Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Elísabet hvarf sporlaust frá heimili sínu við Háaleitisbraut

Elísabet Bahr Ingólfsson var fædd þann 1.júní árið 1926 í bænum Pommern í Þýska­landi. Hún var elst fjögurra barna þeirra Hans Joachim Bahr, prests og Gertrud Bahr.

Elísabet kom til Íslands árið 1949. Í fyrstu ætlaði hún sér að vera í ár hér á landi og dvelja hjá frænku sinni á Akureyri en kynntist þá verðandi eigin­manni sínum, Baldri Ingólfs­syni, þýðanda og kennara. Parið gifti sig árið 1951 og settust að í Reykjavík. Þau áttu þrjá syni og Elísabet kenndi námskeið í handa­vinnu.

Þann 14.desember árið 1965 fór Elísabet af heimili sínu við Háleitis­braut 24 um klukkan hálf þrjú, ekki er vitað hvert hún ætlaði sér að fara en hún skilaði sér aldrei heim. Í fyrstu var hún ekki nafn­greind heldur einungis talað um horfna konu, það var ekki fyrr en 21.desember sem mynd af henni var birt í Morgun­blaðinu.

Leit af Elísabetu var hafin strax um kvöldið þann 14.desember. Henni var lýst sem 166 sentí­metrar á hæð, ljóshærð, klædd í dökkbláa kápu, með svarta loðhúfu og í háum svörtum leður­stígvélum. Hún var sögð tala fullkomna íslensku þrátt fyrir þýskan uppruna sinn.

Mikil leit var gerð, auglýsingar hljómuðu í útvarpi og birtust í blöðum.

Talið var að sést hafi verið til hennar á Seltjarnarnesi daginn sem hún hvarf. Einnig var hún talin hafa verið í Öskjuhlíð um kvöldmatar­leytið sama dag.

Í Vísi þann 15.desember er greint frá því að Elísabet hafi farið með leigubíl að Mýrar­húsum. Leitar­hundar röktu slóð hennar þaðan niður í fjöru og að Eiðis­granda. Leigubíls­stjóri taldi víst að hann hafi tekið Elísabetu upp í bíl sinn seinni­part 14.desember og ekið með hana í Hlíðarnar. Elísabet var sögð hafa átt erfitt með svefn dagana fyrir hvarfið.

Þann 19.desember stigu fram vitni sem segjast hafa rekist á Elísabetu á Hafnar­fjarðarvegi í nálægð við Öskjuhlíð aðfara­nótt 15.desember. Vitnin sögðu hana hafa verið hrædda og að hún hafi talið einhvern vera að elta sig. Þeir buðu henni far en hún afþakkaði.

Leitar­hópar voru þá kallaðir út í Öskjuhlíð og var hún talin fela sig þar. Hátt í 500 manns tóku þátt í leitinni án árangurs en leit var hætt þann 21.desember. Elísabetar er því enn saknað.

Í Gufu­neskirkju­garði var reistur steinn til minningar um hana.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá