Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Unglingsdrengir rændu 200 kílóa peningaskáp – Frömdu tíu innbrot á tveimur mánuðum

Árið 1946 var stór­aukning á innbrotum í Reykjavík, eitt þeirra var það stærsta frá upphafi. Var það þegar þjófar náðu að ræna 200 kílóa þungum peninga­skáp af annari lyftu­lausu skrifstofu­húsnæði. Enginn varð var við þessi ósköp en lögreglan í Reykjavík var handviss að um þaulvana glæpamenn væri að ræða.

Miðvikudaginn 27.febrúar árið 1946, hálfu ári eftir að seinni heims­styrjöldinni lauk, var brotist inn í húsnæði útgerðarinnar Kveldúlfs við Skúlagötu. Kveld­úlfur var stærsta útgerð landsins og var hún í eigu athafna­mannsins Thors Jensen og sona hans. Thor var danskur en flutti ungur til Íslands þar sem hann varð þjóð­þekktur, synir hans sáu að mestu um útgerðina þegar innbrotið átti sér stað og var einn þeirra forstætis­ráðherra Íslands, Ólafur Thors.

Þegar þjófarnir höfðu komist inn í húsið brutu þeir upp skrifborðs­skúffur, þar var þó engin verðmæti að finna. Laun starfs­manna og önnur verðmæti voru geymd í læstum peninga­skápum á skrif­stofu fyrir­tækisins. Með skrúf­járni reyndu þjófarnir að brjóta upp einn skápanna en það tókst ekki. Þá ákváðu þeir að taka skápinn með sér og opna hann annarsstaðar. Á leið sinni út rákust þjófarnir á starfs­mann fyrir­tækisins, þeir lýstu vasa­ljósum í augu mannsins og gengu út. Starfs­manninum var brugðið og reyndi hvorki að stoppa mennina né elta þá, hann komst ekki að innbrotinu fyrr en daginn eftir.

Þjófarnir byrjuðu á því að ræna bíl sem lagt var í bifreið og keyra honum að húsnæði Kveldúlfs, þar drösluðu þeir niður 200 kílóa peninga­skápnum og náðu að valda tölu­verðum skemmdum í leiðinni.

Í skápnum reyndist vera töluvert magn af peningum eða 67 þúsund krónur. Maðurinn sem átti bílinn sem þjófarnir stálu tilkynnti lögreglunni um atburðinn og var þá strax lýst eftir bifreiðinni. Starfs­maður hjá Kveldúlfi hafði tekið eftir bílnum um miðnætti þegar þjófnaðurinn átti sér stað.

Peninga­skápurinn fannst í nágrenni við Berkla­hælið á Vífils­stöðum. Þjófarnir höfðu brotið upp botninn á skápnum og tekið allt lausafé, eftir stóðu þó nokkur skulda­bréf. Enginn fingraför fundust á skápnum.

Rannsókn málsins bar engan árangur fyrr en í mars þegar lögreglu­maður á vakt tók eftir strákum á óskráðu mótorhjólu en þeir hlýddu ekki þegar hann gaf þeim merki um að stöðva hjólið. Farþeginn stökk af hjólinu og flúði en ökumaðurinn náði að stinga lögregluna af. Sá sem flúði fótgangandi náðist þó og gat gefið lögreglu upplýsingar um ökumanninn.

Dren­girnir sögðust heita Hannes og Garðar en þeim var sleppt og hjólið tekið. Hannes fór þó og rændi hjólinu af lögreglu­stöðinni.

Þremur dögum eftir atvikið á mótorjólinu voru Hannes og Garðar hand­teknir ásamt tveimur öðrum mönnum, Aðalstein og Guðmundi, grunaðir um innbrotið í Kveldúlf. Guðmundur var aðeins 16 ára og Garðar 17 ára, þeir reyndust hafa einir staðið að innbrotinu og var hinum því sleppt. Félagarnir höfðu ítrekað komið við sögu lögreglu síðan þeir voru 11 og 12 ára gamlir.

Síðar kom í ljós að dren­girnir tveir höfðu gerst sekir um níu innbrot í byrjun árs 1946. Mikið var um unga þjófa á þessum árum og var fjöldi þjófahópa starfandi, sumir með börnum niður í 9 ára.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá