Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

„Stúlkur sem hafa samfarir við útlendinga gera sér ekki grein fyrir í hvaða hættu þær eru“

„Stúlkur sem hafa samfarir við útlendinga gera sér ekki grein fyrir í hvaða hættu þær eru“

Sumarið 1985 var ríkj­andi ótti hér á landi um að stærstur hluti Íslend­inga gæti smit­ast af alnæmi.

DV fjall­aði um málið á sínum tíma og ræddi meðal ann­ars við yfir­lækni á Land­spít­al­anum; sá taldi mikla ógn steðja að:

„Mér þykir í sann­leika sagt of lítið gert úr þeirri hættu er stafað gæti af alnæmi hér á landi. Menn verða að gera sér grein fyrir að mann­kynið og þar með islenska þjóðin getur staðið frammi fyrir áður óþekktu ógnar­á­standi, hörm­ungum sem ekki verður séð fyrir end­ann á,“ sagði Þórður Harð­ar­son, pró­fessor og yfir­læknir, við DV.

Hann taldi mögu­leika vera á því að stór hluti ungs fólks á Íslandi smit­að­ist:

„Fræði­lega gætum við staðið frammi fyrir því að stór hluti ungs fólks væri smit­aður af alnæmi eftir örfáa ára­tugi,“ sagði Þórður á þeim tíma.

Þegar þessi ótti var uppi hafði AIDS ekki verið greint í Íslend­ingi þótt mótefni hefði fund­ist í fjórum ein­stak­lingum.

Í frétt hins lands­fræga blaða­manns Eiríks Jóns­sonar í DV er sagt að það væri ein­ungis spurn­ing um tíma hvenær sjúk­dóm­ur­inn bær­ist til Íslands með þessum skelfi­legu afleið­ingum:

„Ég held að stúlkur sam hafa sam­farir við útlend­inga geri sér í 95 % til­fella ekki grein fyrir í hvaða hættu þær eru að stefna sjálfum sér,“ sagði Þórður.

Fram kom í grein­inni að ástandið væri einna verst í Danmörku:

„Ekki kann ég neina skýr­ingu á því hvers vegna Danir hafa farið svona illa út úr þessu en vera má að frjáls­lyndi þeirra í ásta­málum á und­an­förnum ára­tugum valdi þar ein­hverju,“ sagði Þórður yfir­læknir, sem var­aði sér­stak­lega við sýktum vænd­is­konum sem gætu valdið ægi­legu tjóni, „séu þær iðnar við störf sín.“

Því er lýst í grein­inni að uppi hafi verið raddir um að setja smit­aða ein­stak­linga í ein­angrun strax og grein­ing liggur fyrir. Þá var því velt upp hvort mögu­legt væri að lög­binda notkun á smokkum til að hefta útbreiðslu veirunnar:

„Og hugs­an­lega ætti fólk alls ekki að hafa sam­farir við aðila sem ekki hefur farið í blóðprufu.“

Hann var spurður um það hvort ekki væri ráð­legt að taka blóðprufu af allri þjóð­inni og taka upp ein­hvers konar skrán­ingu. Og þá hvort ekki ætti að setja merki í nafn­skír­teini manna:

„Það getur komið að því að ein­hvers konar skrán­ing verði nauð­syn­leg. Þetta er alvar­legra mál en fólk gerir sér almennt grein fyrir. Stundum hef ég verið spurður að því hvort líkja mætti alnæmi við syfilis, sjúk­dóm sem þótti ólækn­andi í eina tíð. En þessi tvö fyr­ir­bæri er ekki hægt að bera saman. Syfilis brennur út af sjálfu sér og hættir að smita á ákveðnu stigi. Það gerir alnæmi aftur á móti ekki. Hann smitar stöðugt og menn geta gengið með hann svo árum skiptir án þess að vita af því. Í því felst óhugn­að­ur­inn,“ sagði hann.

Gíf­ur­legir for­dómar í garð sam­kyn­hneigðra voru alls­ráð­andi í heim­inum á 9. ára­tug síð­ustu aldar. Talað var um að Guð væri að refsa sam­kyn­hneigðum fyrir það eitt að vera þeir sjálfir.

Mikill ótti var ríkj­andi fyrst eftir að fólk greind­ist með HIV. Rætt var um að skylda alla sýkta til að láta skrá sjúk­dóm­inn í skil­ríki sín.

Þeir sem ganga með veiruna í dag lifa flestir þokka­legu lífi. Sjúk­dómnum er haldið niðri með lyfja­gjöf sem að vísu mun standa ævi­langt, ef að líkum lætur. Lyfin gera það að verkum að veiran er ekki lengur í blóð­inu og þeir því ekki smit­andi. Þeir sem hafa greinst munu því geta lifað lengi og notið fullra lífs­gæða. Hug­myndir um að skrá­setja alla sýkta eru því frá­leitar. Fólk sem tekur reglu­lega lyf og hefur ekki veiruna í blóð­inu er nán­ast ósmit­andi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð