Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Urðu vegan eftir að horfa á Cowspiracy

Fyrir þremur árum horfðu þau Þórdís Ólöf og Aron Gauti á heim­ild­ar­mynd­ina Cowspiracy en í henni er fjallað um hvernig dýra­land­bún­að­ur­inn sé helsta orsök meng­unnar, vatns­notkunnar og eyð­ingu regn­skóga í heim­inum. Næsta dag ákváðu þau að ger­ast vegan.

Urðu vegan eftir að horfa á Cowspiracy

Þau hafa sankað að sér ýmsum fróð­leik og komust að því að vegan­ismi er ekki ein­ungis umhverf­is­vænn lífs­stíll heldur ein­stak­lega heilsu­vænn. Þau segj­ast vera vegan í dag fyrir dýrin, umhverfið og heils­una. Við fengum þau til þess að deila með okkur þremur auð­veldum upp­skriftum að vegan­réttum sem ættu að hvetja fólk til heil­brigð­ari lífs­hátta á nýja árinu.

Hver var mesta áskor­unin við að verða vegan til að byrja með? Ólíkt því sem margir halda þá var lítið mál að breyta sjálfu matar­æð­inu. Helsta áskor­unin var hins vegar við­brögð margra í kringum okkur en við mættum víða for­dómum og jafn­vel and­stöðu. Besta svarið við slíkum for­dómum er bara að halda sínu striki og láta skoð­anir ann­arra ekki á sig fá, enda sýndu líka margir okkur stuðn­ing, áhuga og skiln­ing.

Hver er mesta mýtan í kringum vegan­isma? Helsta mýtan er sú að græn­kerar fái ekki nóg prótín. Stað­reyndin er hins vegar sú að það er feik­inóg prótín að fá úr plöntu­rík­inu. Fjöldi íþrótta­manna hefur kosið að ger­ast vegan og það sýnir að mýtan um „veik­burða græn­metisæt­una/veganist­ann“ á ekki við nein rök að styðj­ast.

Helsta áskor­unin var hins vegar við­brögð margra í kringum okkur en við mættum víða for­dómum og jafn­vel and­stöðu.

Hvað er ómissandi í eld­hús veganista? Okkur finnst mik­il­væg­ast að halda opnum hug og vera til í að prófa eitt­hvað nýtt í eld­hús­inu. Þar fyrir utan finnst okkur góð mat­vinnslu­vél algjört lyk­il­at­riði.

Hver er upp­á­halds­upp­skriftin ykkar? Við þró­uðum nýlega upp­skrift að heima­til­búnum osti sem er gerður úr kasjú­hnetum. Sú upp­skrift er í algjöru upp­á­haldi hjá okkur en ost­ur­inn er ein­faldur, hollur og virki­lega bragð­góður. Hægt er að finna upp­skrift­ina á síð­unni okkar.

Með hverju mælið þið við fólk sem hefur áhuga á að prófa sig áfram í vegan­fræðum? Þegar tekin eru skref inn í heim vegan-lífs­stíls þá eru fæstir sem verða vegan „á einu kvöldi“ líkt og við gerðum. Það tekur tíma og vinnu að breyta um lífs­stíl og mik­il­væg­ast er að gef­ast ekki upp. Við mælum einnig með því að fólk kynni sér stað­reyndir og hug­mynda­fræði vegan­isma því enn er tals­vert um for­dóma og lífseigar mýtur sem erfitt er að útrýma, sama hversu oft þær eru afsann­aðar.

Almennt er talað um þrjár meg­in­á­stæður fyrir því að fólk ger­ist vegan; dýra­vernd, umhverf­is­vernd og heilsa. Þegar við urðum vegan fannst okkur gott að átta okkur á því hvaða ástæður lægju að baki okkar ákvörðun og gátum þannig minnt sjálf okkur reglu­lega á það.

Morgungrautur

Grunnur:

1 dl hafrar
1 msk. chia-fræ
1 dl vegan-jógúrt
1-2 dl plöntu­mjólk
½ tsk. hlyn­sýróp eða 2-3 dropar stevía
salt

Setjið öll hrá­efnin í hræri­vél og hrærið saman í 10-20 mín. Setjið graut­inn síðan í ílát og geymið í kæli yfir nótt. Það má sleppa því að nota hræri­vél og setja hrá­efnin beint í ílát, hrista rétt svo saman og setja í kæli. Með því að nota hræri­vél þá verður graut­ur­inn hins vegar létt­ari og loft­kennd­ari.

Til­brigði:

fersk jarð­ar­ber
1 tsk. vanilla, eða vanillu­dropar
1 tsk. sítrónu­safi
sítrónu­börkur, af hálfri sítrónu

Setjið skorin jarð­ar­ber, rif­inn sítrónu­börk, sítrónusafa og vanillu út á graut­inn áður en hann er settur í kæli og blandið létt saman. Morg­un­inn eftir er gott að setja t.d. möndlu­flögur og skor­inn ban­ana út á graut­inn.

Hummuspasta

200 g pasta
1 askja sveppir
200 g brokk­ólí
1 laukur
100 g spínat
3 dl hummus (heima­gerður eða úr búð)
1 dl pasta­soð
1 dl kókos­mjólk í dós, þykki hlut­inn
2 tsk. sítónu­safi
salt og pipar

Skerið lauk, sveppi og brokk­ólí niður og steikið á pönnu þar til svepp­irnir hafa mýkst. Sjóðið pastað nokkrum mín­útum styttra en leið­bein­ingar segja til um. Sigtið vökvann frá en haldið 1 dl eftir. Setjið 1 dl af vökv­anum, hummus og kókos­mjólk út á pastað og hrærið vel saman. Bætið lauk, sveppum og brokk­ólíi út í pastað, ásamt spínati. Sjóðið þar til pastað er orðið mjúkt. Bætið loks við sítrónusafa og kryddið með salti og pipar eftir smekk.

 Heimagerður hummus

1 dós kjúklinga­baunir
1 msk. tahini
1 msk. sítrónu­safi
1-2 hvít­lauks­rif
1 tsk. tamar­ind-sósa eða sojasósa
1/2 tsk. cumin salt og pipar
cayenne pipar

Setjið sítrónusafa, tahini og kjúklinga­baunir í mat­vinnslu­vél og blandið þar til silki­mjúkt. Bætið því næst hinum hrá­efn­unum út í og blandið saman í nokkrar sek. Ef erfitt er að ná mjúkri áferð getur hjálpað að bæta við örlitlu vatni.

Indverskt dal

1 laukur
2 hvít­lauks­rif
1 msk. ferskt engi­fer
2 tsk. garam masala
1 tsk. cumin
½ tsk. karrý
cayenne pipar eftir smekk
½ blóm­káls­haus
300 g gul­rætur
3 dl rauðar linsu­baunir
6 dl vatn
1 dós kókos­mjólk, þykk
1 græn­metisten­ingur
1 msk. tómat­púrra
3 tsk. sítrónu­safi
1 tsk. hlyn­sýróp
salt

Saxið lauk, hvít­lauk og engi­fer smátt og mýkið í potti, upp úr olíu. Bætið garam masala, cumin, karrý og cayenne pipar út á og steikið áfram í nokkrar mín­útur. Skerið gul­rætur og blóm­kálið smátt niður og bætið út í pott­inn. Steikið græn­metið í nokkrar mín­útur og bætið þá linsu­baunum, vatni, kókos­mjólk, græn­metisten­ing og tómat­púrru í pott­inn. Látið blönd­una malla í 30-40 mín­útur eða þar til gul­ræt­urnar eru mjúkar í gegn. Bætið loks sítrónusafa, hlyn­sýrópi og salti út í og látið malla í smá­stund. Smakkið til og bætið við kryddum eftir smekk. Berið fram með hrís­grjónum eða quinoa, jógúrtsósu og naan brauði.

Jógúrtsósa

2 dl vegan-jógúrt
2 dl Oatly sýrður rjómi
½ gúrka
1 hvít­lauks­rif
2-3 tsk. sítrónu­safi salt og pipar

Rífið gúrku smátt á rifjárni og reynið að kreista vökvann frá eins vel og hægt er. Pressið hvít­l­auk­inn og blandið síðan saman öllum hrá­efn­unum. Geymið sós­una í kæli þar til hún er borin fram.

Naan-brauð

3 dl spelt (gróft og fínt)
1 tsk. vín­steinslyfti­duft
1 msk. ólífu­olía
1 dl vegan-mjólk
salt

Blandið hrá­efn­unum saman og hnoðið deig. Bætið við hveiti ef þarf. Fletjið litlar, þunnar kökur úr deig­inu með köku­kefli. Þurr­steikið hverja köku fyrir sig á pönnu, við nokkuð háan hita. Snúið kök­unum við eftir 1-2 mín, en þá eiga kök­urnar að hafa lyft sér og brúnast. Staflið kök­unum á disk og berið fram með dal­inu. Gott er að dýfa brauð­inu í ólífu­olíu eða bráðið vegan-smjör og sesam­fræ.

Myndir / Aron Gauti Sig­urð­ar­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina