Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Oksana frá Úkraínu á Íslandi: „Á morgun vitum ekki hvað gæti gerst“

Stórleikkonan Oksana Cherkashyna á íslensku kvikmyndahátíðinni Stockfish í lok mars 2022.
Stór­leik­konan Oksana Cherkashyna á íslensku kvik­mynda­há­tíð­inni Stockfish í lok mars 2022. Mynd: Brynjar Leó Hreiðarsson

Stockfish Kvikmynda­hátíðin fer nú fram í áttunda sinn dagana 24. mars -3. apríl í Bíó Paradís. Yfir tuttugu alþjóðlegar verðlauna kvik­myndir eru sýndar ásamt stuttmynda­keppninni Sprett­fiskur. Mannlíf lét sig ekki vanta og fékk þann heiður að ræða við Oksana Cherkashyna frá Úkraínu sem er aðal­leikkona kvik­myndarinnar Klondike.

Myndin var valin á Stockfish kvikmynda­hátíðina áður en stríðið braust út vegna þess að hún var að fá mjög góða dóma og vinna til verðlauna. Í ljósi núverandi atburða var ákveðið að hún yrði opnunar­mynd hátíðarinnar og að staðið yrði fyrir söfnun fyrir úkraínskt flótta­fólk hér á landi.

Borgin er staðsett við landmæri Rússlands, því miður

Oksana er uppruna­lega frá Kharkiv í Úkraínu. „Þar ólst ég upp og varð að þeirri manneskju sem ég er í dag. Kharkiv er ein af stærstu borgum austur­hluta Úkraínu og er borgin staðsett við landamæri Rússlands, því miður. Og nú á meðan við erum að tala saman er rússneski herinn að skjóta borgin niður með flug­skeytum og sprengjum.“

Í apríl mun Oksana taka þátt í uppsetningu á nýrri sýningu í Powszechny leik­húsinu í Varsjá. „Þetta er gjörn­ingur sem er byggður á skáld­sögunni Orlando eftir rithöfundinn W. Woolf. En svo fer ég um leið og ég kem aftur heim í tökur á nýrri sjónvarps­seríu í Varsjá.

Eins og staðan er nú, er ég með aðsetur í Varsjá. Ég skammast mín fyrir að segja þetta, en ég var svo heppinn að ná að yfirgefa Úkraínu áður en innrásin hófst. Þann 14. febrúar vorum við á frum­sýningu á kvik­myndinni Klondike á Berlinale kvikmynda­hátíðinni og gistum þar alla hátíðina. Ég var með bókaðar sýningar í Varsjá þann 24. febrúar svo ég ákvað að fara beint frá Berlín til Varsjá.

Þegar innrásin hófst, fann ég fyrir miklum innri sársauka. Sársaukin kom vegna þess að ég var svo langt frá ástvinum mínum, á meðan að þau voru að upplifa stöðugar sprengju­árásir. Það hefur verið mjög sárt að vera ekki hjá þeim í Kharkiv og í Kyiv.“

Oksana segir að í ljósi aðstæðna muni móðir hennar og systir örugglega flytja frá Kharkiv og sameinast henni í Varsjá. Faðir minn neitar hins vegar að fara frá Úkraínu. Hann vinnur hjá hita­veitunni í borginni og passar upp á að það sé hiti í húsunum, sem er að sjálfsögðu mjög mikilvægt. Hann sagði við mig að hann gæti ekki skilið eftir konur og börn án vatns og hita.

Pabbi minn er sönn hetja ásamt milljónum Úkraínu­manna sem hafa ákveðið að dvelja á heimilum sínum og standa saman gegn rússnesku hryðjuverka­árásunum. Það hefur tekið mig nokkurn tíma að sætta mig við þessa ákvörðun föður míns og ég er enn að vinna í öllum þeim tilfinningum sem koma upp í þessum aðstæðu. En ég ætla ekki að missi vonina.“

Þeir munu aldrei eyðileggja sjálfsmynd okkar 

Þetta er í fyrsta sinn sem Oksana heimsækir Íslandi, en hún segist hafa verið mjög spennt fyrir ferðinni. „Svo fallegt og einstakt land. Ég held að ákvörðun mín um að koma hingað hafi verið tvíþætt. Í fyrsta lagi þá hef ég fundið fyrir þeirri þörf að miðla því sem er að gerast í Úkraínu og hvað við höfum þurft að fara í gegnum með ástvinum, vinum og samstarfs­mönnum.

Annars vegar, er það að fá að taka þátt i kvikmynda­hátíð sem er alltaf svolítið frí og þeim fylgir svo mikil gleði. Ég fæ að kynnast nýju hæfileika­ríku fólki og fylgja kvikmynda­draumnum mínum og markmiðum. Þetta er hluti af mínu lífi og sjálfs­mynd minni. Rússneskir hermenn geta eyðilagt húsin okkar, en þeir munu aldrei eyði­leggja sjálfs­mynd okkar né taka frá okkur sjálf­stæðið.“

Lífið fyrir stríð

Kvik­myndin fjallar um mótspyrnu einnar konu. „Ég hef alltaf velt því mikið fyrir mér hvernig við getum unnið upp á móti öllu þessu ofbeldi, sem við Úkraínu­menn þurfum að lifa við.

Eftir að ég horfði á myndina og sá minn karakter úr fjarlægð sá ég að eigin­leikar eins og; umönnun og blíða geta unnið gegn ofbeldi. Á sama tíma finnst mér það svo áhugavert að þessir eigin­leikar séu oftast taldir kvenlegir og litið til kvenna sem búa yfir þessum eigin­leikum sem kúgaðar. Í kvik­myndinni sjáum við greini­lega hvernig varnar­leysi sögu­hetjunnar, þráhyggju­kennd tryggð hennar við heimilið, lífið fyrir stríðið og nýtt líf innra með henni verða hennar styrkur og hennar mótstaða gegn öllu ofbeldinu í stríðinu. Ég held að boðskapur Klondike sé að þessi heimur gæti verið betri ef við værum aðeins blíðari og trygg hvort við annað.

Á Stockfish hátíðinni fannst mér myndin virkilega ná til hjarta áhorfenda.

Ég mun aldrei missa vonina

Stríðið getur ekki stöðvast af sjálfu sér, það verður að stöðva það. Úkraínska þjóðin berst í örvæntingu fyrir framtíð sinni og ég held fyrir framtíð alls heimsins. Heimurinn getur ekki bara stigið til hliðar setið hjá. Okkur er sagt að ef NATO taki þátt í átökunum muni þriðja heims­styrjöldin hefjast. En það sem er að gerast núna í Kharkiv, Mariupol, Kyiv er heims­styrjöld. Í dag eru milljónir manna í lífshættu, ástvinir mínir og morgun vitum ekki hvað gæti gerst, kannski gæti það verið þú. Þannig að ef þjóðir heims finna ekki hugrakkið hjá sér til að standa með okkur, biðjum við um hjálp svo við getum varið okkur sjálf.

Ég hef engin sérstök plön fyrir fram­tíðina. Eftir 24. febrúar hefur tíminn flætt áfram eins og einn langur endalaus dagur, sem ég vona að endi með sigri úkraínska hersins og úkraínsku þjóðarinnar gegn harðstjórn Pútíns í Rússlandi. Ég mun aldrei missa vonina.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá