MannlífiðHiminninn fallegasti liturinn12. nóvember 2018 Heimsþekkti tónlistarmaðurinn Ólafur Arnalds gaf út sína fjórðu breiðskífu nú á dögunum og ber hún nafnið, re:member. Þeir sem þekkja Ólaf vita að hann er afar nægjusamur maður sem er alltaf á ferð og flugi, en við fengum þó að forvitnast um hvað væri efst á óskalistanum hans um þessar mundir.
MannlífiðSkógareik og fiskibeinamynstur31. október 2018 Við kíktum á fallega hannað eldhús hjá Kristínu Traustadóttur og fjölskyldu á Selfossi, en þau fengu innanhússarkitektinn Sæbjörgu Guðjónsdóttur til liðs við sig fyrr á þessu ári.
MannlífiðSvarti pítsukassinn í Borgartúni29. október 2018 Svart, gult og risastór diskókúla mætir okkur á Black Box og þar tekur Jón Gunnar Geirdal vel á móti okkur með girnilegum flatbökum. Við spurðum kappann út í pítsuævintýrið.
MannlífiðFyllir Ásmundarsal af líffærum29. október 2018 Sigga Heimis hönnuður stendur í stórræðum þessa dagana. Auk þess að þeytast milli landa í vinnu sinni með ungum hönnuðum fyrir IKEA og vera einstæð móðir með þrjú börn, sem hún viðurkennir að útheimti gríðarlega skipulagningu, vinnur hún með fleiri fyrirtækjum og er ofan á allt saman að undirbúa sýningu á líffærum úr gleri sem hún mun halda í samstarfi við stærsta glerframleiðanda í heimi.
MannlífiðGamli Vesturbærinn heillar28. október 2018 Þau Helga Gvuðrún Friðriksdóttir og Orri Finnbogason taka vel á móti okkur á lifandi heimili sínu í gamla Vesturbænum. Saman reka þau skartgripaverkstæðið og verslunina Orrifinn skartgripir í sjarmerandi húsnæði við Skólavörðustíg 17a.
MannlífiðBleikt og rokkað hjá ungu pari í Vogunum24. október 2018 Parið Stella Björt Bergmann Gunnarsdóttir og Alexander Fannar Kristjánsson búa í skemmtilegri íbúð í Vogahverfinu. Bleiki liturinn er áberandi á heimilinu.
MannlífiðSænska hönnunarteymið Broberg & Ridderstråle færir út í kvíarnar22. október 2018 Broberg & Ridderstråle er teymi í hönnun og arkitektúr sem stofnað var af Mats Broberg og Johan Ridderstråle. Þeir eru menntaðir innanhússarkitektar og hönnuðir og útskrifuðust báðir með láði frá Konstfack-listaháskólanum í Stokkhólmi árið 2006. Vinnustofa þeirra er í Svíþjóð en verk þeirra hafa farið víða og verið sýnd meðal annars í London, Tókýó og Mílanó.
MannlífiðSögufrægt hús á Akureyri glætt nýju lífi20. október 2018 Gamla Apótekið sem stendur við Aðalstræti 4 er eitt glæsilegasta hús Akureyrar og stendur það ofar en flest önnur hús í nágrenninu. Grunnflötur hússins er 135 fermetrar og er það byggt í dönskum timburhúsastíl. Húsið á sér mikla forsögu.
MannlífiðEinstakt hús eftir Gunnar Hansson arkitekt í nýjasta Hús og híbýli18. október 2018 Á friðsælli sjávarlóð á Álftanesi stendur fallegt hús sem teiknað var af Gunnari Hanssyni arkitekt. Núverandi eigendur féllu fyrir byggingarstílnum og þeirri hugsun sem lögð var í smáatriðin. Einnig þótti þeim sérstakt að finna fallega hannað hús með miklu náttúruútsýni innan borgarmarka. Gróðurhúsið hafði líka sitt að segja, enda eru eigendurnir mikið áhugafólk um garðyrkju.
MannlífiðNotalegast í baði með nóg af kertum18. október 2018 Innanhússhönnuðurinn Karítas Sveinsdóttur þekkja flestir sem annan helming einnar flottustu hönnunarstofu landsins HAF STUDIO en hana rekur hún ásamt eiginmanni sínum, vöruhönnuðinum Hafsteini Júlíussyni. Þau hjónin reka líka verslunina HAF STORE sem staðsett verður á Geirsgötu 7. Hús & Híbýli kíkti í heimsókn og Karítas sagði frá nokkrum uppáhaldshlutum.
MannlífiðÚtlönd í Þingholtunum14. október 2018 Í 114 ára gömlu bárujárnsklæddu timburhúsi í Þingholtunum býr Eva Þrastardóttir. Hún er borgarhönnuður að mennt og starfar hjá einni stærstu verkfræðistofu landsins. Hún bjó um sex ára skeið í Danmörku, bæði á Jótlandi og Sjálandi, þar sem hún var í námi. Íbúðin ber þess merki að Eva hefur búið erlendis og minnir hún um margt á Kaupmannahöfn að mati blaðamanns. Húsið sjálft er í raun tvö hús sem byggð voru samsíða. Annar hluti hússins er byggður árið 1900 en hinn árið 1904 og geymir það sex íbúðir í heildina.