Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Barnapían rekin fyrir að taka hundinn með: „Ekki eins og við höfum verið að njósna um hana“

Mynd/Envato Elements
Mynd/Envato Elements

Á reddit birtist færsla frá ævareiðum föður sem leitar álits annarra meðlima samskipta­grunnsins um hvort viðbrögð hans hafi verið óeðlileg. Maðurinn og kona hans höfðu ráðið til sín barnapíu til að gæta 6 mánaðar gamals sonar þeirra eina kvöld­stund. Þegar þau höfðu litið á öryggis­myndavélar heimilisins brá þeim í brún og hentust heim en þá sáu þau óþekktan hund liggja og þefa af barninu.

„Þetta gerðist um síðustu helgi. Ég og konan mín eigum 6 mánaða gamalt barn. Konan mín og ég skipulögðum stefnumót og við fengum barnapíu sem við höfum notað nokkrum sinnum sinnum. Við höfðum fengið meðmæli með henni frá vinum en hún er tvítug, háskóla­nemi, býr í hverfinu okkar,“ segir faðirinn í færslunni.

„Hún kom heim til okkar, við sögðum henni dagskrá sonar okkar og héldum svo út. Planið var að fara út að borða og fá okkur nokkra drykki. Við erum með tvær öryggis­myndavélar í húsinu sem við notum til að tékka á syni okkar. Önnur er yfir rúminu hans og hin er yfir leik­svæðinu hans í stofunni. Barnapían var meðvituð um báðar mynda­vélarnar, svo það er ekki eins og við höfum verið að njósna um hana,“ útskýrir faðirinn.

Hann lýsir tildrögum og hversu illa þeim foreldrunum hafi brugðið við að sjá óþekkt dýr í návist sonar þeirra: „Konan mín fær tilkynningu um að það sé hreyfing á leik­svæðinu, hún ákveður að athuga og sér hund þefa af syni okkar. Okkur bregður báðum. Við eigum enga hunda og höfum engin áform um að fá okkur hund. Við reynum að hringja, ekkert svar, svo við flýtum okkur heim. Þegar við mætum heldur barnapían á syni okkar og hjá þeim golden retriever. Allir eru rólegir og fínir.“

Barnapían virtist hneyksluð þegar þau mættu snemma heim. Faðirinn spyr hvers vegna það sé hundur í húsinu og segir: „Hún svarar að þetta sé hundurinn hennar sem hún hafi tekið með sér. Barnapían full­vissar okkur um að hundurinn sé barnavænn og ljúfur og góður. Ég vil ekki hafa son minn í kringum hunda á svona ungum aldri jafnvel þó þeir séu „sætur“ og „góðir““

Faðirinn virðist hafa upplifað áfall og lýsir hvernig tilfinningarnar hafi borið hann ofurliði: „Ég verð æ reiðari. Þetta var ekki eitthvað sem hún hafði nefnt og ef hefðum við vitað hefðum við aldrei samþykkt það. Ég segi henni hastur að grípa hundinn sinn og vinsamlegast fara. Ég tilkynni henni að við munum ekki nota hana í fram­tíðinni og borga henni helming greiðslunnar sem við höfðum samið um, aðallega þar sem við notuðum hana minna en helming þess tíma sem við ætluðum að vera úti. Hún biður um alla upphæðina. Ég sagði henni nei, þú stofnaðir barninu mínu í hættu og þú ættir að fara. Hún segist ekki hafa gert neitt rangt, en ég sé það ekki þannig. Svo var ég asninn?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Heimur

Prestur kom konu til bjargar á flótta undan kalkúnum

Taryn Laprade og presturinn urðu vör við atvikið þegar þau beygðu inn á rangan veg á heimleið eftir blakleik.

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs