Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Foreldrar nýbura á vökudeild óttaslegnir vegna kjarabaráttu og manneklu hjúkrunarfræðinga

„Við hjúkrunarfræðingar erum alveg gall­harðir, við ætlum að fá launaleiðréttingu eða að leita á önnur mið. Launakjör hjúkrunarfræðinga eru til skammar miðað við það álag, menntun og ábyrgð sem við berum. Það verður algert neyðarástand ef við göngum út, en spítalinn ákvað frekar að reyna að leita sátta en að fram­lengja uppsagnar­frest okkar og ég vona að það sé til marks um samnings­vilja. En þetta verður mjög erfitt því við lítum svo á að ábyrgðin i málinu sé stjórnvalda,“ sagði Herdís Herbertsdóttir, hjúkranardeildarstjóri á Sjúkrahúsi Reykjavíkur, þegar það var og hét. Viðtal var við Herdísi í DV þann 9.júní 1998 en þá stóðu hjúkrunar­fræðingar landsins í kjara­baráttu vegna lágra launa, mikils álags og manneklu.

Ástandið skapaði mikinn ótta á meðal lands­manna enda eru heilbrigðis­starfsmenn afar mikil­vægir. Sérstök umfjöllun var um stöðu nýbura á vökudeild. Foreldrar biðu ótta­slegnir eftir að samningar næðust en stóðu þó með hjúkrunar­fræðingum. Allt stefndi í að einungis 10 af 25 stöðu­gildum hjúkrunar­fræðinga yrðu mönnuð.

Miðað við reglur erlendis er sagt að hvert ungbarn í öndunarvél þurfi ummönnun eins til tveggja hjúkrunar­fræðinga. Hér á landi var þó staðan sú að hver hjúkrunar­fræðingur var með tvö og jafnvel fleiri börn á vökudeild í sinni umsjá, auk þess að sinna öðrum umönnunar­störfum á sjúkra­húsinu. „Það hefur ekki tekist að manna nema 19 af 25 stöðugildum og því gríðarlegt álag á þeim hjúkrunarfræðingum sem hér starfa. Hér er tekið við öllum og komið hefur fyrir að kaffi­stofan hafi verið notuð fyrir nýbura,“ sögðu þær Elísabet Halldórsdóttir aðstoðardeildarstjóri og Elín Guðmundsdóttir deildarhjúkrunarfræðingur á vökudeild Landspítalans í samtali við DV.

Staðan var því alvarleg áður en kjara­barátta hjúkrunar­fræðinga hófst og stefndi í hættu­ástand ef úr uppsögnum þeirra yrði. Hjúkrunar­fræðingar áætluðu að ganga út þann 1.júlí 1998 ef ekki til samninga kæmi. „Það er alveg ljóst að hér verður engin starfsemi þegar einungis 10 hjúkrunarfræðingar verða eftir á deildinni og um helmingur þeirra er á leið í sumarfrí. Hér verður hörmungarástand þar sem vonlaust er að manna deildina með hjúkrunarfræðingum sem ekki hafa þjálfun í umönnun nýbura,“ sögðu Elísabet og Elín.

Samkomulag á milli íslenska ríkisins og Félags íslenskra hjúkrunar­fræðinga náðist á síðustu stundu. Ekki voru þó allir sáttir með samninginn en það var undir hverjum hjúkrunar­fræðingi fyrir sig að ákveða hvort hann drægi uppsögn sína til baka. Samkomulag náðist um að draga fleiri hjúkrunar­fræðinga upp um launa­flokka en enn væru um fjórðungur þeirra í lægsta launa­flokki. Kostnaður ríkisins við þennan samning var áætlaður vera um 300 milljónir króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá