Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Sóley: „Viðbrögð flokksins vekja ekki mikla von – Ummæli Sigurðar minna á klefamenningu,öráreiti“

Sóley Tómasdótir, stofnandi Just Consulting og fyrr­verandi borgar­fulltrúi, ræðir um mál Sigurður Inga Jóhannsson, innviðar­ráðherra og Vigdísar Häsler, framkvæmda­stjóra Bænda­samtakanna. Sóley segir í hugleiðingum sínum á síðu sinni að:

„Framkoma Sigurðar Inga Jóhanns­sonar á Búnaðar­þingi í síðustu viku hafi verið óviðeigandi og særandi, en mjög gott dæmi um öráreiti. Atburðarrás persóna og leikenda er um það bil svona, í mjög einfaldaðri mynd:

  1. Sigurður Ingi vísar til framkvæmda­stjóra Bænda­samtakanna sem „þeirrar svörtu“ á skemmtun Búnaðar­þings.
  2. Framkvæmda­stjóri Bænda­samtakanna fjallar um fram­komuna á opinberum vettvangi og lýsir þeim sem dæmi um dulda fordóma sem grassera í samfélaginu.
  3. Aðstoðar­maður ráðherra þvertekur fyrir ummælin og segir málið vera „algert bull“.
  4. Sigurður Ingi sendir frá sér afsökunar­beiðni en neitar að ræða málið frekar.
  5. Brynja Dan, vara­þingmaður Framsóknar­flokksins sem ættleidd er frá Sri Lanka, segist ekki hafa upplifað rasisma innan flokksins.

Ummæli Sigurðar Inga féllu við aðstæður sem eiga sér sögu um karllæga stemningu, drykkju og hömlu­leysi sem hefur viðgengist í trausti þess að ekkert spyrjist út. Aðstæður sem minna á klefa­menningu, menningu sem viðgengst innan hópa sem leyfa ómeðvituðu hlut­drægninni að stýra hegðun sinni, orðum og gjörðum. Þar sem óviðeigandi hegðun er samþykkt sem „einka­húmor.“

Viðbrögð aðstoðar­manns Sigurðar eru dæmigerð fyrir fyrsta og annað stig sjálf­virkra varnar­viðbragða. Eitthvað sem er eðlilegt að fljúgi í gegnum huga fólks þegar því er bent á óviðeigandi framkomu en fólk ætti að melta og komast yfir áður en það svarar fyrir slíkt. Viðbrögðin virkuðu sem gaslýsing og gerðu ekkert annað en auka á vanlíðan þolandans.

Að lokum telur Sóley; „að framkoma formannsins og viðbrögð flokksins vekja því miður ekki mikla von. Flokkur sem hefur byggt stefnu sína í gegnum tímans rás á íslenskum land­búnaði, íslenskri menningu og sveita­rómantík þarf að gæta hófs og vera meðvitaður um mörkin milli þjóðrækni og þjóðernis­hyggju. Við þurfum öll, sem einstaklingar sem höfum alist upp í einsleitu samfélagi hvíts fólks að vera meðvituð um það sama. Við þurfum að forðast klefa­menningu, koma fram af virðingu við fólk, horfast í augu við eigin mistök, átta okkur á þeim áhrifum sem þau hafa, læra af þeim og leggja okkur fram um að bæta okkur. Þannig getum við stuðlað að betra samfélagi fyrir okkur öll.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá