Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Atvinnuauglýsing Eflingar birt: „Nú stendur til að reka út úr húsi erlenda starfsfólkið okkar“

Atvinnu­auglýsing frá Eflingu birtist í Frétta­blaðinu í morgun. Um er að ræða þau störf sem starfs­fólkið sem var sagt upp í vikunni gegndi, með nokkrum breytingum. Meðal hæfnis­krafa er íslensku­kunnátta og hafa sum störf á skrif­stofunni verið lögð niður.

Um er að ræða heilsíðu­auglýsingu á forsíðu atvinnu­auglýsinga Frétta­blaðsins. Efst í auglýsingunni er spurt stórum stöfum: „Vilt þú taka þátt í að byggja upp metnaðar­fyllsta stéttar­félag landsins?“

Gabríel Benjamín, kjaramála­fulltrúi hjá Eflingu og trúnaðar­maður þeirra tíu starfs­manna skrif­stofunnar sem eru í VR, segir í samtali við RÚV að það hafi ekki verið fyrr en í dag, þegar atvinnu­auglýsingin birtist, að margt starfs­fólk skrif­stofu Eflingar hafi komist að því að störf þeirra væru ekki lengur til.

Starfs­fólkið hafi á sama tíma komist að því að allt í einu væri íslensku­kunnátta orðin skilyrði fyrir mörg þau störf sem krefjist hennar ekki.

„Í Eflingu býr mikill mannauður og fjöl­breytni hefur verið styrkur okkar. En nú stendur til að útrýma henni og reka út úr húsi erlenda starfs­fólkið okkar sem hefur byggt upp starfið og stutt við erlendu félags­menn okkar hvað best. Mér finnst þetta til háborinnar skammar,“ segir Gabríel Benjamín í samtali við RÚV.

Hann segist eiga von á því að margir leiti ráða hjá VR eftir páska.

Ragnar Þór Ingólfsson hefur verið gagn­rýndur töluvert síðustu daga fyrir að taka ekki skýra afstöðu í málinu. Enda séu, eins og áður sagði, um tíu starfs­menn af þeim sem sagt var upp, í VR.

Í samtali við frétta­stofu RÚV í gær sagðist Ragnar Þór ekki hafa átt von á hópuppsögninni. „Það hafa náttúru­lega verið gríðarleg átök í kringum félagið sem endaði með risastóru uppgjöri í síðustu kosningum til formanns og stjórnar. Maður bjóst alveg við því að það yrðu breytingar og eitthvað í kjölfarið sem myndi gerast, en ég átti ekki alveg von á þessu.“

Ragnar Þór sagði stjórn VR hingað til hafa ekki viljað íhlutast í þær deilur og átök sem hafa verið á skrif­stofu Eflingar.

„Það hefur náttúru­lega verið þrýstingur á mig og félagið að vera með yfir­lýsingar sem aftur hefur verið mjög erfitt vegna þess að við erum í mjög viðkvæmri stöðu gagnvart þeim félags­mönnum sem við erum að verja hagsmuni fyrir.“

Ragnar sagði það stjórnarinnar að taka ákvörðun um það hvort til stæði að blandast meira inn í málefni Eflingar eða stéttar­félagsins. Það yrði tekið fyrir á stjórnar­fundi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá