Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Bæjarfulltrúi Miðflokksins reiður út í VG og Austurlistann: „Þetta eru forkastanleg vinnubrögð“

Bæjarfulltrúi Miðflokksins reiður út í VG og Austurlistann: „Þetta eru forkastanleg vinnubrögð“

Bæj­ar­full­trúi Mið­flokks­ins í Múla­þingi, Þröstur Jónsson, er óánægður með að ekk­ert sam­ráð hafi verið við flokk­inn er aðrir listar í minni­hluta sveita­stjórn Múla­þings skiptu með sér full­trúum í nefndum. Aust­ur­list­inn og Vinstri­hreyf­ingin – grænt fram­boð fengu alla full­trú­ana sem í boði var fyrir minni­hlut­ann, Mið­flokk­ur­inn engan.

Sagt er frá mál­inu á Aust­ur­frétt.

„Þetta eru for­kast­an­leg vinnu­brögð og ekki til þess fallin að halda þeim vinnu­anda sem verið hefur,“ sagði Þröstur á fyrsta fundi nýrrar sveit­ar­stjórnar.

Sagði Þröstur á fund­inum að hin tvö fram­boðin hefðu myndað blokk án sam­ráðs við Mið­flokk­inn heldur aðeins sent nið­ur­stöð­urnar í tölvu­pósti kvöldið fyrir fund­inn. Kvaðst Þröstur sitja hjá við afgreiðslu nefnda af þessum ástæðum og að hann myndi lík­leg­ast halla sér að meiri­hlut­anum á nýhöfnu kjör­tíma­bili þar sem honum lík­aði við mál­efna­skrána sem og fólkið. „Minni­hlut­inn getur ekki vænst góðs sam­starfs frá M-list­anum á kjör­tíma­bil­inu,“ sagði hann á fund­inum.

Varð raunin sú í nefnd­ar­kosn­ing­unum að Mið­flokk­ur­inn fékk engan full­trúa í byggð­ar­ráð, fjöl­skyldu­ráð og umhverfis- og fram­kvæmda­ráð. Fékk flokk­ur­inn þó áheyrna­full­trúa í þeim öllum. Hildur Þór­is­dóttir odd­viti Aust­ur­list­ans minnti á það í svari sínu til Þrastar að sami háttur hafi verið á á síð­asta kjör­tíma­bili. „Þetta er ekki í fyrsta sinn. Við fengum tvo full­trúa nú, VG tvo og ákváðum að mynda blokk. VG og Aust­ur­listi eiga mál­efna­lega sam­legð. Þetta eru engar nýjar fréttir sem koma neinum á óvart. M-listi fékk einn mann og var ekki í samn­ings­stöðu. Það hefði því engu breytt fyrir ykkar stöðu þótt þið hefðuð komið inn í við­ræð­urnar,“ sagði Hildur.

Oddviti VG, Helgi Hlynur Ásgríms­son kvaðst skilja reiði Þrastar og bað hann afsök­unar á að hafa ekki rætt við hann fyr­ir­fram. „Auðvitað átti ég að hringja í þig og tala um þetta, fyr­ir­gefðu.“

Svaraði Þröstur því til að hann kynni að meta auð­mýkt Helga Hlyns en Hildur baðst einnig afsök­unar í seinna svari sínu. Benti hún í leið­inni á að fyr­ir­var­inn hafi verið stuttur en taldi það aug­ljóst að flokk­arnir tveir, Aust­ur­list­inn og VG myndu mynda blokk líkt og gert var síð­ast. Bætti Helgi Hlynur því við að lítið hefði verið til skiptana í ráðunum og að Mið­flokk­ur­inn ætti þó áheyrn­ar­full­trúa í öllum þremur ráðum.

Fram kemur einnig í frétt Aust­ur­fréttar að á síð­asta kjör­tíma­bili hafi meiri­hlut­inn og minni­hlut­inn skipt jafnt á milli sín for­mennsku í heima­stjórnum. Ekki er svo þetta tíma­bil en meiri­hlut­inn verður í for­mennsku í þremur heima­stjórnum. Björg Eyþórs­dóttir, Fram­sókn­ar­flokki, verður for­maður á Seyð­is­firði, Vil­hjálmur Jónsson, Framsókn, á Fljóts­dals­hér­aði og Guðný Lára Guð­rún­ar­dóttir, Sjálf­stæð­is­flokki, á Djúpa­vogi. Athygli vekur að Eyþór Stef­áns­son frá Aust­ur­list­anum verði for­maður heima­stjórnar Borg­ar­fjarðar og þar með eini heima­mað­ur­inn sem gegnir for­mennsku í slíkri stjórn.

Sagði Helgi Hlynur það slæm skref hjá meiri­hlut­anum að taka til sín for­mennsk­una í þriðju heima­stjórn­inni. „Þið eruð að gera þetta að flokkspóli­tísku máli. Gagn­rýnin verður harð­ari en verið hefur.“ Berlind Harpa Svav­ars­dóttir hjá Sjálf­stæð­is­flokknum sagði skipt­ing­una vera ákvörðun meiri­hlut­ans og þar muni starfa nýtt, öfl­ugt og áhuga­samt fólk.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Landið

Landið

Límdu yfir hraða­mynda­vél lög­reglu

„Það er svo sannarlega þörf á hraðamælingum“
Landið

Forbes vekur athygli á nýju ferða­manna­gjaldi á Íslandi

Landið

Breskur stór­mið­ill velur fimm stór­kost­leg­ustu fossa Íslands

Landið

Vilja vernda nátt­úruperlu í Skriðdal

Landið

Skortur á leik­skóla­plássum tefur end­ur­komu starfs­fólks HSA

Landið

Björg­un­ar­bún­aður og bætt öryggi til skoð­unar við Stuðla­gil