Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Covid-veikur Grímur kom Helgu Völu á óvart á afmælisdaginn: „Það brast á með söng í götunni“

Helga Vala Helgadóttir.
Helga Vala Helga­dóttir.

Afmælis­barn dagsins er engin önnur en Helga Vala Helga­dóttir, leikkona, lögmaður og þingkona Samfylkingarinnar. Um er að ræða stór­afmæli en hún er hálfrar aldar gömul í dag.

Helga Vala hefur í gegnum tíðina fengist við ýmislegt en hún útskrifaðist sem leikkona frá Leiklistar­skóla Íslands árið 1998 en hún hefur ekki langt að sækja leik­hæfileika sína. Foreldrar hennar voru báðir leikarar, þau Helgi Skúlason og Helga Bachmann. Þá er hún einnig með masters­gráðu í lögfræði. Hún hefur meðal annars unnið sem leikkona og leik­stjóri, dagskrár­gerðarkona í útvarpi, blaðakona á Mannlífi og svo hefur hún rekið eigin lögmanns­stofu. Árið 2016 var hún kosin á þing fyrir Samfylkinguna og hefur verið á þingi síðan. Eigin­maður Helgu Völu er Grímur Atlason, framkvæmdar­stjóri en saman eiga þau tvö börn en þau eiga svo eitt barn hvort úr fyrri samböndum.

Mannlíf sló á þráðinn hjá henni og spurði hana hvort hún ætlaði að fagna deginum á einhvern hátt.

„Ég hélt að ég væri að fara í látlaust kaffi með yngri dóttur minni en við erum tvær einar í augna­blikinu. Yngsti sonur minn býr á Ísafirði og maðurinn minn er með Covid úti í bæ. En þá hafði Grímur verið búinn að skipuleggja eitthvað óvænt partý. Það brast á með söng í götunni og ruddust inn dásam­legir vinir og fjölskyldu­meðlimir. Þannig að þetta var mjög óvænt. Þetta var yndislegt. Hann náði mér alveg, ég var búinn að segja við hann að vegna þessarar leiðinlegu veiru vildi ég fresta afmælinu algjör­lega í eina viku. En hann var nú ekki alveg sammála því.“

En ætlar hún að halda eitthvað frekar upp á daginn í dag?

„Já, ég ætla að halda upp á daginn með því að ræða geðheilbrigðismál við heilbrigðis­ráðherrann. Mér finnst það ágætis verkefni á fimmtugsafmæli. En svo er ég að hugsa að halda bara almennilega upp á afmælið með vorinu, ég er svo mikil vormanneskja.“

Mannlíf óskar Helgu Völu innilega til hamingju með stór­afmælið!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá