Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Bubb­i ræðir um erf­ið­a reynsl­u: „Ég er mis­not­að­ur 14 ára gam­all“

Bubbi Morthens
Bubbi Morthens

„Bubbi Morthens hefur sannarlega sveiflast með tíðaranda okkar samfélags fram og aftur, verið gagn­rýndur fyrir tækifæris­mennsku og fyrir að sýna af sér karlrembu en er einn af fáum sem þó gengst oft við því þegar hann ruglast, sem myndi teljast gott fordæmi um jákvæða karl­mennsku,“ segir Þorsteinn V. Einarsson í hlað­varpinu Karl­mennskunni.

Bubbi segir þar hafa upplifa sig oft sem utangátta, utanvelta og steingert tröll enda alinn upp, að eigin sögn, í eitraðri karl­mennsku og kvenna­kúgun.

Hann opnaði sig um erfiða reynslu í við­tali í hlað­varpinu Karl­mennskan hjá Þor­steini V. Einars­syni á dögunum. Bubbi sagði frá því þegar hann var mis­notaður á ung­lings­aldri og lýsti því hvaða á­hrif það hafði á hans sjálfs­mynd og sam­skipti við kven­fólk.

„Ég er mis­notaður 14 ára gamall sem í rauninni sviptir mig ung­lings­árunum, sviptir mig nándinni og getunni til að eiga eðli­leg sam­skipti við kven­fólk, sem dæmi. En það sem ég hef lært á þessari veg­ferð er að það er engin leið að eiga mögu­leika á heilun öðru­vísi en að það verði sátt og sam­tal.“

Í við­talinu segir Bubbi frá sjálfs­vinnunni sem hann lagðist í til að vinna úr of­beldinu. Þar segir hann frá fyrstu til­raun sinni til að opna á um­ræðu um mis­notkun sína hjá sál­fræðingi sem hann fór til árið 2004. Bubbi segir að þegar hann byrjaði að ræða kyn­ferðis­of­beldið við sál­fræðinginn, sem var karl­maður, hafi hann brugðist sér­kenni­lega við. „Hann skildi ekki hvað ég var að tala um og ýtti þessu bara til hliðar.“

Að sögn Bubba fann hann sér síðan annan aðila til þess að hjálpa sér í gegnum það flókna ferli að vinda ofan af á­hrifunum sem mis­notkunin hafði á líf hans. En hún litaði sam­skipti hans við kven­fólk um langt skeið.

„Ég var ekki búinn að sofa hjá stelpu þegar þetta gerist. Ég var bara 14 ára. Ég var skotinn í stelpu en frá þessum tíma­punkti þá var heil­brigt kyn­líf tekið frá mér og getan til að stunda kyn­líf með nánd, ég var sviptur henni. Punktur. Það er bara þannig. Ég átti nánara sam­band við klám heldur en t.d. að eiga eðli­leg sam­skipti við konur,“ segir Bubbi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá