3 Pólitík „Ef það má bjóða einhverjum biturð og kvenfyrirlitningu, endilega lesið Moggann í dag“
InnlentNý lög-Foreldrar sem missa barn tryggður réttur til sorgarleyfis: „Mamma leiddi mig í gegnum allt“16. júní 2022 Frumvarp um sorgarleyfi var samþykkt einróma við þinglok í gær og er nú orðið að lögum. Lögin tryggja foreldrum sem missa barn sitt leyfi frá störfum auk þess sem þeir fá greiðslur til að koma til móts við tekjutap. Karólína Helga Símonardóttir, stjórnarformaður Sorgarmiðstöðarinnar kom í viðtal hjá Mannlífi fyrir skemmstu þar sem hún sagði frá sinni sögu og hvað...
InnlentKörfuboltakonan lýsir heimsókn eftir tapleik gegn Keflavík: „Little black nigger bitch“16. júní 2022 Árið 2017 tapaði kvennalið Skallagríms í körfuknattleik nokkuð stórt í fimmta leik í úrslitakeppninni gegn Keflavík. Eftir leikinn fékk lykilleikmaður Skallagríms heimsókn frá Ámunda Sigurðssyni, fyrrverandi lögreglumanni, sem þá var formaður meistaraflokksráðs kvenna. Með honum í för var Ásmundur Einar Daðason, ráðherra, sem þá var formaður kvennaráðs Skallagríms. Heimsóknin var engin kurteisisheimsókn en þar var hún sökuð um að hafa...
InnlentStjórnvöld hafna inngripi vegna hækkana – „Verið að grípa til aðgerða allt í kringum okkur“16. júní 2022 Verð á bensíni er víða komið yfir 350 kr. á lítrinn í kjölfar gegndarlausra hækkana síðastliðna mánuði. Í samtali við Mannlíf segir Runólfur Ólafsson, formaður FÍB: „Við höfum aldrei séð svona verð áður, þess vegna erum við að sjá þessi viðbrögð hjá stjórnvöldum í nágrannalöndunum. Það er verið að grípa til aðgerða allt í kringum okkur.“ Í mars síðastliðnum þrýsti...
InnlentSæunn er afar ósátt við Seðlabanka Íslands: „Fyrstu kaupendur eru ekki vandamálið“16. júní 2022 Sú ákvörðun Seðlabanka Íslands að lækka veðsetningarhlutfall á fyrstu kaupendur á fasteignamarkaði úr 90% í 85% hefur sætt mikillar gagnrýni í samfélaginu, sem má sjá á samfélagsmiðlum sem og í pistlagreinum blaðanna. Sæunn I. Marínósdóttir viðskiptafræðingur bjó til þráð á Twitter-reikningi sínum þar sem hún gagnrýnir Seðlabankann harðlega. Segir hún hvorki fyrstu kaupendur né verðtrygginguna vera vandmálið. Sæunn gaf Mannlífi...
LandiðBæjarfulltrúi Miðflokksins reiður út í VG og Austurlistann: „Þetta eru forkastanleg vinnubrögð“16. júní 2022 Bæjarfulltrúi Miðflokksins í Múlaþingi, Þröstur Jónsson, er óánægður með að ekkert samráð hafi verið við flokkinn er aðrir listar í minnihluta sveitastjórn Múlaþings skiptu með sér fulltrúum í nefndum. Austurlistinn og Vinstrihreyfingin – grænt framboð fengu alla fulltrúana sem í boði var fyrir minnihlutann, Miðflokkurinn engan. Sagt er frá málinu á Austurfrétt. „Þetta eru forkastanleg vinnubrögð og ekki til þess...
InnlentTekjulaust fyrirtæki hagnaðist skyndilega um tæpar 130 milljónir í fyrra16. júní 2022 Arctic Therapeutics ehf., sem rekur hraðprófunina covidtest.is, velti alls 399,7 milljónum króna í fyrra. Hagnaður fyrirtækisins var 127,2 milljónir króna en félagið hafði í fyrsta sinn tekjur á því ári. Eigendur félagsins eru Hákon Hákonarson, David H. Moskiwitz og Philip Harper en þeir síðarnefndu eru báðir Bandaríkjamenn. Íslenska ríkið greiddi Arctic Therapeutics fjögur þúsund krónur fyrir hvert hraðpróf fyrir einstaklinga...
InnlentÍslenskur karlmaður í 8 ára fangelsi á Spáni – Dæmdur fyrir kynferðisbrot gegn börnum15. júní 2022 Ómar Traustason, var dæmdur í átta og hálfs árs skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa brotið kynferðislega á að minnsta kosti sex börnum í borginni Cartagena á Spáni. Maðurinn var ákærður fyrir að hafa brotið á átta börnum, en hann viðurkenndi brot gegn sex þeirra. Brotin fela meðal annars í sér óviðeigandi kynferðislega hegðun, tilraunir til kynferðisbrota og að hafa sýnt...
InnlentSkuggaskýrsla um mismunum gagnvart konum: Fulltrúar íslenska ríkisins munu sitja fyrir svörum15. júní 2022 Kvenréttindafélag Íslands, Mannréttindaskrifstofa Íslands, Öfgar, UN Women á Íslandi og Öryrkjabandalag Íslands hafa skilað inn sameiginlegri skuggaskýrslu til nefndar sem starfar á grundvelli samnings Sameinuðu þjóðanna um afnám allrar mismununar gagnvart konum (Kvennasáttmálans). Nefndin undirbýr nú fund þar sem fulltrúar íslenska ríkisins munu sitja fyrir svörum um framkvæmd Kvennasáttmálans. Útrýma mismunun Framkvæmd Íslands á Kvennasáttmálanum verður tekin fyrir á fundi...
InnlentÍbúðir rjúka upp í borginni fyrir fiðruðu vinina – Nú er bara að fara í göngutúr og hafa augun opin15. júní 2022 Í miðborginni hafa fjölmargar nýjar íbúðir risið upp á síðkastið. Nýju íbúðirnar eru fyrir fiðruðu vini okkar, en 12 fuglahús hafa verið sett upp við göngugötur, græn svæði eða torg í miðborginni. Tilgangurinn er að vekja athygli á mikilvægi fugla í umhverfinu okkar og ekki síður mikilvægi líffræðilegrar fjölbreytni í borgarumhverfinu. Staðsetning þessara hreiðurhúsa er í öllum tilfellum við gönguleiðir...
InnlentGunnar Smári um laun nýja bæjarstjórans í Kópavogi: „Það vantar margt í þetta lið“15. júní 2022 Gunnar Smári Egilsson, stofnandi Sósíalistaflokks Íslands vekur gjarnan athygli er hann skrifar Facebook-færslur enda kjarnyrtur í skrifum og skemmtilega kaldhæðinn. Í nýjasta færslunni talar hann um laun bæjastjóra Kópavogs. Laun bæjarstjóra á höfuðborgarsvæðinu eru afar há á heimsvísu eins og fjallað hefur verið um í fjölmiðlum en virðist það ekki ætla að breytast á næstunni. Sjá einnig: Laun íslenskra bæjarstjóra...
InnlentBjarni Ben mun halda velli á landsfundi flokksins: „Bara nauðaómerkilegur samkvæmisleikur“15. júní 2022 Mbl.is sagði frá því í dag að komin væri dagsetning á 44.landsfund Sjálfstæðisflokksins. Verður hann haldinn 4. til 6. nóvember næstkomandi og fer fram í Laugardalshöll. Samkvæmt mbl.is ákvað miðstjórn flokksins þetta en landsfundur fer með æðsta vald í málefnum flokksins en þar er einning stefna hans mótuð. Þeir sem seturétt eiga á landsfund eru flokkráðsfulltrúar flokksins sem og fulltrúar...
InnlentSeðlabankinn breytir reglum um íbúðalán: Þyngir róður fasteignakaupenda15. júní 2022 Fjármálastöðugleikanefnd Seðlabankans gaf frá sér yfirlýsingu í dag. Ber þar helst að nefna töluverðar breytingar sem verða á skilmálum nýrra fasteignalána. Breytingarnar munu taka gildi frá og með morgundeginum. Lækka hámark lána fyrstu kaupenda Ákveðið hefur verið að lækka hámark veðsetningarhlutfalls fasteignalána fyrir fyrstu kaupendur í 85% sem áður hefur verið 90%. Viðmið vaxta í greiðslumati Viðmið vaxta við útreikning...