Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Will Smith segir sig úr Akademíunni: „Hjarta mitt er brostið“

Will Smith.
Will Smith. Mynd: skjáskot

Kvikmynda­leikarinn Will Smith hefur sagt sig úr bandarísku kvikmynda­akademíunni sem heldur Óskars­verðlauna­hátíðina á hverju ári. Tilkynnti Smith þetta í gærkvöldi.

Rúv sagði frá tilkynningunni. Smith segist hafa tekið þessa ákvörðun vegna atburðarins á Óskarnum sem sjokkeraði heiminn, er hann sló grín­istann Chris Rock og öskraði á hann eftir að Rock hafði sagt brandara um konu Smith.

Sjá einnig: Uppákoma á Óskars­verð­laununum: Will Smith sló Chris í nótt MYNDBAND

Smith sagði í viðtali við Variety að hann myndi samþykkja hverja þá refsingu sem stjórn Akademíunnar teldi hæfilega.

„Ég hef sært marga, þar á meðal Chris, fjöl­skyldu hans, ástvini mína, alla þá sem sátu í salnum auk áhorfenda um allan heim,“ sagði Smith. Sagðist hann einnig hafa brugðist trausti Akademíunnar með framferði sínu. Þannig hafi hann svipt sigurveg­arana og þá sem tilnefndir voru, tækifæri til þess að njóta augna­bliksins, fagna og vera fagnað vegna afreka sinna. „Hjarta mitt er brostið,“ sagði Smith.

Með afsökunar­beiðninni og afsögninni segist Smith vilja beina kast­ljósinu aftur á alla þá er sigruðu á Óskars­verð­laununum.

„Ég vil að athyglin snúist aftur að þeim sem eiga hana skilið fyrir afrek sín og að akademían geti snúið sér aftur að sínu frábæra starfi við að styðja list­sköpun í kvik­myndum,“ sagði Smith.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Jólin geta verið svo indæl

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt