InnlentGylfi fékk tilboð frá Sádí-Arabíu: „Af einhverjum fótboltaprinsipp ástæðum vildi hann ekki fara“20. júní 2023 „Það er einn maður sem hlýtur að vera heima hjá sér núna að berja enninu í borðið. Það er Gylfi Sigurðsson,“ sagði Hjörvar Hafliðason í nýjum hlaðvarpsþætti sínum Dr. Football. Í þættinum heldur Hjörvar því fram að Gylfa Sigurðssyni hafi borist tilboð frá Sádí-Arabiu haustið 2020 en fjöldi fótboltastjarna úr Evrópuboltanum mun halda til Sádí-Arabíu á næstu misserum. „Hann var...
InnlentTelja að Pólverjinn hafi verið stunginn til bana: „Áverkar á manninum sem benda til þess“19. júní 2023 Maðurinn sem fannst látinn í Hafnarfirði í gærmorgun er talinn hafa verið stunginn til bana. Áverkar á líki mannsins gáfu slíkt í skyn að sögn Gríms Grímssonar, yfirmanns miðlægrar rannsóknardeildar lögreglunnar. „Það voru áverkar á manninum sem benda til þess að þeir hafi verið veittir af öðrum einstaklingi,“ segir Grímur Grímsson í samtali við mbl.is, aðspurður hvers vegna lögreglan telji...
InnlentBörn urðu fyrir kynþáttahatri í sundi: „Þeim að kenna hvað Ísland sé orðið skítugt“19. júní 2023 Pétur Ásgeirsson sagði frá hörmulegri reynslu dóttur sinnar sem fór ásamt frænku sinni í sund í Grafarvogi. Þar urðu stúlkurnar fyrir áreiti af hálfu eldri konu. „Mamma hennar er frá Gvatemala, þar sem ég bjó í tíu ár og börnin mín fæddust. Við erum búin að búa hér síðan árið 2017 og dóttir mín farið í gegnum grunnskóla hér og...
MenningGuðný María fagnar lagi númer 80 – Skrifar ævisögu sína19. júní 2023 Guðný María Arnþórsdóttir fagnar lagi númer 80 en hún hefur séð alfarið um allt sem snýr að lögunum, útsetningunum, markaðssetningu og fleiru. Söngkonan og gleðigjafinn Guðný María skrifaði færslu á Facebook þar sem hún fagnar nýjasta lagi sínu, „Give me five“ en það ku vera hið átttugasta lag hennar frá því að hún fór að gefa út lög fyrir fimm... Myndband
InnlentLekandi tröllríður Íslandi – Aldrei fleiri tilfelli19. júní 2023 Aldrei hafa fleiri verið greindir á Íslandi með kynsjúkdóminn lekanda en greindust hér í fyrra. Samtals greindust 159 með þann leiða fjanda en tilfellum hefur farið fjölgandi síðustu ár þó tilfellunum hafi fækkað í Covid-19 heimsfaraldrinum. Frá þessu er greint í Farsóttafréttum embættis landlæknis. Vísir sagði frá þessu á vef sínum. Sjötíu prósent tilfellanna sem greindust í fyrra voru hjá...
InnlentDiljá: „Ég var að glíma við alls konar geðræn vandamál“18. júní 2023 „Ég var alveg svolítið erfiður unglingur“ segir Diljá Pétursdóttir söngkona og þátttakandi fyrir Íslands hönd í Eurovision 2023. „Ég var að glíma við alls konar geðræn vandamál,“ svarar hún, í viðtali hjá Reyni Traustasyni, aðspurð hvort hún sé trúuð og segir það helstu ástæðu þess að hún hafi haldist svo lengi innan kirkjunar. Diljá byrjaði ung að syngja í kirkjukór...
InnlentJóni Gnarr neitað um álit annars læknis: „Ég bað um sekkond opinjon“18. júní 2023 Fyrrum borgarstjóri Reykjavíkur og grínistinn Jón Gnarr þurfti að sér leita læknisaðstoðar og fór því á Læknavaktina í dag. Hann hefur glímt við þrálátan hósta ef marka má nýjustu færslu hans á Twitter. Þar segir hann: „Fór á læknavaktina í dag. Læknirinn taldi ólíklegt að ég væri með berkla en líklega bronkítis. Ég bað um sekkond opinjon en honum fannst...
InnlentTríó Jóns dómsmálaráðherra kveður: „TAKK FYRIR OKKUR!“18. júní 2023 Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra birti færslu á Facebook þar sem hann hengir með þá Brynjar Níelsson og Ingvar Smára Birgisson og þakkar fyrir sig og sína: „TAKK FYRIR OKKUR!“ Þá þakkar hann traustið sem þeim hafi verið veitt, stuðninginn og aðhaldið á síðastliðnum misserum:„Sérstakar þakkir fær starfsfólkið í dómsmálaráðuneytinu – hreint út sagt frábært samstarf.“Jón viðurkennir að ýmislegt hafi gengið á...
InnlentPabbi Egils fékk riddarakross18. júní 2023 „Faðir minn, Helgi Guðmundsson, fékk í dag riddarakross hinnar íslensku fálkaorðu fyrir fræðistörf sín sem birtast m.a. í bókunum Um haf innan, Land úr landi, Handan hafsins og The Pronominal Dual in Icelandic (Tvítala í íslensku),“ ritar Egill Helgason í nýrri færslu á Facebook. Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, sæmdi 14 Íslendinga heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu, við hátíðlega athöfn á...
MenningGlúmur sækir um forstjórastöðu: „Bið mín á enda og markmiðinu loksins náð“18. júní 2023 Glúmur Baldvinsson segir frá því í nýrri færslu á Facebook að hann hyggist sækja um forstjórastöðu Úrvinnslusjóðs. Hann segir að frá blautu barnsbeini hafi draumur hans ætíð verið að fylgja ástríðu sinni sem í sér í lagi séu mjólkurfernur: „Þegar ég var lítill púki á Ísafirði var ég einatt spurður hvað ég vildi verða þegar ég yrði stór? Ekki stóð...
InnlentLeikur barna hindraður sökum hávaðakvartana fárra: „Best að allir sitji heima í símanum“18. júní 2023 Einar Guttormsson íbúi í Seljahverfi í Breiðholti birti færslu á Facebook og vakti athygli á að fjarlægðar voru körfuboltaspjöldin á skólalóð Seljaskóla sökum hávaðakvartana nágranna skólalóðarinnar: „Sjaldan hef ég orðið vitni að annari eins vitleysu! 🙁 Nú er verið að fjarlægja körfuboltakörfurnar við Seljaskóla annað sumarið í röð! Þegar ég talaði við strákana sem voru að fjarlægja þær þá sögðu...
InnlentPoppstjarnan Páll Óskar gefur undan þrýstingi: „Okei, ég gefst upp“18. júní 2023 Poppstjarnan og átrúnaðargoðið Páll Óskar Hjálmtýrsson gefst upp undan þrýstingi og hefur stofnað TikTok reikning. Í fyrsta myndskeiðinu segir hann: „Okei, ég gefst upp. Ég skal byrja á TikTok“ Hann ræðir einnig um fyrirhugaða tónleika í sumar. Álykta má á síðasta myndskeiðinu að nýr smellur séð væntanlegur. Íslendingum og annarra tónelskandi til mikillar hamingju. Hér að neðan má finna hlekk...