið mér og sá þá haus­inn kom­inn út og átt­aði mig á því að við næstu hríð þyrfti ég að grípa hana.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ