Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Netverslun með grænmeti færist í aukana. Lífrænt í forgrunni.

Netverslun með grænmeti færist í aukana. Lífrænt í forgrunni.
Vallanes, Eymundur Magn­ús­son, Eygló Ólafs­dóttir, Móðir Jörð

Að minnsta kosti þrír aðilar hér á landi starf­rækja Net­verslun með Grænmeti. Það eru Bændur í Bænum, Móðir Jörð og Aust­ur­lands Food Coop.

Athygli vekur að allir ein­beita þeir sér nær ein­göngu að líf­rænt vott­uðu græn­meti enda er líf­ræn ræktun orðin mjög útbreidd víð­ast hvar í Evrópu.

Aust­ur­lands Food Co byrj­aði sem sam­fé­lags­legt verk­efni á Seyð­is­firði fyrir fáum árum síðan. Á bak við fyr­ir­tækið standa Jonathan Moto Bisagni og Ida Fel­ten­dal ásamt þéttum hópi vina. Jonathan segir að lítið úrval af fersku græn­meti í versl­unum á Aust­ur­landi hafi rekið þau út í að hefja rekst­ur­inn, sem svo sann­ar­lega hefur undið upp á sig.

Við­skipta­vinir geta nú pantað græn­metiskassa á nýrri heima­síðu foodcoop.is og valið um að fá sent heim að dyrum eða sækja í dreif­ing­ar­mið­stöð nærri heim­ili sínu. Kassinn er 8 til 10 kíló, kostar 8.500 krónur, og inni­heldur blöndu af fersku og sér­lega lit­ríku græn­meti og ávöxtum.

„Græn­metið er 90-95% líf­rænt ræktað og kemur frá Ítalíu, Spáni, Frakk­landi og Hollandi, í gegnum Danmörku. Fyrst um sinn kom græn­metið með Norrænu til Seyð­is­fjarðar frá Danmörku en þegar Covid skall á hætti ferjan að sigla um tíma og þá tókum við upp á að sigla með það til Reykja­víkur,“ segir Jonathan og bætir við að Fjarð­ar­heiði hafi oft á tíðum reynst rekstr­inum fjötur um fót á vet­urna.

Aust­urands Food Coop er mikið í mun að sinna dreifð­ari byggðum lands­ins þar sem lítið úrval er af fersku græn­meti í versl­unum, en jafn­framt eru þau með víð­tæka dreif­ingu á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. „Ef við værum bara í þessu fyrir pen­inga þá myndum við ein­göngu sinna höf­uð­borg­ar­svæð­inu, segir Jonathan.

„Við keyrum sjálf græn­meti norður til Siglu­fjarðar og suður á Djúpavog. Svo erum við með starfs­stöð í Reykja­vík sem sinnir allt frá Vest­manna­eyjum til Vest­fjarða“, segir Jonathan en með dreifi­kerfi sínu ná þau að dekka allt landð.

Jonathan og félagar eru í góðu sam­starfi við nokkra íslenska fram­leið­endur við að koma sínum vörum á fram­færi. Jafn­framt eiga þau í góðu sam­starfi við aðra Net­verslun, Bændur í Bænum. „Bændur í bænum eru algjörir frum­kvöðlar í þess­ari starf­semi og við erum í góðu sam­starfi við þau. Þórður og Karólína eru sann­kall­aðir guð­for­eldrar líf­rænnar versl­unar hér á landi og við reynum að sam­eina krafta okkar,“ segir Jonathan.

Girni­legur græn­metiskassi frá Aust­ur­lands Food Coop

Bændur í bænum hafa um langt skeið boðið upp á viku­lega áskrift­ar­kassa sem notið hafa mik­illa vin­sælda. Hægt er að velja milli fjög­urra mis­mun­andi kassa og mis­mun­andi stærðir fyrir hvern kassa. Afgreiðsla fer fram á mið­viku­dögum og eru kass­arnir afgreiddir á sér­valda afhend­ing­ar­staði eða sendir hvert á land sem er. Hægt er að velja um nokkrar teg­undir af græn­metis- og ávaxta­kössum og er verðið frá 4.490 til 6.990 krónum.

Eymundur og Eygló á Vallnesi

Móðir jörð á Fljóts­dals­hér­aði er meðal öfl­ug­ustu rækt­enda á líf­rænu græn­meti hér á landi. Eygló Björk Ólafs­dóttir og Eymundur Magn­ús­son, bændur á Valla­nesi, eru lík­lega hvað þekkt­ust fyrir ræktun á líf­rænu banka­byggi en jafn­fram rækta þau og nýta um 100 teg­undir af plöntum og státa af breiðri vöru­línu af eigin fram­leiðslu. Net­verslun Móður jarðar er í smíðum en þangað til hún lítur dags­ins ljós er hægt að panta í gegnum tölvu­póst­inn [email protected] og fá sent heim eftir sam­komu­lagi.

„Við höfum boðið upp á þá þjón­ustu í nokkur ár að fólk getur pantað græn­metiskassa úr okkar upp­skeru, umbúða­laust. Fyrst um sinn þjón­u­st­uðum við ein­göngu íbúa Aust­ur­lands en höfum nú fram­lengt okkar dreif­ingu til höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins,“ segir Eygló sem meðal ann­ars notar inn­an­lands­flugið við dreif­ingu á pönt­unum og getur fólk þá sótt á Reykja­vík­ur­flug­völl.

Um er að ræða allt að 5 kílóa kassa sem kosta 3.500 krónur beint af bónda en 5.000 krónur lentur í Reykja­vík. „Græn­metiskass­arnir end­ur­spegla breið­ara úrval en við höfum boðið upp á í versl­unum, allt upp í æt blóm og grasker,“ segir Eygló og bætir við að fjöldi fólks leggi jafn­framt leið sína í Asp­ar­húsið á Valla­nesi til þess að sækja sitt græn­meti. Í kort­unum hjá Móður Jörð er að opna nýja heima­síðu með Net­verslun á græn­meti.

Uppskera á Valla­nesi

SPE

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð