Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

„Hernaðurinn gegn einkarekstrinum er hafinn og skaðar einungis almenning og leiðir til óréttlætis“

„Hernaðurinn gegn einkarekstrinum er hafinn og skaðar einungis almenning og leiðir til óréttlætis“

„Lífið minnir okkur sífellt á mik­il­vægi þess að búa við frið­samt yfir­vald. Friðsamt yfir­vald er happa­fengur hverjum manni, hvort sem er á okkar tímum eða ann­arra.,“ segir Sig­ur­björn Sveins­son læknir, og bætir við:

„Það var kallað „Hern­að­ur­inn gegn land­inu“ á síð­ustu öld þegar því var and­mælt að við­kvæm nátt­úra lands­ins væri lögð að fótum áforma um virkj­anir og stór­felld her­virki nán­ast í heima­högum almenn­ings.“

Sig­ur­birni finnst „margt fara saman með við­horfum valds­manna heil­brigð­is­stjórn­ar­innar til verk­efna sinna á okkar dögum og þeirra, sem eiga bágt með að skilja mik­il­vægi valds síns í þágu friðar og fram­fara; vald­inu er beitt í þágu stjórn­lyndis og póli­tískra lang­tíma­sjón­ar­miða. Svo er grautnum í þess­ari skál blandað saman við ranga með­ferð tungu­máls­ins, þannig að boð­skap­ur­inn verður í raun að fals­fréttum, röngum eða öngvum sann­leika.“

Hann nefnir að „lækn­is­fræðin hefur blómstrað í land­inu bæði á lið­inni öld og þess­ari. Þrátt fyrir allt. Fram­farir í lækn­is­fræði hafa verið bornar uppi af læknum eðli máls­ins sam­kvæmt og hið ljúfa hlut­skipti lækn­ing­anna fallið í þeirra skaut. Í lækn­anna garði hefur vaxið „við­kvæmur norð­ur­hjara­gróður“ og „gnægð smárra blóm­jurta“ eins og skáldið segir. Þjónusta lækna eins og við þekkjum hana á okkar dögum hefur þró­ast í þeirra höndum; ýmist á stofum þeirra, það er í einka­rekstri, eða á stofn­unum rík­is­ins eða einka­að­ila. Meiri­hluta­valdið í stjórn­málum hefur haft góðan skiln­ing á þessu fram til þessa,“ segir hann og heldur áfram:

„Mér sýn­ist hins vegar hafa orðið nokkur breyt­ing hér á og hafa önnur skila­boð borist frá stjórn­ar­ráð­inu á síð­ustu árum,“ og vill Sig­ur­björn meina að „hern­að­ur­inn gegn einka­rekstr­inum er haf­inn.“

Hann bendir á að atburðir síð­ustu miss­era „sýn­ast mér styðja þessa skoðun vel. Samn­ings­leysi sér­fræði­lækna; ömur­leg brot­lend­ing krabba­meins­grein­ingar kvenna; útflutn­ingur lið­skipta­að­gerða – halla­rekstur hjúkr­un­ar­heim­ila og fleira í þeim dúr eru allt veiga­miklir þættir í þeirri mið­stýr­ing­ar­áráttu sem nú ríður húsum í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu og tengdum stofn­unum.“

Sig­ur­björn segir að þeir sem styðja vilja við einka­rekstur lækna í þágu almenn­ings séu sak­aðir um einka­væð­ing­ar­áráttu, sem er hreint „skrök“ eða „fals­fréttir“. Og að „eng­inn kallar eftir því að ríkið hætti að bera ábyrgð á heil­brigð­is­þjón­ust­unni eins og nú er. Það gerir ríkið með því að reka þjón­ust­una sjálft eða fá aðra til þess. Ef ríkið kýs að hætta til­tek­inni þjón­ustu, þannig að almenn­ingur verður að kaupa hana fyrir eigið fé og án íhlut­unar sjúkra­trygg­ing­anna, er um einka­væð­ingu þjón­ust­unnar að ræða. Á meðan ríkið heldur verk­efn­unum hjá sér og lætur fyr­ir­tæki í sinni eigu sinna þeim eða semur við aðra aðila um það, er tómt mál að tala um einka­væð­ingu heil­brigð­is­kerf­is­ins.“

Hann nefnir að „einka­væð­ing heil­brigð­is­kerf­is­ins er það þegar ríkið gefur frá sér lög­bundin verk­efni sín og tekju­stofna, sem undir þeim standa, og lætur einka­að­ilum eftir að fjár­magna heil­brigð­is­þjón­ust­una og hrinda henni í fram­kvæmd. Um það eru fá dæmi hér á landi.“

Sig­ur­björn beinir spjótum sínum að Svandísi Svav­ars­dóttur heil­brigð­is­ráð­herra og segir að það væri henni „holl­ara og frekar í þágu almanna­hags­muna, að finna flöt á sam­bæri­legri verð­lagn­ingu lækn­is­verka, sem unnin eru á sjúkra­stofn­unum í rík­i­s­eigu og hjá stofum eða fyr­ir­tækjum lækna. Með því ætti ráð­herr­ann val um þjón­ustu fyrir almenn­ing sem full­nægði gæða­kröfum við við­un­andi verði. Með því myndi og styrkj­ast staða ráð­herr­ans til að mæta þörfum almenn­ings. Van­máttur rík­is­ins að mæta þörfum okkar og kröfum er einmitt helsta orsökin fyrir þrýst­ingi á að þegn­arnir finni sínar eigin lausnir fyrir eigin reikn­ing.

Hern­að­ur­inn gegn einka­rekstr­inum skaðar ein­ungis almenn­ing og leiðir til órétt­lætis.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð