Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Myrti konu sína eftir að hún kallaði hann vitlausu nafni í rúminu

Um hádegi sunnu­daginn 1.október árið 1961 hringdi maður í sjúkrabíl vegna eiginkonu sinnar. Sjúkra­bíllinn flutti konuna á Slysa­varðstofuna í Reykjavík en hún var þegar látin. Líkið var farið að kólna þegar í sjúkra­bílinn var komið. Miklir marblettir voru á andliti, hand­leggjum og brjósti konunnar ásamt nokkrum húðrispum framan á hálsi. Eigin­maður hennar játaði umsvifa­laust að hafa veitt konunni þessa ávarka sem leiddu til dauða hennar.

Hjónin voru bæði 35 ára og bjuggu á Laugar­nesvegi, þau áttu þrjú börn á aldrinum tveggja til sjö ára. Maðurinn starfaði sem sjómaður. Hann greindi frá því í dómstólum að samband þeirra hafi verið storma­samt, sérstak­lega þegar þau voru undir áhrifum áfengis, þá hafi þau oft slegist. Nágrannar hjónanna sögðu algengt að læti bærust frá íbúð þeirra.

Maðurinn hélt því fram að í tugi skipta hafi konan ráðist á hann án þess að hann hafi snert við henni. Hann kallaði hana einnig „mjög flangs­gefna“ og segir hana ítrekað hafa reynt við vini sína og skips­félaga, hún á einnig að hafa reynt að gera hann afbrýðisamann og  jafnvel slegið hann að ástæðu­lausu.

Þegar heimili hjónanna var rannsakað var augljóst að átök hafi átt sér stað þar inni en mikið var af blóð­blettum í stofunni og á kodda í hjóna­herberginu.

Maðurinn lýsti atburðarás næturinnar. Maðurinn hafi komið heim af sjónum og konan sótt hann á hafnar­bakkann. Þau voru bæði undir áhrifum áfengis þegar þau héldu heim, maðurinn lét þá börnin þeirra hafa gjafir. Þegar börnin voru sofnuð héldu hjónin áfram að drekka og fljótlega farið að rífast, ekki af neinni sérstakri ástæðu en þau rifust oft þegar vín var við hönd. Á milli rifrildana sættust þau og á einhverjum tímapunktu stunduðu þau kynlíf. Maðurinn segir konu sína hafa kallað hann öðru nafni á meðan á kynlífinu stóð og hann hafi reiðst. Þegar það gerðist svo aftur undir morgun varð hann óður og barði hana þar til hún gat ekki staðið aftur upp, hann hafi þá borið hana upp í rúm og þvegið af henni blóðið. Hann tók þá eftir því að ekki var allt með felldu, hann fékk þá pössun fyrir börnin sín, klæddi lík konunnar í föt og hringdi á sjúkrabíl.

Við krufningu komu í ljós ótrúlegir áverkar. Miklir marblettir í andliti og nánast samfellt mar undir öllu höfuð­leðrinu. Marblettir á útlimum og brjósti. Þá komu í ljós þrjú brotin rifbein, tvö þeirra tvíbrotin, rifa var í þindinni en það sem orsakaði dauða konunnar var stór sprunga í lifrinni.

Læknar furðuðu sig á því hvernig maðurinn gat veitt henni svona lagaða áverka á lifrina en þeir sjást nánast bara við alvarleg bílslys, til dæmis þegar bíll keyrir yfir mann. Þótti líklegt að maðurinn hafi stokkið af stól eða borði ofan á konuna, staðið og hoppað á henni.

Sjómaðurinn hafði oft komist í kast við lögin fyrir ýmsa smáglæpi, marga tengt ölvun. Við geðrannsókn kom í ljós að maðurinn var heill á geði og vel meðvitaður um gjörðir sínar.

Maðurinn var dæmdur í sjö ára fangelsi í héraði en Hæstiréttur mildaði dóminn í sex ár og vísaði þá til þess að maðurinn hafi verið í mikilli geðs­hræringu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá