Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Finnbogi keypti sér sjoppu: „Ég vissi um hverja einustu kerlingu sem var að skilja í Fossvoginum“

Finnbogi Þorláksson í fjallgöngu.
Finnbogi Þor­láks­son í fjall­göngu.

Finnbogi Þorláksson, fyrr­verandi togarskipstjóri, býr í dag á La Marina á Spáni. Hann og kona hans, Katrín Eiðs­dóttir hafa búiið þar í nokkur ár og eru nýbúin að kaupa sér fallegt hús. Finnbogi ræddi málin í viðtali við Sjóarann.

„Það var nú meiri helvítis vitleysan,“ segir sjómaðurinn og afla­skip­stjórinn fyrr­verandi Finnbogi Þorláksson um það þegar hann var á Björgúlfi EA og þeir lentu í háska í hafís við Horn. „Ísinn var á svo mikilli ferð að það lokaðist upp í fjöru á eftir okkur. Við skriðum með fjörunni fram og til baka.“

Var hann smeykur?

„Nei, ég hef aldrei verið smeykur til sjós.

Við vorum bara að reyna að komast til Dalvíkur fyrir jól. Við snerum við á Horn­víkinni. Fiskurinn varð að komast norður. Við lönduðum í Reykjavík og svo var trukkað norður. Síðan sigldum við austur fyrir land til að komast á Dalvík.“

Finnbogi var stýri­maður í þessum túr og segir að þeir hafi verið með eitthvað gamalt radar­drasl sem hafi nú sést lítið í. „Óli Bekkur var með okkur. Ari var með Óla Bekk. Svo þegar birti og karlarnir vöknuðu þá klifraði Ari upp í mastur. Hann komst að þeirri niður­stöðu að það væri ekkert vit í þessu. Það broslega við þetta allt saman er að það var skíta­bræla fyrir austan; að berjast þara norður með Aust­fjörðunum. Við vorum ekki komnir til Dalvíkur og þá var ísinn farinn. Það var búið að vinna fiskinn.“

Þannig fór um sjóferð þá.

Hvolpalæti

Finnbogi er Reyk­víkingur og voru foreldrar hans Magnea Ólöf Finnboga­dóttir og Þorákur Runólfsson. „Þau eru bæði dáin. Ágætis fólk.“

Þú varst bölvaður villingur.

„Nei, nei.“

Sem ungur maður.

„Nei, ég gengst ekki við því.“

Þú varst einn af þeim sem fóru í Núpsskóla.

„Það var af því að ég var svo duglegur að læra.“

Hann segir að eina vesenið á sér þar hafi verið að hann – og fleiri – voru að skríða yfir á kvenna­vist.

„Þegar ég fór á Núp var Bjarni Pálsson skóla­stjóri.“

Gat Finnbogi laumast fram hjá honum til að komast á kvenna­vistina?

„Það var ýmislegt reynt.“

Og tókst stundum?

„Alltaf.“

Aldrei gripinn?

„Jú, einu sinni.

Þetta var ekk­ert kyn­líf. Þetta var bara svona hvolpa.

Þá sváfum við yfir á kvenna­vist. Svo var ræs á morgnana. Við sváfum yfir okkur. Þá vorum við ræstir uppi í hjá einhverjum. Þetta var ekkert kynlíf. Þetta var bara svona hvolpa.“

Hvolpa­læti.

„Já.“

Hvað með refsinguna?

„Ég fór í vikufrí.“

Þú varst rekinn í viku?

„Já. Ég þótti það bara frí. Ég fór suður. Við fórum þrír.“

Þetta hefur verið kærkomið. Hjásofelsið sem endaði með skemmtilegu fríi í Reykjavík.

„Mér er minnis­stætt þar sem ég sofnaði hjá einhverri stúlku; það skiptir ekki máli hver hún er. Það skeði nú ekki neitt. Bjarni Pálsson sagði við mig: „Gastu ekki skriðið upp í koju hjá einhverri annarri stúlku heldur en þessari? Af því að þetta er stúlka sem ég átti sérstak­lega að passa upp á í skólanum. Ég er að bregðast traustinu með að þú ert kominn upp í til hennar.“

Í Stýrimannaskólann

Finnbogi byrjaði ungur á netabátum fyrir sunnan; fór á sjóinn fljótlega eftir skóla­vistina á Núpi. „Það voru gerðir út togarar hjá Bæjar­útgerðinni. Þá fóru ungir menn suður í Grindavík. Keflavík. Það voru tugir eða hundruð vertíðar­báta. En aftur fyrir norðan fóru strákar mest á togarana. Ég byrjaði á þessum vertíðar­bátum og það er eiginlega mesti þrældómur sem ég hef verið í til sjós.“

Á netunum.

„Á netum. Það var strandveiði­karl að tala um 160 net. Ég var að reikna út í huganum; ég held við höfum verið með 400 net. 20 trossur. Og 20 net í trossunni. Þetta þýddi það að það var ekki mikil pása. Það var ekki meiri veiði en það að það fór bunki af netum í sjó til að ná einhverju en nú þurfa þeir þess ekki. Það þarf bara að leggja einhverja netstubba hér og þar og það er fullt af fiski. Það var ekki þannig þá.“

Kunni Finnbogi strax vel við þetta?

„Já, einhvern veginn festist maður í þessu.“

Jú, sjórinn lokkar og laðar.

Svo fór hún að fitna eitt­hvað óeðli­lega mikið.

„Ég fór í verbúð hjá Dóra Páls í Hnífsdal. Þar kynntist ég konunni minni. Hún var að vinna hjá Mugg í rækjunni. Þá vorum við í sömu verbúð. Svo fór hún að fitna eitthvað óeðlilega mikið.“

Þykkna undir belti eins og kallað er.

„Já.“

Lítill drengur kom svo í heiminn. Hann er sjómaður í dag. Heitir Jóhann.

„Við vorum búin að koma okkur upp íbúð. Við vorum komin með pínu búslóð. Þetta er minnis­stætt. Svo ákváðum við að fara norður á Akureyri og Hörður á Guðbjarti var að fara í slipp á Akureyri.“

Af hverju fluttuð þið til Akureyrar?

„Kominn með konu og barn.“

Af hverju til Akureyrar?

„Hún vildi vera þar.“

Er hún þaðan?

„Já, hún er fædd og uppalin þar. Og ég fór bara á sjóinn.“

Það var góður skóli og mik­ill lær­dómur að vera með þessum körlum.

Finnbogi fór á togarann Kaldbak frá Akureyri og segist hafa fengið fínasta uppeldi hjá Þorsteini Vilhelms­syni skip­stjóra. „Ég var bara bátakarl. Ég var fljótur að læra að bæta og svona. Ég byrjaði sem háseti hjá Steina Villa á Kaldbak.“ Hann nefnir líka Svein Hjálmarsson og Óla Hermanns. „Það var góður skóli að vera með Steina Villa. Það var sótt stíft. Það var ekkert alltaf tekið inn fyrir. Það var góður skóli og mikill lærdómur að vera með þessum körlum.“

Finnbogi segir að það hafi verið öndvegis­áhöfn á Kaldbak. „Og þeir sem voru uppi í brú, Steini og Svenni, þurftu eiginlega ekki að garga neitt. Þetta voru strákar sem voru hundvanir öllu og það þurfti ekkert að segja þeim til. Það þurfti ekkert að garga á þá.“

Gekk alltaf vel með Kaldbak? Var þetta áfalla­laust?

„Já. Aldrei nein áföll eða nokkur skapaður hlutur.“

Var ekki bil á milli yfirmanna og undir­manna eins og sums staðar?

„Jú, það voru tvö borð í borð­salnum. Yfirmanna­borð og undirmanna­borð. Það var nú ekkert heilagt. Þetta var að deyja út. Það var sami matur á borðum. Þetta var einhver gömul hefð sem fjaraði út. Hún var byrjuð að fjara út þarna.“

Finnbogi var á dekkinu á Kaldbak og fór í Stýrimanna­skólann þegar hann vann þar. Steini og Sveinn kvöttu hann til þess.

„Ég fór suður og bjó fyrir sunnan í þrjú ár. Það fjölgaði fljótt í hreiðrinu. Það voru tvö börn þegar við fórum suður og endaði með fjórum.“

Þið enduðum á fjórum börnum og þú allaf á sjónum.

„Það var 30 tíma stopp og 30 tíma hafnarfrí.“

Svo útskrifaðist Finnbogi úr Stýrimanna­skólanum. Þá leysti hann af til að byrja með sem 2. stýri­maður á Kaldbak. „Svo fór ég austur á Þórshöfn með Sigga Friðriks á Stakfelli. Sigurði Friðriks­syni. Ég lærði mikið af honum. Hann var góður karl.“ Þar var Finnbogi 1. stýri­maður.

„Þaðan fór ég yfir á Björgúlf og þar var ég í 23 ár.“

Niðurbrotinn ungur maður

Björgúlfur.

Finnbogi byrjaði sem 2. stýri­maður og varð svo 1. stýri­maður á móti Sigurði Haralds­syni.

„Það var gott að vera með honum. Sérstakur karl en góður karl. Við vorum saman í 18 ár held ég. Einhvern tímann hlógum við að því í einhverju fylliríi að við værum í meira sambandi við hvorn annan heldur en konurnar okkar. Svo hætti Siggi og þá tók ég við.“

Það var kol­vi­laust veður allan tím­ann.

Finnbogi segir að sér hafi liðið illa í fyrsta túrnum sem hann fór sem skip­stjóri.

„Hann var þannig þessi túr að ég vil helst ekki rifja hann upp. Þetta var jómfrúar­túrinn minn sem skip­stjóri. Þetta var fyrir jól. Það var hefð að skip­stjórarnir færu í frí fyrir jólin og stýri­mennirnir sátu í súpunni með að fara með skipið. Það var kolvilaust veður allan tímann. Það var hafís og það var alveg sama hvað hann gerði.“ Þeir misstu troll. „Sleit það í einhverjum klaufa­skap. Það var inni í ísnum þannig að það var helvítis föndur að ná því upp en það hafðist. Svo kom ég til Dalvíkur niður­brotinn ungur maður.“

Finnbogi skip­stjóri á blóma­tím­anum.

Hvað var mikið í lestinni?

„Ég held það hafi verið 36 tonn. Þannig að það var ekki hátt á manni risið. Ég fór á skrif­stofuna til Valdimars Braga­sonar sem var útgerðar­stjóri, alveg öndvegis­maður, og sagði að ég héldi að þetta gengi ekki. „Finnbogi minn, hafði ekki áhyggjur af þessu; þinn ferill getur ekki farið nema upp á við.“ Við erum ennþá vinir. Við tölum ennþá saman.“

Næsti túr gekk þó upp.

„Já, það gekk þokkalega. Á þessum tíma var ekki veiði eins og núna síðustu ár. Það er alveg sama hvar er liggur við. Það þurfti oft að berjast. Það þótti helvíti gott að vera með 80-100 tonn í viku til 10 daga túr.“

Svo tók Finnbogi við skipinu. Varð karlinn í brúnni. Var skip­stjóri í fimm til sex ár. Hann segir að hann hafi alltaf hlakkað til að fara á sjóinn.“

Svo vildi hann losna við mig

Svo fór Finnbogi að vinna hjá Samherja þegar fyrir­tækið á Dalvík rann inn í það fyrirtæki.  Hvernig leist honum á það?

„Ég hafði ekkert með það að segja,“ segir hann en hann vann hjá fyrir­tækinu í nokkur ár.

„Á endanum rak Mái mig. Það segir sína sögu.

Hann er bara hörku djöf­ull dug­legur.

Var þetta ástarhaturs­samband á milli hans og Þorsteins Más?

„Þorsteinn Már er bara eins og hann er. Hann er bara hörku djöfull duglegur og hann er búinn að búa til risa­fyrirtæki en mér er alveg sama. Það má ekki taka það af honum; hann er ofvirkur og duglegur. Búinn að búa til þetta apparat. En það er eitt sem hann vantar; að vera pínu skemmtilegur. Það er allt í lagi að vera pínu skemmtilegur þó þú sért duglegur. Ég sá um Björgúlf og það var mín deild. Við fengum okkur kaffi þegar við hittumst. Það voru engir árekstrar.“

Ekki strax.

„Það var ekkert slæmt að vinna hjá þeim. Það voru kröfur sem er eðlilegt. Ég er ekkert að kvarta yfir því. Svo vildi hann losna við mig og losaði sig við mig.“

Af hverju vildi hann losna við þig?

„Þú verður að spyrja hann að því.“

Kom hann og tilkynnti þér að þú yrðir að hætta?

„Ég væri alltaf fullur um borð sem er nátt­úrlega rangt. Ég ætlaði að hætta um áramótin. Mig langaði það. Þetta var um haustið. Ég fékk fínan starfsloka­samning. Það eru 10 til 12 ár síðan.“

Það þarf ekk­ert skip­stjóra á skipum í dag.

Það hefur ekkert hvarflað að þér að fara aftur á sjó?

„Þetta var orðið leiðinlegt. Þetta var orðin svo mikil Excel-vinna. Áður fyrr fór maður bara út á sjó. Nú er þetta orðið svo mikið Excel. Það þarf ekkert skip­stjóra á skipum í dag.“

Ég var eins og sálfræðingur

Hann sem hafði verið svo lengi á sjónum söðlaði um eftir að hafa „leikið sér“ í einhverja mánuði. „Svo leiddist mér það og asnaðist til að kaupa mér sjoppu. Það var dálítið fyndið að sitja inni í sjoppu. Og ég hafði aldrei komið nálægt neinu svona. Ég vissi ekkert hvað ég átti að gera.“

Það var sjoppa við Bústaðveg. Söluturn.

Ég vissi um hverja einstu kerl­ingu sem var að skilja í Foss­vog­inum.

„Hún heitir Póló. Samanber Prince Poli. Ég skírði hana það. Ég kunni ekki neitt. Ég kunni ekki á peninga­kassa eða neitt. Ég sat þarna fyrstu þrjá mánuðuna og klóraði mér í hausnum; hvernig í andskotanum átti ég að moka mig út úr þessu án þess að tapa fé? Svo fór þetta að rúlla og endaði með því að ég hafði það betra þarna heldur en skip­stjóri á togara. Það er bara þannig. Þetta var allt annar starfs­vettvangur. Milljón manns að koma og ég vissi um hverja einstu kerlingu sem var að skilja í Foss­voginum. Ég var eins og sálfræðingur. Þetta var mjög gaman. Ég kynntist helling af fólki.“

Finnbogi og Katrín una sér vel á Spáni.

Finnbogi leigði reksturinn fyrst og síðar keypti hann húsnæðið sem sölu­turninn er í.

„Það var rífandi gangur í þessu.“

Svo nennti hann þessu ekki lengur.

Konan hans í dag, Kata, kom inn í myndina. Henni kynntist hann á meðan hann rak sölutöurninn.

„Kata bjó í Borgar­firði. Ég fór upp í Kaldadal. Það var erfiður dagur. Ég fór upp á Okið,“ segir Finnbogi sem var farinn að stunda fjall­göngur. „Ég var alveg gjör­samlega búinn. Fór í Húsafell og fékk mér að éta. Ég datt í það og gisti í Húsafeli og hringdi í dóttur mína sem sá um sjoppuna og sagði að hún yrði að vinna líka fyrir mig daginn eftir. Þá fór ég inn á Kleppsár­reyki og þá var Kata að vinna þar.“

Þannig byrjaði það sem endaði í hjóna­bandi.

„Það gengur vel hjá okkur. Svo fékk ég hana í bæinn til að vinna í sjoppunni og þá gisti hún heima hjá mér í Hafnar­firði. Það var gesta­herbergi. Það er ágrein­ingur í hjóna­bandinu hvort ég hafi skriðið inn í gesta­herbergið eða öfugt. Við erum ennþá ekki sammála.“

Ég er bölvuð kulda­skræfa.

Svo heillaði suðrænt land og í dag búa hjónin á Spáni.

„Ég er bölvuð kulda­skræfa. Ég segi að ég hafi farið í Stýrimanna­skólann til að komast upp í brú í hitann úr helvítis kulda­volkinu. En okkur líður vel hérna og erum búin að vera hérna í sex ár.“

Er framtíðin á Spáni?

„Það er gott að bíða eftir Guði hér.“

Podcastið með viðtalinu við Finnboga er að finna hér. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá