Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Hollywood leikarar hindra sunnudagsbíltúr Íslendinga

Reykja­víkurborg hefur veitt leyfi fyrir tíma­bundnum lokunum á nokkrum götum vegna kvik­myndatöku fyrir myndina Heart of Stone. Lokanir verða mis miklar en tökurnar fara fram 2.-5. apríl næst­komandi og ráð fyrir fólk sem býr eða starfar á svæðinu að gera ráðstafanir.

Laugar­daginn 2.apríl milli klukkan 07 – 13, verður Sæbraut lokuð frá Snorra­braut að Hörpu. Auk þess verður Kalkofns­vegur lokaður og umferð vísað framhjá með hjáleiða­merkingum. Reykja­víkurborg sendi frá sér tilkynningu vegna málsins en hér að neðan má sjá þær götur sem munu loka á næstu dögum.

„Til viðbótar verður götulokun Sæbrautar til vesturs frá Kirkju­sandi til Katrínar­túns einnig í gildi á laugar­deginum 2. apríl frá kl. 12 – 17. Samþykki Vega­gerðarinnar fyrir ofan­greindum götu­lokunum liggur fyrir.

Sunnu­dagur 3. apríl frá kl. 07 – 15

Sæbraut lokuð frá Snorra­braut að Hörpu, einnig verður Kalkofns­vegur lokaður að Geirsgötu. Aðgangur að Hörpu­torgi verður að hluta takmarkaður. Umferð verður vísað framhjá með hjáleiða­merkingum. Samþykki Vega­gerðarinnar fyrir lokun á Sæbraut og Kalkofns­vegi liggur fyrir.

Mánudagur 4. apríl frá kl. 07 – 17

Skólavörðu­holt – Götulokun frá Frakka­stíg við Bergþóru­götu að Eiríks­götu við Mímisveg. Efsti hluti Skólavörðu­stígs frá Kárastíg verður að botngötu. Aðgengi að Hallgríms­kirkjutorgi verður takmarkað þar sem tökur fara fram af mótor­hjóli sem fer yfir torgið. Leyfis­hafar hafa upplýst Tækni­skólann og leik­skólann Grænuborg um skert aðgengi þennan dag. Einnig hafa íbúar og rekstar­aðilar í nágrenninu verið upplýstir um lokunina.

Hugsanlegt er að reynt verði að fara í þær tökur sem skipulagðar eru á þriðjudeginum 5. apríl á Frakka­stíg, einnig á mánudeginum 4. apríl. Ef það tekst myndu takmarkanir þann 5. apríl falla niður.

Þriðjudagur 5. apríl frá kl. 07 – 17

Götulokun á Frakka­stíg í tveimur hlutum. Annars vegar frá gatna­mótum Frakka­stígs við Hverfis­götu að Sæbraut. Hins vegar á Frakka­stíg við gatnamót Bergþóru­götu að gatna­mótunum við Hverfis­götu. Lauga­vegur verður lokaður við Frakka­stíg. Íbúar og rekstrar­aðilar í nærumhverfinu hafa verið upplýstir um lokunina og skert aðgengi á svæðinu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá