Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Stína glímir við gigtarsjúkdóm: „Var mjög veik en hef lært að njóta lífsins og lifa í núinu“

Stína Ágústsdóttir. Mynd/skjáskot
Stína Ágústs­dóttir. Mynd/skjá­skot

„Ég byrjaði á henni fyr­ir nokkr­um árum síðan og kveikj­an var eig­in­lega sú að ég varð svaka­lega veik af gigt­ar­sjúk­dómi. Það kom tíma­bil þar sem ég gat hrein­lega ekki gert neitt nema að liggja og hugsa, hlusta á tónlist og horfa á sjón­varpið. Lög­in og text­arn­ir urðu svo til upp úr þeirri lægð. Ég skoða sjálfa mig og mín tengsl við aðrar mann­eskj­ur á þess­ari leið frá því að standa í stað í myrkri og kom­ast svo upp úr því með já­kvæðni og hjálp. Í þessu öllu sam­an lærði ég svo að njóta lífs­ins bet­ur, lifa meira í nú­inu og gefa skít í meira sem skipt­ir ekki máli,“ seg­ir Stína Ágústs­dótt­ir í samtali við Mörtu Maríu Winkel í Smart­landinu á Mbl.

Stína snéri sér al­farið að tón­list­inni eft­ir að hafa lært verk­fræði. Hún seg­ist hafa verið arfaslak­ur verk­fræðing­ur því hún er svo lé­leg að sitja á fund­um. Hún býr í Svíþjóð ásamt eig­in­manni sín­um, Tóm­asi Gunn­ars­syni, og börn­um en flakk­ar mikið á milli landa þar sem for­eldr­ar henn­ar búa á Íslandi. Á sunnu­dag­inn ætl­ar Stína að vera með út­gáfu­tón­leika í Hörpu en henn­ar fjórða sólóplata hef­ur litið dags­ins ljós. Drown to Die a Little er sér­stök að því leit­inu til að þetta er í fyrsta skipti sem hún gef­ur út plötu með frum­sömd­um lög­um en plat­an kom til henn­ar meðan hún var sem veik­ust af gigt­ar­sjúk­dómi sem hrjá­ir hana.

„Jú. Ég út­skrifaðist sem véla- og iðnaðar­verk­fræðing­ur og vann sem slík­ur í eitt og hálft ár. Ég var búin að lofa sjálfri mér að byrja í Söng­skól­an­um í Reykja­vík eft­ir að ég út­skrifaðist og stóð við það. Þegar ég fór þangað var ekki aft­ur snúið, þörf­in var bara of sterk. Ég var al­veg arfaslak­ur verk­fræðing­ur og er sér­lega lé­leg í því að sitja á fund­um og ræða al­var­leg mál­efni. Ég flutti til London með fyr­ir­tæk­inu sem ég var að vinna hjá þegar ég var verk­fræðing­ur og svo var niður­sveifla í tölvu­brans­an­um og það þurfti að skera niður og svo heppi­lega vildi til að ég lenti í þeim niður­skurði. Eft­ir það æv­in­týri flutti ég til Montreal í Kan­ada og fór svo bara í al­vöru jazz­tón­list­ar­nám og lýsti því yfir að ég væri hætt að vera verk­fræðing­ur.“

Tón­list­ina samdi hún ásamt vini sín­um, Mika­el Mána Ásmunds­syni.

„Ég samdi flest lög­in í sam­starfi við ung­an snill­ing og vin minn til nokk­urra ára, Mika­el Mána Ásmunds­son, en hann spil­ar á gít­ar á plöt­unni og á tón­leik­un­um. Ég er svo ofboðs­lega hepp­in að fá að vinna með stór­kost­lega hæfi­leika­ríku og færu tón­listar­fólki, eins og bassa­leik­ar­an­um á plöt­unni Henrik Lind­er. Hann býr í Stokk­hólmi eins og ég og það var í gegn­um sam­eig­in­lega vini sem við kynnt­umst og fór­um að spila sam­an. Hann er í hljóm­sveit sem heit­ir Dirty Loops og hefði und­ir venju­leg­um kring­um­stæðum verið að spila út um all­an heim en útaf heims­far­aldri spilaði hann bara jazz með mér í staðinn og svo í þessu verk­efni.

Hann verður ein­mitt með mér á út­gáfu­tón­leik­un­um ásamt þeim sem spiluðu á plöt­unni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá