Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Valdimar átti vandræðalegt símtal við ókunnuga konu: Ég rauf þögnina og sagði „Já, flott”

Valdimar Guðmundsson, einn okkar allra ástsælasti söngvari, skrifaði drep­fyndna færslu á Facebook og Twitter í gær. Lýsir hann þar pínlegri uppákomu er hann átti símtal við ókunnuga konu. Valdimar gaf Mannlífi góðfúslegt leyfi til að birta færsluna í heild sinni.

Símtalið átti Valdimar við ókunnugu konuna vegna giggs sem hann þurfti að ræða við hana um. En svo heyrir hann að konan er að hlusta á jólalag sem Valdimar söng með Bríeti. Honum þótti það skrítið en svo hækkaði í laginu og eftir langa þögn var það eina sem honum datt í hug að segja var „Já, flott.” En svo kom sann­leikurinn í ljós. Hér fyrir neðan má lesa færsluna í heild sinni.

Í dag hringdi ég í manneskju sem ég þekki ekki neitt varðandi gigg. Þegar hún svaraði í símann þá heyrði ég að hún var að hlusta á eitthvað lag sem ég kannaðist svolítið við. Þá var þetta lagið Jólin eru okkar sem ég söng með henni Bríet fyrir ekki svo löngu. Svo sló þögn á samtalið og þá fannst mér eins og hún hækkaði aðeins í græjunum til að leyfa mér að heyra að hún væri að hlusta á lag með mér. Ég rauf þögnina og sagði „Já, flott.” og hélt svo áfram að segja það sem ég vildi segja í þessu frekar formlega samtali. Allan tímann velti ég því fyrir mér hvort hún ætli ekki að fara að lækka í músíkinni en aldrei gerist það og hvert jólalagið á fætur öðru spilast á blasti í gegnum þetta samtal okkar. Það er ekki fyrr en eftir að ég skelli á sem ég fatta að þetta var mitt eigið Spotify að spila random lög eftir að ég hafði áður verið að hlusta á lagið Yndislegt líf í æfingar­skyni. Þannig að ef við spólum aðeins til baka, þá var eins og ég hafi hringt í þessa manneskju, tekið langa pásu til að leyfa henni að heyra að ég væri að hlusta á jólalag með sjálfum mér í maí, sagði svo „Já, flott.” og hélt svo áfram samtalinu með jólalög á blasti allan tímann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Jólin geta verið svo indæl

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt