Fólk„Þjáning getur verið dásamleg á margan hátt“10. janúar 2019 Valdís Sylvía Sigurþórsdóttir hefur starfað sem einkaþjálfari í næstum tvo áratugi en hún er stofnandi Jump fit og Foam flex á Íslandi. Hún segir mikilvægt að tala fallega til sjálfs sín og burðast ekki um með hugarfarsleg aukakíló. Valdís prýðir forsíðu nýjustu Vikunnar.
FólkGuðni Már nýtur lífsins í sólinni10. janúar 2019 Guðni Már Henningsson er fluttur til Tenerife, þar sem kaffið kólnar ekki í bollanum þótt það standi nokkrar mínútur á borði og hann segir að sér hafi ekki liðið betur í fjörutiu ár.
FólkUrðu vegan eftir að horfa á Cowspiracy9. janúar 2019 Fyrir þremur árum horfðu þau Þórdís Ólöf og Aron Gauti á heimildarmyndina Cowspiracy en í henni er fjallað um hvernig dýralandbúnaðurinn sé helsta orsök mengunnar, vatnsnotkunnar og eyðingu regnskóga í heiminum. Næsta dag ákváðu þau að gerast vegan.
FólkKjörkuð, kraftmikil og ósérhlífin9. janúar 2019 Auður Guðjónsdóttir skurðhjúkrunarfræðingur er löngu landskunn fyrir einarðlega og sleitulausa baráttu sína í þágu þeirra sem orðið hafa fyrir mænuskaða. Dóttir hennar, Hrafnhildur Thoroddsen, slasaðist í umferðarslysi árið 1989 og hefur síðan notað hjólastól. Árið 2007 stofnaði Auður Mænuskaðastofnun Íslands þar sem hún er stjórnarformaður.
FólkFer úr líkamanum til að hjálpa fólki8. janúar 2019 Guðmundur Mýrdal læknamiðill hefur verið búsettur í Bandaríkjunum, nánar tiltekið í Kaliforníu hátt í 30 ár. Hann hefur helgað líf sitt hugrænum málefnum og lagt mikla vinnu í að rækta sitt innra sjálf. Hann hefur síðustu tvö ár lagt stund á og lært um svokallaðan shamanisma og vonast til að fræða Íslendinga nánar um málefnið.
FólkFann ástina á ný3. janúar 2019 Kolbrún Pálína Helgadóttir fór úr fegurðarbransanum yfir í harðan heim fjölmiðlanna. Kaflaskil urðu hjá Kollu, eins og hún er jafnan kölluð, fyrir þremur árum þegar hún og barnsfaðir hennar skildu. Í einlægu viðtali við Vikuna lýsir hún því hvernig hún vann sig upp úr fósturstellingunni yfir í látlausara og hamingjuríkara líf.
FólkGóð ráð gegn timburmönnum frá fræga fólkinu2. janúar 2019 Hvað er best að gera í baráttunni við þynnkuna? Meðfylgjandi eru nokkur góð ráð frá fræga fólkinu.
FólkHvenær byrjuðu brennur á Íslandi?31. desember 2018 Áramótabrennur hafa þekkst á Íslandi frá því að skólapiltar úr Hólavallaskóla söfnuðu saman tunnum og öðru timburrusli árið 1791 og kveiktu í á hæð sem þeir kölluðu Vulcan (eldfjall) en þar er sennilega átt við Landakotshæð. Fram að þeim tíma þótti timbur og annar eldiviður einfaldlega of dýrmætur til að sóa í slíkt. Rúmlega hálfri öld síðar voru brennur orðnar...
Fólk„Veðrið að morgni nýársdags skiptir máli“31. desember 2018 Ýmis hjátrú fylgir komu nýja ársins auk þess sem margir ætla sér að bæta sig á hinum og þessum sviðum á árinu sem fer að ganga í garð.
FólkSnillingur að taka sig til á stuttum tíma26. desember 2018 Hulda Vigdísardóttir vinnur á auglýsingastofunni Pipar/TBWA en hefur jafnframt starfað sem fyrirsæta í rúm sex ár, hér heima og erlendis. Hún þýddi einnig bókina Hnotubrjóturinn og músakóngurinn eftir E.T.A. Hoffmann sem nýlega kom út í fyrsta sinn í íslenskri þýðingu. Myndskreytingar í bókinni eru eftir listakonuna Margréti Reykdal. Hulda leyfði okkar að kíkja aðeins í fataskápinn sinn. „Ég hef alltaf...
FólkBest að finna jafnvægið í öllu23. desember 2018 Hafrún Lilja Elíasdóttir er sannkallaður baksturssnillingur sem hefur þann hæfileika að baka ekki aðeins gómsætar kökur, heldur líka dásamlega fallegar kökur. Fjölskyldumeðlimir og vinir Hafrúnar njóta oft góðs af hæfileikum hennar en þegar kemur að hinum ýmsu tilefnum er hún ávallt boðin og búin að leggja sitt á vogarskálarnar.
FólkUpplifir spennuna og gleðina í gegnum dóttur sína22. desember 2018 Tara Brynjarsdóttir starfar sem kennari í Laugalækjarskóla, þar sem hún kennir meðal annars heimilisfræði. Eitt af helstu áhugamálum Töru er að dunda sér í eldhúsinu, sérstaklega með dóttur sinni. Þar eiga þær mæðgur margar af sínum bestu gæðastundum.