Innlent„Hernaðurinn gegn einkarekstrinum er hafinn og skaðar einungis almenning og leiðir til óréttlætis“10. ágúst 2021 „Lífið minnir okkur sífellt á mikilvægi þess að búa við friðsamt yfirvald. Friðsamt yfirvald er happafengur hverjum manni, hvort sem er á okkar tímum eða annarra.,“ segir Sigurbjörn Sveinsson læknir, og bætir við: „Það var kallað „Hernaðurinn gegn landinu“ á síðustu öld þegar því var andmælt að viðkvæm náttúra landsins væri lögð að fótum áforma um virkjanir og stórfelld hervirki...
Innlent„Maður má ekki gefa blóð ef hann stundar kynlíf með manni: Kona sem hefur verið með mörgum má það”9. ágúst 2021 Brynja Dan Gunnarsdóttir leiðir hugann að því að „nú þegar hinsegin dagar ganga í garð er gott að líta aðeins í kringum sig og hugsa; hugsa af hverju erum við enn að minna á rétt hinsegin fólks og baráttu þeirra? Hugsa hvað viljum við gera betur? Og hvar getum við gert betur?“ Hún nefnir að „við höldum kannski að jafnréttið...
InnlentHáöldruð og mikið veik móðir Árna fékk hjartatöflur við kvíða: „Þau skoðuðu hana ekki einu sinni“9. ágúst 2021 Lögfræðingurinn Árni Stefán heldur dagbók og í henni skrifaði hann í gær að „ástandið á Vífilsstöðum er hábölvað,“ en háöldruð og veik móðir Árna dvelur á Vífilsstöðum á annarri hæð: „Mamma kvartar undan óþægindum í hjarta sem er kvíði, enda lífsmörk mjög góð og ekkert sem bendir til þess að hrakandi hjartastarfsemi sé að angra hana,“ segir Árni og bætir...
InnlentPáll á Húsafelli: „Þetta hús er stórkostlegt listaverk og niðurstaðan veldur mér sorg og vanlíðan.“9. ágúst 2021 „Líf mitt og starf er að skapa list í sátt við náttúruna á Húsafelli. Það er skylda mín og okkar Húsfellinga að varðveita náttúru, menningu og sögu forfeðra okkar og skila til komandi kynslóða,“ segir Páll á Húsafelli og bætir við: „Þetta vissi langafi minn Kristleifur Þorsteinsson á Stóra- Kroppi, en hann ásamt Jakobi vinnumanni á Húsafelli sóttu um styrk...
InnlentJón Kalman og Sigríður Hagalín kaupa tvær íbúðir saman: Ásett verð 129 milljónir – Sjáið myndirnar!9. ágúst 2021 Hinir frábæru rithöfundar, Jón Kalman Stefánsson og Sigríður Hagalín Björnsdóttir, keyptu nýverið tvær íbúðir við Bjarkargötu 8 í Reykjavík, og voru íbúðirnar, sem eru hæð og kjallari, seldar saman, og var ásett verð á þeim 129 milljónir króna. Íbúðirnar tvær eru samtals 237 fermetrar að stærð, en í húsinu eru alls fjórar íbúðir, og var það byggt árið 1928. Sköpunarsaga...
Innlent„0,1 prósent skattgreiðenda á 293 milljarða og ríkasta 1 prósent á 902 milljarða í eigin fé“9. ágúst 2021 Jóhann Páll Jóhannsson segir að á Íslandi sé nóg til af peningum en að mest af þeim renni til örfárra landsmanna á kostnað almennings. Hann nefnir að „ríkasta 1 prósent landsmanna á samtals 902 milljarða í eigin fé samkvæmt skattframtalsgögnum ríkisskattstjóra,“ bætir við: „Þar af eiga 240 heimili – ríkasta 0,1 prósent skattgreiðenda – 293 milljarða.“ Jóhann segir að raunverulegar...
InnlentEinar bendir á galla á kosningakerfinu: „Hvaða flokkur „stelur“ þingsæti í haust?“9. ágúst 2021 Píratinn Einar Brynjólfsson segir að „skoðanakannanir Gallup benda til þess að Píratar endurheimti þingsæti sitt í Norðausturkjördæmi í komandi Alþingiskosningum,“ og að „það yrði vitanlega ánægjulegt fyrir Pírata, en það er líka áhugavert að skoða hver gæti hreppt jöfnunarþingsæti kjördæmisins; svona í ljósi þess hve mikilvæg jöfnunarþingsætin eru í sambandi við hlutfall milli þingsæta og heildarfjölda atkvæða hvers flokks. Samkvæmt...
InnlentReiði vegna ummæla Bjarna um Landspítala: „Virðist lifa í Panama og er stórhættulegur heilsu okkar“9. ágúst 2021 Ummæli Bjarna Benediktssonar varðandi Landsspítalann þar sem hann kennir stjórnendum og starfsfólki hans um vandræðin vegna álagsins þar vegna Covid, frekar en fjárveitingum, sem hann segir meira en nægar, hafa vakið mikla athygli og víða mikla reiði. Rætt er um málið víða á samfélagsmiðlum og á einum þeirra segir Sveinbjörn Hjörleifsson að „ég held að það liggi alveg ljóst fyrir...
InnlentValdimar virkilega brugðið eftir aðkomuna – MYNDIR8. ágúst 2021 Valdimar Örn Flygenring, leikari, deildi á Facebooksíðu sinni mynd af hreint út sagt viðbjóðslegum kamri. „Heilbrigðisvandamálin eru víða. Ætluðum við ekki að nota tímann í covid til að endurskipuleggja ferðamannastaðina?“ Skrifar hann við myndina. „Hvernig endurskipuleggur maður umgengni?“ Spyr Guðrún S. Gísladóttir leikkona þá. „Þetta hefur varla neitt með umgengni að gera, klósettið er fullt og þarf að tæma. Ferðamennirnir...
InnlentEkki lengur möguleiki að útrýma kórónuveirunni úr samfélaginu8. ágúst 2021 Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, segir það vonbrigði að bóluefnin hafi ekki búið til hjarðónæmi. Þrátt fyrir það hafa þau gert mikið gagn, en það er ótvírætt að bóluefnin hafa dregið úr alvarlegum veikindum fólks. Þá sagði Þórólfur vera orðið tímabært að ná fram hjarðónæmi með því að láta kórónuveiruna halda áfram að ganga á milli manna. Reyna þyrfti þó að koma...
InnlentJóna var stungin þrisvar við Varmá: „Þetta var virkilega vont”8. ágúst 2021 Jónu var ekki skemmt er hún var á göngu með syni sínum við Varmá í Mosfellsbæ í gær og vill vara aðra við. „Ég og sonur minn vorum að labba við Varmána fyrir neðan íþróttahúsið áðan. Hann labbaði niður að ánni við brúna og þegar hann var á leiðinni aftur upp var hann stunginn af einhverju kvikindi og þegar ég...
InnlentSigmundur óstöðvandi á samfélagsmiðlum: „Þetta er sirkústrikk til að ná athygli fyrir kosningar“8. ágúst 2021 „Sigmundur Davíð borðar hrátt hakk þegar hann verður svangur. Þetta er ekki til eftirbreytni kæru félagar, enda eru Sósíalistar yfir höfuð með hærri greind en Klaustursliðið,“ skrifar Guðmundur nokkur Ólafsson í hóp Sósíalista flokks Íslands á Facebook og heldur áfram. „Fyrir þá sem ekki vita hvers vegna hakk hefur styttra geymsluþol en önnur kjötvara skal það skýrt út hér. Á...