InnlentJóhanna segir það einstök forréttindi að eignast barn með Downs: „Þvílík gleði, hlýja og hamingja“17. október 2020 Downs-félagið á Íslandi stendur nú fyrir vitundarvakningu hérlendis um Downs heilkenni. Októbermánuður er helgaður vakningunni á alþjóðavísu og íslensku samtökin segja okkur nú sögur á Facebook-síðu sinni af Íslendingum með Downs. Tónelskandi íþróttaálfar með Downs-heilkenni Inga Guðrún Kristjánsdóttir, formaður Downs-félagsins, segir það ekki sjálfgefið að eignast barn með downs-heilkenni, heldur einstök forréttindi. Hún segir það hafa verið tilvalið að kynna...
InnlentGuðmundur biður þjóðina að mygla ekki: „Éttu það, Covid“16. október 2020 Guðmundur Steingrímsson, fyrrverandi formaður Bjartrar framtíðar og fyrrum alþingismaður, segir íslensku þjóðina stadda í bylgjulest kórónuveirunnar sem ekki sér fyrir endann á. Hann er sannfærður um að Íslendingar, með sína sléttu magavöðva og nýbyggðu sólpalla, standi uppi margfalt sterkari, reynslunni ríkari og hamingjusamari eftir faraldurinn. Þetta segir Guðmundur í aðsendri grein í Fréttablaðinu í dag. Þar veltir hann því fyrir...
InnlentKristján Þór bað sjálfur um launalækkun16. október 2020 Kristján Þór Magnússon, sveitastjóri Norðurþings, óskaði sjálfur eftir launalækkun og var það samþykkt af byggðaráði sveitafélagsins í gær. Laun hans lækka um sex prósent frá 1. janúar. Auk þess var samþykkt að seinka launahækkunum æðstu stjórnenda til 1. júlí. Samtals mun þetta spara um fjórar milljónir króna. RÚV greinir frá þessu. Í fundagerð kemur fram að Kristján Þór hafi lagt...
InnlentBergur lögmaður vill í golf: „Ekki endilega í samræmi við stjórnarskrá“16. október 2020 Bergur Hauksson lögmaður agnúast út í lokun golfvalla og þá staðreynd að golfarar fái ekki að iðka íþrótt sína útaf Covid-19. Hann veltir upp þeim vangaveltum að takmarkanir sóttvarnarreglna standist mögulega ekki stjórnarskrá landsins. Þetta segir Bergur í aðsendu bréfi í Morgunblaðinu í dag. Hann skilur ekki hvers vegna iðkendum sé bannað að spila golf þegar lögin leyfa það. „Heilbrigðisráðherra...
InnlentÚtgefandi Bryndísar hagar sér stórfurðulega: „Hvers konar manneskja ertu?“15. október 2020 Útgefandi sjálfsævisögu Bryndísar Scram, HB Publisher, hjólar í konu sem segist ekki hafa áhuga á bókinni á Facebook. Útgefandinn virðist ekki hafa gefið neitt annað út en bók hennar, Brosað í gegnum tárin, og því líklegt að starfsemin tengist Bryndísi sjálfri. Fjölskyldan hefur átt í erfiðleikum með að fá bækur sínar útgefnar. Jón Baldvin Hannibalsson, eiginmaður Bryndísar, auglýsti til að...
InnlentNetverslun með grænmeti færist í aukana. Lífrænt í forgrunni.15. október 2020 Að minnsta kosti þrír aðilar hér á landi starfrækja Netverslun með Grænmeti. Það eru Bændur í Bænum, Móðir Jörð og Austurlands Food Coop. Athygli vekur að allir einbeita þeir sér nær eingöngu að lífrænt vottuðu grænmeti enda er lífræn ræktun orðin mjög útbreidd víðast hvar í Evrópu. Austurlands Food Co byrjaði sem samfélagslegt verkefni á Seyðisfirði fyrir fáum árum síðan....
InnlentÖssur segir Pétur með elliglöp og því auglýst símanúmerið15. október 2020 Össur Skarphéðinsson, fyrrverandi utanríkisráðherra, segist á Facebook ekki hafa undan því að svara í símann eftir að Pétur Gunnlaugsson á Útvarpi Sögu gaf upp símanúmerið hans í beinni útsendingu. Samkvæmt Össuri gerði Pétur það í morgun. „Ég er nú orðinn helsti tengill nýju stjórnarskrárinnar við almenning í landinu. Pétur á Útvarpi Sögu auglýsti í morgun símanúmer mitt sem tengil við...
InnlentKristín gómaði pilta í stórhættulegum leik: „Þetta er rosalegt!“15. október 2020 Kristín Rós Heiser gómaði tvo unglingspilta við hættulega iðju í gærkvöldi. Héngu þeir fram af göngubrúnni við Skeifuna takandi myndir af sér. Þetta fullyrðir Kristín Rós í íbúahópi hverfisbúa í hverfi 108 á Facebook og birtir þar jafnframt myndir af athæfinu. Hún biður foreldra í hverfinu að athuga hvað drengir þeirra eru að athafast að kvöldlagi. „Tveir unglingsdrengir voru á...
InnlentÞjóðþekkt miðbæjarfólk sakað um elítustæla: „Mér dettur ekki í hug að afgreiða sjálfan mig“14. október 2020 Það sauð upp úr í Facebook-hópi íbúa í Miðbænum í morgun og féllu ýmiss þung orð. Ástæðan er sjálfsafgreiðsla í verslun Krónunnar og ljóst er að sitt sýnist hverjum. Sumir segja það hneyksli að það sé ekki boðið upp á hefðbundna afgreiðslu meðan aðrir telja það einfaldlega elítustæla. Það var rithöfundurinn Benóný Ægisson sem hóf umræðuna og skrifaði: „Ég er...
InnlentUndirskriftarsafnanir hunsaðar: „Þetta er sorglegur listi“14. október 2020 Gunnar Smári Egilsson, forsprakki Sósíalistaflokksins, segir Íslendingum að vera ekki óþarflega bjartsýnir þegar kemur að undirskriftarsöfnunum. Sagan sýni það skýrt hversu oft vilji stórs hluta þjóðar er ítrekað hunsaður af ráðandi öflum. Til að undirstrika þetta tók Gunnar Smári saman langan lista af hunsuðum undirskriftasöfnunum. Það gerir hann á svæði flokks síns á Facebook. „Í ljósi þess að undirskriftasöfnun um...
InnlentNína varð vitni af sorglegu atviki í matvörubúð: „Mér er illt í hjartanu“13. október 2020 Nína Richter, fyrrverandi kvikmyndagagnrýnandi á RÚV ásamt mörgu öðru, segist á Twitter hafa orðið vitni af sorglegu atviki í matvörubúð í dag. Hún segist hafa verið viðstödd þegar upp komst um þjófnað en af lýsingum hennar að dæma átti viðkomandi enga aðra leið færa til fæða sig. „Ég varð vitni að því þegar upp komst um þjófnað í matvöruverslun í...
Innlent„Hæ hæ, lenti í því að keyra á stelpu“12. október 2020 Jónas nokkur er með heldur furðulega fyrirspurn innan Facebook-hóps íbúa í Reykjanesbæ. Hann spyr, nokkuð afslappað, hvort einhver viti um símanúmerið hjá stúlkunni sem hann ók á í hádeginu í gær. Honum til varnar þá segist hann hafa áhyggjur af stúlkunni. „Hæ hæ, lenti í því að keyra á stelpu sem var að hjóla yfir Aðalgötuna í gær um hádegið,...